Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
109 mál · sótt 27. október 2026
- Komið til AlþingisS-263/2023· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. des. 2023 – 11. jan. 2024· 0 umsagnir
Áform um breytingu á lögum um námsstyrki nr. 79/2003
Áformað er að leggja fram frumvarp til breytinga á lögum um námsstyrki, til að gera nemendum sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða kleift að sækja um styrk.
- Komið til AlþingisS-260/2023· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. des. 2023 – 3. jan. 2024· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingar á lögum um sjúkratryggingar
Áformað er að breyta lögum um sjúkratryggingar einkum með það að markmiði að skýra heimildir stofnunarinnar til að vinna nauðsynlegar upplýsingar.
- Komið til AlþingisS-259/2023· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. des. 2023 – 9. jan. 2024· 1 umsögn
Ýmsar lagfæringar á löggjöf á fjármálamarkaði
Áformað er að leggja til minni háttar breytingar á ýmsum lögum á fjármálamarkaði, meðal annars til að unnt verði að leiða í íslenskan rétt efni Evrópugerða sem hafa verið teknar upp í EES-samninginn.
- Komið til AlþingisS-257/2023· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. des. 2023 – 27. des. 2023· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um greiðslur yfir landamæri í evrum
Áformuð er lagasetning um frumvarp til laga um greiðslur yfir landamæri í evrum.
- Komið til AlþingisS-256/2023· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. des. 2023 – 5. jan. 2024· 1 umsögn
Áform um frumvarp til laga um framkvæmdir og umsýslu fasteigna fyrir Landspítala og sérhæfða sjúkrahúsþjónustu
Þörf er á að endurskoða núgildandi lagaramma um NLSH ohf. þannig að hann samræmist betur þeirri þróun sem hefur orðið á hlutverki félagsins.
- Komið til AlþingisS-253/2023· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 6. des. 2023 – 12. jan. 2024· 306 umsagnir
Frumvarp til laga um lagareldi
Matvælaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um lagareldi.
- Komið til AlþingisS-252/2023· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. des. 2023 – 15. des. 2023· 3 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna, nr. 13/1998
Lagt er til að styrkja heimildir Verðlagsstofu skiptaverðs til að viðhafa markvissara eftirlit með fiskverði og stytta málsmeðferðartíma hjá úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.
- Komið til AlþingisS-249/2023· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 29. nóv. 2023 – 11. des. 2023· 6 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019 (rekstraröryggi í greiðslumiðlun)
Frumvarpið miðar að því að styrkja heimildir Seðlabankans til að efla viðnámsþrótt í greiðslumiðlun hér á landi og með því stuðla að fjármálastöðugleika og þjóðaröryggi.
- Komið til AlþingisS-246/2023· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 27. nóv. 2023 – 18. des. 2023· 4 umsagnir
Breyting á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir (reglugerðarheimild)
Með frumvarpinu er lagt til að setja reglugerðarheimild í lögin svo ráðherra sé heimilt að kveða með nánari hætti á um stoðþjónustu, m.a. um aðstoðarmannakort fatlaðs fólks og fæðisfé starfsfólks.
- Komið til AlþingisS-241/2023· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 22. nóv. 2023 – 4. des. 2023· 9 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna þjóðlendna (starfslok óbyggðanefndar o.fl.)
Drög að frumvarpi til laga sem felur í sér að gera breytingar á ýmsum lögum vegna þjóðlendna. Einkum lúta breytingarnar að væntanlegum starfslokum óbyggðanefndar.
- Komið til AlþingisS-236/2023· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 17. nóv. 2023 – 1. des. 2023· 16 umsagnir
Útlendingalög (alþjóðleg vernd)
Dómsmálaráðuneytið óskar umsagna um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016.
- Komið til AlþingisS-235/2023· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. nóv. 2023 – 1. des. 2023· 2 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, nr. 44/2014 (umfjöllun Persónuverndar)
Heilbrigðisráðherra áformar að gera breytingu á lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, nr. 44/2014.
- Komið til AlþingisS-231/2023· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 10. nóv. 2023 – 20. nóv. 2023· 5 umsagnir
Áform um lagasetningu um breytingu á ýmsum lögum vegna þjóðlendna (starfslok óbyggðanefndar o.fl.)
Áform um lagasetningu sem felur í sér að gera breytingar á ýmsum lögum vegna þjóðlendna. Einkum lúta breytingarnar að væntanlegum starfslokum óbyggðanefndar.
- Komið til AlþingisS-226/2023· Áform um lagasetningu· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 7. nóv. 2023 – 21. nóv. 2023· 4 umsagnir
Áform um breytingu á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk
Lagt er til að gera breytingar á lögunum í ljósi fenginnar reynslu af framkvæmd þeirra.
- Komið til AlþingisS-223/2023· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 3. nóv. 2023 – 16. nóv. 2023· 4 umsagnir
Breytingar á skipulagslögum nr. 123/2010 (Tímabundnar uppbyggingarheimildir)
Með frumvarpinu er lagt til að tímabinda uppbyggingu á grundvelli samþykkts deiliskipulags.
