Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-76/2022 · Innviðaráðuneytið

Lagabreytingar vegna tilfærslu fasteignaskrár frá Þjóðskrá Íslands til Húsnæðis-og mannvirkjastofnunar (Fasteignaskrá)

Innviðaráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum vegna tilfærslu fasteignaskrár frá Þjóðskrá Íslands til Húsnæðis-og mannvirkjastofnunar.

Frumvarp þetta mælir fyrir um breytingar á lögum vegna flutnings fasteignaskrár frá Þjóðskrá Íslands til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Tilfærslan hefur og fyrst og fremst þann tilgang að þjónusta á vegum hins opinbera á sviði húsnæðismála verður aukin og samhæfð, ásamt því sem breytingin veitir stjórnvöldum aukna yfirsýn til að gera markvissari aðgerðir til að ná jafnvægi á húsnæðismarkaði. Þjóðskrá Íslands mun áfram veita öfluga þjónustu við skráningu einstaklinga í grunnskrám landsins og veitir breytingin jafnframt tækifæri til að skilgreina framtíðarsýn Þjóðskrár með skýrum hætti og með skýrum skilum á milli stofnananna. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001, lögum um Þjóðskrá Íslands nr. 70/2018 og lögum um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun nr. 137/2019, í þeim tilgangi að færa ábyrgð á fasteignaskrá frá Þjóðskrá Íslands til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Er hér aðallega um orðalagsbreytingar að ræða auk þess sem lagt er til að í lögum um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun verði verkefni tengd skráningu og mati fasteigna tilgreind.

S-76/2022· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. apr. 2022 – 11. apr. 2022· 2 umsagnir

Lagabreytingar vegna tilfærslu fasteignaskrár frá Þjóðskrá Íslands til Húsnæðis-og mannvirkjastofnunar (Fasteignaskrá)

Innviðaráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum vegna tilfærslu fasteignaskrár frá Þjóðskrá Íslands til Húsnæðis-og mannvirkjastofnunar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-76/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 11. apríl 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 684)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (7. júlí 2023)

Vísað er til samráðskafla í greinargerð með frumvarpi til laganna sem lögð voru fram á Alþingi 17. maí 2022, sjá hlekk. Lögin voru samþykkt 15. júní 2022.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
  • #1Sævar Þór Halldórsson
    Ég mæli með því að fyrst það er verið að taka smá til með þessum lögum. t.d. að taka matrikel kerfið af. Þá mæli ég með því að 3. mgr. 17. gr laga um skráningu og mat fasteigna 6/2001 verði breytt. Stofnskjal er ekki lengur forsenda skráningar í fasteignaskrá. Það var fellt út með lögum nr. 83/2008. https://www.althingi.is/altext/stjt/2008.083.html Forsenda þess að fasteign sé skráð í fasteignaskrá núorðið er sú að þinglýsingarstjóri/fulltrúi staðfesti fasteignina og eignarhald hennar. Því mætti mgr. vera orðuð: „Áður en heimild er veitt til mannvirkjagerðar á eignarlóð skal sveitarstjórn… Lesa alla

    Ég mæli með því að fyrst það er verið að taka smá til með þessum lögum. t.d. að taka matrikel kerfið af. Þá mæli ég með því að 3. mgr. 17. gr laga um skráningu og mat fasteigna 6/2001 verði breytt. Stofnskjal er ekki lengur forsenda skráningar í fasteignaskrá. Það var fellt út með lögum nr. 83/2008. https://www.althingi.is/altext/stjt/2008.083.html Forsenda þess að fasteign sé skráð í fasteignaskrá núorðið er sú að þinglýsingarstjóri/fulltrúi staðfesti fasteignina og eignarhald hennar. Því mætti mgr. vera orðuð: „Áður en heimild er veitt til mannvirkjagerðar á eignarlóð skal sveitarstjórn hlutast til um að fasteign verði skráð í fasteignaskrá“ Þó eru eldri eignir skráðar í fasteignaskrá en eru ekki með staðfest eignarhald í bókum sýslumanns. Þá væri kannski réttara að hafa mgr. svona: „Áður en heimild er veitt til mannvirkjagerðar á eignarlóð skal sveitarstjórn hlutast til um að fasteign verði skráð í fasteignaskrá og sé með staðfest eignarhald í bókum sýslumanns.“ Með von um góðar móttökur, Sævar Þór Landfræðingur.

  • #2Samtök atvinnulífsins

    Góðan dag, Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-76/2022: Lagabreytingar vegna tilfærslu fasteignaskrár frá Þjóðskrá Íslands til Húsnæðis-og mannvirkjastofnunar (Fasteignaskrá) · Alviti