Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-90/2022 · Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Tillaga til þingsályktunar um málstefnu íslensks táknmáls

Í drögum að þingsályktunartillögu um fyrstu opinberu málstefnuna um íslenskt táknmál er staða íslenska táknmálsins skýrð og er hún unnin í samræmi við drög að íslenskri málstefnu.

Íslenskt táknmál (ÍTM) er hefðbundið minnihlutamál á Íslandi skv. lögum um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls nr. 61/2011. Íslenska ríkið og sveitarfélög skulu stuðla að þróun, rannsóknum, kennslu og útbreiðslu íslensks táknmáls og styðja að öðru leyti við menningu, menntun og fræðslu táknmálsfólks. Drög þessi voru unnin af starfshópi skipuðum fulltrúum Málnefndar um íslenskt táknmál, Félags heyrnarlausra og Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra með víðtæku samstarfi við sérfræðinga í málaflokknum. Táknmálssamfélag var boðað til umræðufundar þar sem drögin voru rýnd og tekið var tillit til athugasemda er komu fram á fundinum. Þá taka drög þessi mið af lögum um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls, tillögu til þingsályktunar um menntastefnu fyrir árin 2020–2030 og þingsályktunar um að efla íslensku sem opinbert mál á Íslandi. Áherslur í málstefnum minnihlutamála geta verið ólíkar áherslum í málstefnum meirihlutamála og byggt á öðrum forsendum. Málstefnan sem hér er lögð fram tekur til fimm meginstoða sem skipta máli fyrir málstefnu minnihlutamálsins ÍTM: A. Jákvætt viðhorf er kjarni málstefnu ÍTM og grundvöllur jafnra tækifæra B. ÍTM í máltöku táknmálsbarna er lykillinn að framtíðinni C. Rannsóknir á ÍTM skipta sköpum fyrir varðveislu menningarverðmæta D. Jöfn þátttaka í íslensku þjóðlífi fæst með fjölgun umdæma ÍTM E. Lagaumhverfi á að tryggja stöðu ÍTM Málstefnan felur í sér áhersluþætti innan hverrar meginstoðar. Til að tryggja framkvæmd áhersluþátta og að markmið málstefnunnar náist hefur verið útbúin aðgerðaáætlun. Sú áætlun miðast eingöngu við þær aðgerðir sem koma þurfa til framkvæmda á næstu þremur árum en að þeim liðnum verður málstefnan endurskoðuð. Sú endurskoðun kallar á nýja aðgerðaáætlun. Þar sem ÍTM er mál í útrýmingarhættu er afar brýnt að ríki, sveitarfélög og almenningur allur leggist á eitt við framkvæmd og eftirfylgni þessarar málstefnu.

S-90/2022· Drög að stefnu· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. maí 2022 – 10. jún. 2022· 11 umsagnir

Tillaga til þingsályktunar um málstefnu íslensks táknmáls

Í drögum að þingsályktunartillögu um fyrstu opinberu málstefnuna um íslenskt táknmál er staða íslenska táknmálsins skýrð og er hún unnin í samræmi við drög að íslenskri málstefnu.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-90/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 10. júní 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 11 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 37)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (17. ágúst 2026)

Alls bárust 11 umsagnir. Í greinargerð er fjallað um viðbrögð við athugasemdum. Tillaga til þingsályktunar um málstefnu íslensks táknmáls 2024–2027 og aðgerðaáætlun var lögð fram 1. desember 2023 og samþykkt 20. mars 2024.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (11)
  • #1Ágústa Þorbergsdóttir

    Íslensk málnefnd lýsir ánægju með drög að tillögu til þingsályktunar um málstefnu íslensks táknmáls. Tími er kominn til að Alþingi móti skýrari stefnu um stöðu táknmáls í samfélaginu og gott samstarf hefur verið með Íslenskri málnefnd og Málnefnd um íslenskt táknmál. Enn fremur er samhljómur með þessum drögum og drögum að íslenskri málstefnu 2021-2030. Íslensk málnefnd

  • #2Ólöf Garðarsdóttir

    Góðan daginn Í viðhengi er umsögn Hugvísindasviðs Háskóla Íslands um Tillögu til þingsályktunar um málstefnu íslensks táknmáls (Mál nr. 90/2022). Kær kveðja Ólöf Garðarsdóttir

  • #3Sigurlín Margrét Sigurðardóttir

    Ég fagna því að aðgerðaráætlun, sem og þingsályktunartillögunni um málastefnu íslensks táknmáls sé nú senn að verða að veruleika. í viðhengi er að finna nokkur orð um aðgerðaráætlun sem mér finnst vanta og / eða megi vera skýrari.

  • #4Valgerður Stefánsdóttir

    Það er ánægjulegt að sjá ný drög að tillögu til þingsályktunar um málstefnu íslensks táknmáls og aðgerðaráætlun sem ætlað er að tryggja áframhaldandi líf málsins. Ég lýsi yfir stuðningi við fimm meginstoðir málstefnunnar. Í viðhengi er umsögn mín um málstefnuna og ítrekuð nokkur atriði sem ég vil leggja sérstaka áherslu á. Kveðja Valgerður Stefánsdóttir

  • #5Guðný Björk Þorvaldsdóttir

    Góðan dag Í viðhengi má finna umsögn frá leikskólanum Sólborg varðandi tillögu til þingsályktunar um málstefnu íslensks táknmáls. Bestu kveðjur, Guðný Björk Þorvaldsdóttir

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-90/2022: Tillaga til þingsályktunar um málstefnu íslensks táknmáls · Alviti