Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-102/2022 · Forsætisráðuneytið

Rýni á erlendum fjárfestingum vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu

Setning heildarlaga um rýni á beinum erlendum fjárfestingum einkum á sérlega viðkvæmum sviðum með tilliti til þess hvort þær samræmist þjóðaröryggi og allsherjarreglu.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: nóvember).

Rýni fjárfestingar (e. investment screening) felur í þessu samhengi í sér ítarlega og faglega greiningu stjórnvalda á því hvort af tiltekinni beinni erlendri fjárfestingu stafi hætta fyrir þjóðaröryggi eða allsherjarreglu. Meginstef lagareglna um fjárfestingarýni er að samþætta sjónarmið um mikilvægi erlendrar fjárfestingar fyrir efnahagslífið og nauðsyn þess að erlend fjárfesting í þýðingarmiklum innviðum og á öðrum viðkvæmum og samfélagslega mikilvægum sviðum samræmist þjóðaröryggi og allsherjarreglu. Fjárfestingarýni er þannig ekki ætlað að vera takmörkun á erlendri fjárfestingu almennt, heldur er markmiðið að ganga úr skugga um að einstakar erlendar fjárfestingar á tilteknum viðkvæmum samfélagssviðum leiði ekki af sér öryggisógn. Færa má sannfærandi rök fyrir því að fyrirkomulag af þessu tagi sé almennt fallið til að auka traust til erlendra fjárfestinga á samfélagslega mikilvægum sviðum, til hagsbóta fyrir atvinnulífið og samfélagið allt. Þá má, með hliðsjón af erlendri réttarþróun á undanförnum árum, leiða rökum að því að reglur um fjárfestingarýni geti nú talist sjálfsagður þáttur í lagaumhverfi ríkja hvað varðar erlendar fjárfestingar. Hvað varðar þróun á þessu sviði innan Evrópusambandsins hafa t.a.m. alls 18 ESB-ríki tilkynnt framkvæmdastjórn ESB um löggjöf á sviði fjárfestingarýni sem þau hafa sett (Danmörk, Finnland, Þýskaland, Spánn, Frakkland, Ítalía, Lettland, Litháen, Ungverjaland, Tékkland, Malta, Holland, Austurríki, Pólland, Portúgal, Rúmenía, Slóvenía og Slóvakía). Fleiri ríki, m.a. Svíþjóð, hyggja á setningu laga um fjárfestingarýni í náinni framtíð.

S-102/2022· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. jún. 2022 – 10. júl. 2022· 4 umsagnir

Rýni á erlendum fjárfestingum vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu

Setning heildarlaga um rýni á beinum erlendum fjárfestingum einkum á sérlega viðkvæmum sviðum með tilliti til þess hvort þær samræmist þjóðaröryggi og allsherjarreglu.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-102/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 10. júlí 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 726)
Niðurstöður samráðs (18. október 2022)

Sjá meðfylgjandi skjal þar sem athugasemdir eru reifaðar og við þeim brugðist.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
  • #1Egill Másson
    Góðan daginn. Umsögn mín lýtur sérstaklega að íþyngjandi áhrifum á sprotafyrirtæki í djúptækni. Undir greininni "Sérlega viðkvæmir geirar og starfsemi" er töluliður 4 sérlega víðtækur. 4. Fyrirtæki sem starfa við framleiðslu eða þróun á mikilvægri tækni, annarri en fellur undir aðra töluliði þessa ákvæðis. Í textanum fyrir neðan kemur fram: "Undir 4. tölul. getur t.d. fallið gervigreind, þróuð þjarkatækni og drónatækni, þrívíddarprentun til framleiðslu íhluta til iðnaðarnota, hálfleiðarar, kjarnorkutækni, skammtatækni, nanótækni, líftækni, flug- og geimtækni, tækni til varðve… Lesa alla

    Góðan daginn. Umsögn mín lýtur sérstaklega að íþyngjandi áhrifum á sprotafyrirtæki í djúptækni. Undir greininni "Sérlega viðkvæmir geirar og starfsemi" er töluliður 4 sérlega víðtækur. 4. Fyrirtæki sem starfa við framleiðslu eða þróun á mikilvægri tækni, annarri en fellur undir aðra töluliði þessa ákvæðis. Í textanum fyrir neðan kemur fram: "Undir 4. tölul. getur t.d. fallið gervigreind, þróuð þjarkatækni og drónatækni, þrívíddarprentun til framleiðslu íhluta til iðnaðarnota, hálfleiðarar, kjarnorkutækni, skammtatækni, nanótækni, líftækni, flug- og geimtækni, tækni til varðveislu orku til iðnaðarnota, til orkuumbreytingar og orkuflutninga, tækni tengd umhverfisvernd og aðgerðum gegn loftslagsbreytingum, o.fl. " Flestir þessara þátta lúta að því sem kalla mætti djúptækni. Sprotafyrirtæki sem vinna að vörum sem byggja á djúptækni reyna gjarnan að sækja fjármagn til sérhæfðra erlendra fjárfestingasjóða sem hafa djúpa sérþekkingu og víðtækt tengslanet á afmörkuðu sviði. Það er afar mikilvægt en ekki auðvelt að sækja erlent fjármagn til slíkra fyrirtækja og ég vil vara við því að setja upp hindranir á þeirri vegferð. Slíkar hindranir koma sérlega illa við sprotafyrirtæki sem hafa takmarkaða umgjörð til að fást við flókin regluverk. Ég vil því mælast til að skilgreiningin verði þrengd eða þessi töluliður felldur niður þannig að lögin takmarkist við tækni sem varðar þjóðaröryggi. Til vara verði tekið sérstakt tillit til sprotafyrirtækja.

  • #2HS Orka hf.

    Meðfylgjandi er umsögn HS Orku hf.

  • #3Samtök atvinnulífsins

    Góðan daginn. Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins, Samtaka iðnaðarins, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Samorku. Bestu kveðjur.

  • #4Viðskiptaráð Íslands

    Viðhengd er umsögn Viðskiptaráðs Íslands.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-102/2022: Rýni á erlendum fjárfestingum vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu · Alviti