Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-256/2018 · Innviðaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraða fjarskiptaneta

Um er að ræða drög að frumvarpi til laga um ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraða fjarskiptaneta til innleiðingar á ákvæðum tilskipunar ESB 2014/61 sama efnis, auk breytinga á lögum um fjarskipti og lögum um Póst- og fjarskiptastofnun.

Meginmarkmið frumvarpsins er að tryggja fullnægjandi lagastoð fyrir innleiðingu tilskipunar ESB 2014/61 um ráðstafanir til að lækka kostnað við uppbyggingu á háhraða stafrænum fjarskiptanetum í íslenskan rétt. Í frumvarpinu er lagt til að innleidd verði ákvæði tilskipunarinnar er m.a. taka til þess að skilgreina tiltekin lágmarksréttindi og -skyldur rekstraraðila neta til að auðvelda útbreiðslu háhraða fjarskiptaneta. Þar er kveðið á um aðgengi að lágmarksupplýsingum um fyrirliggjandi efnisleg grunnvirki, yfirstandandi eða fyrirhugaðar leyfisskyldar mannvirkjagerðar í því skyni að kanna möguleika á samhæfingu framkvæmda. Einnig er kveðið á um skyldu rekstraraðila neta til að verða við réttmætum beiðnum um aðgang að fyrirliggjandi efnislegum grunnvirkjum með uppbyggingu háhraða fjarskiptaneta í huga, samkvæmt sanngjörnum og eðlilegum skilmálum, þ.m.t. um verð. Sérstakar skyldur eru lagðar á þá rekstraraðila neta sem standa með beinum eða óbeinum hætti að mannvirkjagerð sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð úr opinberum sjóðum. Almennt er miðað við að slíkir aðilar veiti aðgang, svo fremi sem slík beiðni um samhæfingu mannvirkjagerðar hafi ekki í för með sér aukinn viðbótarkostnað (s.s. vegna tafa), hindri ekki stjórnun framkvæmdar og umsókn um samhæfingu sé lögð inn a.m.k. mánuði fyrir umsókn um leyfisveitingu. Þá er fyrirhuguð setning reglugerðar á grundvelli laganna efnisákvæðum laganna til nánari skýringar og fyllingar, auk breytinga á byggingareglugerð og reglugerð um framkvæmdaleyfi m.a. vegna málsmeðferðar skipulags- og byggingaryfirvalda og ákvæða er varða frágang fjarskiptalagna í byggingum.

S-256/2018· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. jan. 2019 – 5. feb. 2019· 2 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraða fjarskiptaneta

Um er að ræða drög að frumvarpi til laga um ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraða fjarskiptaneta til innleiðingar á ákvæðum tilskipunar ESB 2014/61 sama efnis, auk breytinga á lögum um fjarskipti og lögum um Póst- og fjarskiptastofnun.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-256/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 5. febrúar 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 639)
Niðurstöður samráðs (21. febrúar 2019)

Fram komu sex umsagnir við frumvarpsdrögin. Í þeim voru fjölmargar gagnlegar og vel rökstuddar ábendingar sem unnið hefur verið úr í hjálögðu skjali um samantekt umsagna og viðbrögð.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-256/2018: Drög að frumvarpi til laga um ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraða fjarskiptaneta · Alviti