Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-199/2023 · Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Frumvarp til breytinga á lögum um háskóla - örnám og prófgráður

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til breytinga á lögum um háskóla, nr. 63/2006.

Frumvarpinu er ætlað að lögfesta heimild háskóla til að bjóða upp á svokallað örnám til námseininga ásamt því að færa reglur um prófgráður og námsframboð háskóla nær þeim viðmiðum og þeim hæfniramma sem Ísland hefur skuldbundið sig til að virða. Sá hæfnirammi byggir á Bologna samstarfinu sem myndar evrópska háskólasvæðið (EHEA). Frumvarpið er einnig liður í uppfærslu á gildandi viðmiðum um æðri menntun og prófgráður sem voru birt í Stjórnartíðindum með auglýsingu nr. 530/2011. Unnið hefur verið að breytingum á gildandi viðmiðum í nokkurn tíma og voru drög að nýjum viðmiðum um æðri menntun og prófgráður birtar í Samráðsgátt stjórnvalda í febrúar 2022. Helstu breytingar eru þær að lágmark ECTS eininga til diplómaprófs og viðbótarprófs á meistarastigi hækkar úr 30 stöðluðum námseiningum í 60 námseiningar, í öðru lagi í því að kynna og skilgreina örnám og styttri námsleiðir til ECTS eininga, sem hluta af bakkalár-, meistara- eða doktorsnámi og í þriðja lagi í því að opna á möguleika á veitingu svokallaðs M. Phil prófs á doktorsstigi.

S-199/2023· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. okt. 2023 – 8. nóv. 2023· 5 umsagnir

Frumvarp til breytinga á lögum um háskóla - örnám og prófgráður

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til breytinga á lögum um háskóla, nr. 63/2006.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-199/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 8. nóvember 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 24)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (26. janúar 2024)

Alls bárust fimm umsagnir um frumvarpið, frá Háskóla Íslands, hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands, hjúkrunarfræðideild Háskólans á Akureyri, Samtökum iðnaðarins (SI) og einstaklingi. Tekið var tillit til athugasemda, meðal annars að því er varðar hvenær frumvarpið verður að fullu komið til framkvæmda og gefinn frestur til undirbúnings.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-199/2023: Frumvarp til breytinga á lögum um háskóla - örnám og prófgráður · Alviti