Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-66/2022 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna hækkunar lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs og ákvæðum um tilgreinda séreign (lágmarkstryggingavernd o.fl.)

Fjármála- og efnahagsráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til breytinga á lögum nr. 129/1997 (lágmarkstryggingavernd o.fl.)

Í frumvarpinu felast fimm meginbreytingar. Í fyrsta lagi er lögbundin hækkun mótframlags launagreiðenda á almennum vinnumarkaði til lífeyrissjóðs úr 8% í 11,5%. Í öðru lagi er lagt til að sjóðfélagar geti ráðstafað hækkun mótframlagsins til þess er mun kallast tilgreind séreign, í stað þess að ráðstafa hækkuninni í samtryggingardeildir lífeyrissjóða. Í þriðja lagi eru tillögur að auknum heimildum til þess að nýta úrræði lífeyrissparnaðar til fyrstu kaupa á fasteign. Í fjórða lagi er lagt til að tilgreindur verði á skýran hátt sá hluti lífeyrissparnaðar sem kemur ekki til lækkunar við ákvörðun um ellilífeyri, tekjutryggingu og ráðstöfunarfé samkvæmt lögum um almannatrygginga. Í fimmta lagi er lagt til að verðlagsuppfærslur lífeyrisgreiðslna eigi sér stað einu sinni á ári í stað mánaðarlega eins og nú er.

S-66/2022· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. mar. 2022 – 27. mar. 2022· 20 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna hækkunar lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs og ákvæðum um tilgreinda séreign (lágmarkstryggingavernd o.fl.)

Fjármála- og efnahagsráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til breytinga á lögum nr. 129/1997 (lágmarkstryggingavernd o.fl.)

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-66/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 27. mars 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 20 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 690)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (11. ágúst 2022)

Frumvarpið var samþykkt á vorþingi 2022. Ein breyting var gerð á frumvarpinu í meðförum Alþingis. Um var að ræða nýjan efnismálsl. við b-lið 2. gr. frumvarpsins. Samráð við gerð frumvarpsins er rakið í ítarlegu máli í samráðskafla frumvarpsins.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (20)
  • #1BSRB

    Meðfylgjandi er umsögn BSRB. Virðingarfyllst, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur

  • #2Hólmgeir Jónsson

    Umsögn Í viðhengi frá Sjómannasambandi Íslands, Félagi skipstjórnarmanna og VM-Félagi vélstjóra og málmtæknimanna.

  • #3Samtök atvinnulífsins

    Góðan dag, Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands um málið.

  • #4Kári Magnús Ölversson
    Fyrir hönd SVG , Sjómanna og vélstjórafélags Grindavíkur vil ég koma eftirfarandi á framfæri; SVG lítur svo á að fari frumvarp þetta í gegn með óbreyttum hætti , sé enn og aftur um að ræða bæði mismunun og inngrip af hálfu stjórnvalda á kjörum og samningsstöðu sjómanna. Núverandi kjaradeila sjómanna við útgerðarmenn steytir á þessum steini, sjómenn eru sannarlega búnir að skila af sínum launum/hlutfalli í viðbótarframlag til að fá 11.5% mótframlag frá útgerð . Útgerðin , eina stétt launagreiðenda á íslandi sem greiðir 8% í stað 11.5% hefur einnig notið ívilnunar til þess að mæta kröfum sin… Lesa alla

    Fyrir hönd SVG , Sjómanna og vélstjórafélags Grindavíkur vil ég koma eftirfarandi á framfæri; SVG lítur svo á að fari frumvarp þetta í gegn með óbreyttum hætti , sé enn og aftur um að ræða bæði mismunun og inngrip af hálfu stjórnvalda á kjörum og samningsstöðu sjómanna. Núverandi kjaradeila sjómanna við útgerðarmenn steytir á þessum steini, sjómenn eru sannarlega búnir að skila af sínum launum/hlutfalli í viðbótarframlag til að fá 11.5% mótframlag frá útgerð . Útgerðin , eina stétt launagreiðenda á íslandi sem greiðir 8% í stað 11.5% hefur einnig notið ívilnunar til þess að mæta kröfum sinna launþega/sjómanna . Bráðabirgðarákvæði 7. greinar frumvarps er hrein og klár mismunun og inngrip stjórnvalda.

  • #5Bandalag háskólamanna

    Meðfylgjandi er umsögn BHM

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.