Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
112 mál · sótt 27. október 2026
- Komið til AlþingisS-120/2022· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. júl. 2022 – 27. júl. 2022· 0 umsagnir
Áform um breytingar á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017
Innviðaráðuneytið birtir til umsagnar áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017.
- Komið til AlþingisS-106/2022· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. júl. 2022 – 17. ágú. 2022· 11 umsagnir
Hækkun hámarksaldurs heilbrigðisstarfsmanna í starfi hjá ríkinu
Heilbrigðisráðuneytið kynnir áform um lagasetningu til breytinga á lögum nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn, varðandi hækkun hámarksaldurs heilbrigðisstarfsmanna ríkisins í 75 ár.
- Komið til AlþingisS-115/2022· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 6. júl. 2022 – 27. júl. 2022· 9 umsagnir
Frumvarp til laga um leigubifreiðaakstur
Innviðaráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um leigubifreiðar. Markmiðið með frumvarpinu er að tryggja gott aðgengi að hagkvæmri, skilvirkri og öruggri leigubifreiðaþjónustu.
- Komið til AlþingisS-113/2022· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. júl. 2022 – 15. ágú. 2022· 1 umsögn
Áform til laga um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um vátryggingastarfsemi (búsetuskilyrði stjórnenda)
Áformað er að leggja til breytingar á búsetuskilyrðum stjórnenda í lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um vátryggingastarfsemi þannig að komið verði til móts við athugasemdir frá ESA.
- Komið til AlþingisS-109/2022· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. júl. 2022 – 29. júl. 2022· 2 umsagnir
Tóbaksvarnalög
Í kjölfar þess að sameiginlega EES-nefndin tók tóbaksvarnatilskipunina upp í EES-samninginn 4. febrúar 2022 er hafin vinna við að innleiða ákvæði þess í lög um tóbaksvarnir nr. 6/2002.
- Komið til AlþingisS-102/2022· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. jún. 2022 – 10. júl. 2022· 4 umsagnir
Rýni á erlendum fjárfestingum vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu
Setning heildarlaga um rýni á beinum erlendum fjárfestingum einkum á sérlega viðkvæmum sviðum með tilliti til þess hvort þær samræmist þjóðaröryggi og allsherjarreglu.
- Komið til AlþingisS-93/2022· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. maí 2022 – 20. jún. 2022· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um sértryggð skuldabréf og fleiri lögum (sértryggð skuldabréf)
Áformað er að setja lög til að innleiða evrópska tilskipun og reglugerð um sértryggð skuldabréf.
- Komið til AlþingisS-90/2022· Drög að stefnu· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. maí 2022 – 10. jún. 2022· 11 umsagnir
Tillaga til þingsályktunar um málstefnu íslensks táknmáls
Í drögum að þingsályktunartillögu um fyrstu opinberu málstefnuna um íslenskt táknmál er staða íslenska táknmálsins skýrð og er hún unnin í samræmi við drög að íslenskri málstefnu.
- Komið til AlþingisS-89/2022· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. maí 2022 – 12. maí 2022· 7 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 43/1999 um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi (hækkun endurgreiðsluhlutfalls vegna stærri verkefna)
Breyting á lögum nr. 43/1999 í samræmi við áherslur í stjórnarsáttmála um eflingu alþjóðlega samkeppnishæfs stuðningskerfis við framleiðslu kvikmynda- og sjónvarpsefnis.
- Komið til AlþingisS-76/2022· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. apr. 2022 – 11. apr. 2022· 2 umsagnir
Lagabreytingar vegna tilfærslu fasteignaskrár frá Þjóðskrá Íslands til Húsnæðis-og mannvirkjastofnunar (Fasteignaskrá)
Innviðaráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum vegna tilfærslu fasteignaskrár frá Þjóðskrá Íslands til Húsnæðis-og mannvirkjastofnunar.
- Komið til AlþingisS-67/2022· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. mar. 2022 – 29. mar. 2022· 10 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt (fjöldatakmörkun rafmagnsbifreiða o.fl.)
Um er að ræða breytingu á lögum um virðisaukaskatt (fjöldatakmörkun rafmagnsbifreiða o.fl.).
- Komið til AlþingisS-66/2022· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. mar. 2022 – 27. mar. 2022· 20 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna hækkunar lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs og ákvæðum um tilgreinda séreign (lágmarkstryggingavernd o.fl.)
Fjármála- og efnahagsráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til breytinga á lögum nr. 129/1997 (lágmarkstryggingavernd o.fl.)
- Komið til AlþingisS-65/2022· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 18. mar. 2022 – 26. mar. 2022· 6 umsagnir
Frumvarp til laga um heimild Reykjavíkurborgar til að skipa nefnd til að kanna starfsemi vöggustofa
Frumvarpsdrögin miða að því að veita Reykjavíkurborg heimild til að setja á fót nefnd til að kanna starfsemi vöggustofa fyrir börn sem reknar voru í Reykjavík á síðustu öld.
