Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-42/2022 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Breyting á lögum um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar

Drög að frumvarpi um niðurgreiðslur vegna umhverfisvænnar orkuöflunar .

Samkvæmt lögum um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar eiga íbúar á svæðum sem ekki eiga kost á fullri hitun með jarðvarma rétt á niðurgreiðslu kostnaðar við hitun íbúðarhúsnæðis. Fjárhæð slíkra styrkja skal jafngilda átta ára áætluðum niðurgreiðslum sem lækka í réttu hlutfalli við orkusparnað tengdan umhverfisvænni orkuöflun og/eða aðgerðum sem leiða til bættrar orkunýtingar við húshitun. Þannig þarf notandi að leggja fram upplýsingar um orkunotkun síðustu fimm ára, meta sjálfur tæknilegan ávinning framkvæmdarinnar, lækka niðurgreiðslustuðul sinn út frá eigin áhættumati og meta aukna raforkunotkun til framtíðar til að forðast óþarfa kostnað. Með frumvarpinu er lagt til að slíkur styrkur nemi helmingi af kostnaði við kaup á búnaði til umhverfisvænnar orkuöflunar, svo sem varmadælu, og að endurgreiðslur notenda verði ekki skertar. Frumvarpið tekur mið af því að aukin notkun á búnaði til umhverfisvænnar orkuöflunar, svo sem varmadælu, sé sameiginlegt hagsmunamál notenda og ríkisins. Fyrir notendur leiðir varmadæla af sér minni raforkunotkun með tilheyrandi lækkuðum kostnaði. Þá lækkar mótframlag ríkisins vegna minni raforkunotkunar. Á sama tíma skilar varmadælan aukinni orku út í kerfið en ljóst er að losa þarf raforku til nauðsynlegra orkuskipta á næstu árum.

S-42/2022· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. feb. 2022 – 9. mar. 2022· 2 umsagnir

Breyting á lögum um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar

Drög að frumvarpi um niðurgreiðslur vegna umhverfisvænnar orkuöflunar .

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-42/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 9. mars 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 582)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (7. nóvember 2025)

Samþykkt sem lög nr. 69/2022 á Alþingi

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
  • #1Sveitarfélagið Skagafjörður

    Á 1005. fundi byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 2. mars 2022 var tekið fyrir mál 42/2022 til samráðs, Breyting á lögum um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar. Byggðarráð fagnar frumvarpinu og lýsir yfir stuðningi við framgöngu þess. F.h. byggðarráðs Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri

  • #2Hörgársveit

    Hörgársveit fagnar frumvarpinu og styður eindregið framgang þess.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-42/2022: Breyting á lögum um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar · Alviti