- Komið til AlþingisS-224/2023· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. nóv. 2023 – 10. nóv. 2023· 13 umsagnir
Frumvarp til laga um kílómetragjald vegna notkunar bifreiða (hreinorku- og tengiltvinnbifreiða)
Fjármála- og efnahagsráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um kílómetragjald vegna notkunar bifreiða (hreinorku- og tengiltvinnbifreiða).
- Komið til AlþingisS-215/2023· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. nóv. 2023 – 15. nóv. 2023· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum nr. 80/2002 (endurgreiðslur)
Frumvarpið felur í sér breytingar á 15. gr. barnaverndarlaga varðandi endurgreiðslur ríkissjóðs.
- Komið til AlþingisS-211/2023· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 31. okt. 2023 – 14. nóv. 2023· 2 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir (EES-reglur, áfastir tappar og lok á einnota plastflöskur)
Áformað er að lögfesta skilyrði um áfasta tappa og lok á einnota drykkjarílátum úr plasti sem sett eru á markað hér á landi frá og með 3. júlí 2024.
- Komið til AlþingisS-214/2023· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 31. okt. 2023 – 14. nóv. 2023· 0 umsagnir
Umgjörð til reynslu um innviði markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni (DLT Pilot Regime)
Áformuð er lagasetning um innviði markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni, innleiðing reglugerðar (ESB) 2022/858 hér á landi. Umgjörð til reynslu, á sérhæfðu sviði.
- Komið til AlþingisS-212/2023· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 31. okt. 2023 – 14. nóv. 2023· 6 umsagnir
Frumvarp til laga um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (EES-innleiðing)
Lagt er til að sett verði sérlög um ETS-kerfið ásamt innleiðingu EES gerða sem breyta tilskipun 2003/87/EB um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir vegna herts markmiðs um samdrátt í losun til 2030.
- Komið til AlþingisS-210/2023· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 31. okt. 2023 – 13. nóv. 2023· 8 umsagnir
Drög að frumvarpi um breytingar á lögreglulögum nr. 90/1996 (afbrotavarnir, vopnaburður og eftirlit með lögreglu)
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögreglulögum til að að skýra og efla heimildir lögreglu til aðgerða í þágu afbrotavarna, einkum hvað varðar skipulagða brotastarfsemi og öryggi ríkisins.
- Komið til AlþingisS-203/2023· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. okt. 2023 – 6. nóv. 2023· 0 umsagnir
Brottfall úreltra laga á fjármálamarkaði
Áformað er að fella brott fimmtíu lagabálka á fjármálamarkaði sem eru taldir úreltir eða hafa lokið hlutverki sínu.
- Komið til AlþingisS-202/2023· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. okt. 2023 – 20. nóv. 2023· 10 umsagnir
Áform um lagasetningu - Frumvarp til laga um lagareldi
Matvælaráðuneytið kynnir til samráðs áform um frumvarp til laga um lagareldi ásamt frummati á áhrifum lagasetningar.
- Komið til AlþingisS-199/2023· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. okt. 2023 – 8. nóv. 2023· 5 umsagnir
Frumvarp til breytinga á lögum um háskóla - örnám og prófgráður
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til breytinga á lögum um háskóla, nr. 63/2006.
- Komið til AlþingisS-201/2023· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. okt. 2023 – 29. okt. 2023· 13 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um lögheimili og aðsetur, lögum um mannvirki og lögum um brunavarnir
Innviðaráðuneytið kynnir til umsagnar frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum til eflingar á brunavörnum og öryggi fólks sem hefur fasta búsetu í atvinnuhúsnæði.
- Komið til AlþingisS-200/2023· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. okt. 2023 – 17. nóv. 2023· 5 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um skák
Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir áform um ný heildarlög um skák.
- Komið til AlþingisS-196/2023· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. okt. 2023 – 22. nóv. 2023· 9 umsagnir
Slit ógjaldfærra opinberra aðila
Drög að frumvarpi til heildarlaga um slit ógjaldfærra opinberra aðila.
- Komið til AlþingisS-194/2023· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. okt. 2023 – 19. okt. 2023· 1 umsögn
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997 (leyfi til prófana á vinnslu- og veiðarfærabúnaði)
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á 13. gr. laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997 um leyfi til prófana á vinnslu- og veiðarfærabúnaði.
- Komið til AlþingisS-190/2023· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 6. okt. 2023 – 27. okt. 2023· 4 umsagnir
Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um endurnot opinberra upplýsinga, nr. 45/2018 (mjög verðmæt gagnasett, rannsóknargögn o.fl.)
Með frumvarpinu er fjallað um lágmarksreglur til að auka hagnýtingu gagna sem safnað er hjá opinberum aðilum í þeim tilgangi að örva nýsköpun og til hagsbóta fyrir samfélagið í heild.
- Komið til AlþingisS-187/2023· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 4. okt. 2023 – 17. okt. 2023· 9 umsagnir
Drög að frumvarpi um breytingu á búvörulögum nr. 99/1993 (framleiðendafélög)
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á búvörulögum nr. 99/1993 í því skyni að styrkja stöðu og samtakamátt frumframleiðenda búvöru og ýta undir samvinnu og hagræðingu í vinnslu og markaðssetningu
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)