- Komið til AlþingisS-61/2022· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. mar. 2022 – 24. mar. 2022· 2 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 82/2019 en tillögurnar fela í sér sérstök úrræði til að koma fram skiptum eða slitum á lögaðilum sem ekki hafa sinnt skráningarskyldu skv. lögunum
- Komið til AlþingisS-60/2022· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. mar. 2022 – 21. mar. 2022· 7 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, með síðari breytingum (gjaldmiðlaáhætta lífeyrissjóða, rafræn birting)
Fjármála- og efnahagsráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til breytinga á lögum nr. 129/1997 (gjaldmiðlaáhætta lífeyrissjóða, rafræn birting yfirlita).
- Komið til AlþingisS-59/2022· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 8. mar. 2022 – 21. mar. 2022· 6 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003
Innviðaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003.
- Komið til AlþingisS-58/2022· Annað· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. mar. 2022 – 22. mar. 2022· 28 umsagnir
Drög að tillögu til þingsályktunar um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030
Drög að stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030 sem byggð er á fjórum kjarnaþáttum sett fram sem tillaga til þingsályktunar.
- Komið til AlþingisS-57/2022· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 8. mar. 2022 – 22. mar. 2022· 4 umsagnir
Drög að frumvarpi um breytingu á lögreglulögum nr. 90/1996 (afbrotvarnir og vopnaburður)
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögreglulögum til að að skýra og efla heimildir lögreglu til aðgerða í þágu afbrotavarna, einkum hvað varðar skipulagða brotastarfsemi og öryggi ríkisins.
- Komið til AlþingisS-56/2022· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. mar. 2022 – 18. mar. 2022· 0 umsagnir
Áform um breytingar á ýmsum lögum á fjármálamarkaði (innleiðing o.fl.)
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar áform um breytingar á ýmsum lögum á fjármálamarkaði ásamt frumvarpsdrögum.
- Komið til AlþingisS-55/2022· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 4. mar. 2022 – 18. mar. 2022· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003
Innviðaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi um breytingu á lögum um vaktstöð siglinga, nr. 61/2003. Frestur til að veita umsögn er til og með 18. mars 2022.
- Komið til AlþingisS-54/2022· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. mar. 2022 – 10. mar. 2022· 5 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum nr. 65/2003 (söluaðili til þrautavara)
Umhverfis- orku-, og loftslagsráðuneytið kynnir drög að frumvarpi er varðar útnefningu á söluaðila raforku til þrautavara
- Komið til AlþingisS-53/2022· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. mar. 2022 – 15. mar. 2022· 4 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011. (Íbúakosningar á vegum sveitarfélaga)
Innviðaráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til breytinga á sveitarstjórnarlögum vegna íbúakosninga sveitarfélaga.
- Komið til AlþingisS-52/2022· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. mar. 2022 – 14. mar. 2022· 5 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs nr. 45/2019
Frá þeim tíma er lög um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs tóku gildi hefur starf samskiptaráðgjafans þróast með þeim hætti að þörf er á lagabreytingum og er frumvarp þetta til þess fallið.
- Komið til AlþingisS-51/2022· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. mar. 2022 – 13. mar. 2022· 2 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja o.fl. (fjármögnun skilasjóðs, iðgjöld og fyrirkomulag TIF)
Fjármála- og efnahagsráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til breytingar á lögum nr. 70/2020 og lögum nr. 98/1999 (fjármögnun skilasjóðs, iðgjöld og fyrirkomulag TIF)
- Komið til AlþingisS-50/2022· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. mar. 2022 – 14. mar. 2022· 5 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála og lögum um fullnustu refsinga (réttarstaða brotaþola, fatlaðs fólks og aðstandenda)
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á nokkrum ákvæðum laga með það að markmiði að styrkja réttarstöðu brotaþola, fatlaðra og aðstandenda látinna einstaklinga.
- Komið til AlþingisS-46/2022· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. feb. 2022 – 8. apr. 2022· 4 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til innleiðingar í íslenskan rétt á reglugerðum (ESB) 2019/2088 (SFDR) og 2020/852 (Taxonomy).
- Komið til AlþingisS-34/2022· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. feb. 2022 – 10. mar. 2022· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um peningamarkaðssjóði
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til innleiðingar í íslenskan rétt á reglugerð (ESB) 2017/1131 um peningamarkaðssjóði (MMF).
- Komið til AlþingisS-42/2022· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. feb. 2022 – 9. mar. 2022· 2 umsagnir
Breyting á lögum um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar
Drög að frumvarpi um niðurgreiðslur vegna umhverfisvænnar orkuöflunar .
- Komið til AlþingisS-40/2022· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 22. feb. 2022 – 8. mar. 2022· 3 umsagnir
Breytingar á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018.
- Komið til AlþingisS-39/2022· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. feb. 2022 – 7. mar. 2022· 6 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun þannig að stækkanir á virkjunum sem þegar er í rekstri verði undanskildar ferli rammaáætlunar.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)