Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-56/2022 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Áform um breytingar á ýmsum lögum á fjármálamarkaði (innleiðing o.fl.)

Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar áform um breytingar á ýmsum lögum á fjármálamarkaði ásamt frumvarpsdrögum.

Áformin fela í sér innleiðingu á sex Evrópugerðum sem allar varða viðskipti á fjármálamörkuðum. Helstu fyrirhugaðar breytingar frá gildandi rétti: 1. Breytingar á lögum um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021. a. Gildissvið reglna um hámörk á stöður er þrengt með þeim hætti að nú nær það aðeins til landbúnaðarhárvöruafleiðna og veigamikilla og mikilvægra hrávöruafleiðna sem eru í viðskiptum á viðskiptavettvangi og OTC-samninga sem hafa sömu efnahagslegu áhrif. b. Nýjar undanþágur eru kynntar til sögunnar frá reglum um hámörk á stöður fyrir verðbréfaðar afleiður og stöður sem stafa frá viðskiptum sem framkvæmd eru til að uppfylla skyldur til að veita seljanleika. Auk þess er kveðið á um nýja, takmarkaða undanþágu vegna áhættuvarna (e. hedging) fyrir ófjárhagslega aðila innan almennrar viðskiptasamstæðu (e. predominantly commercial group). c. Þremur framseldum reglugerðum ESB er veitt lagagildi. Þær fela í sér smávægilegar breytingar á framseldri reglugerð ESB 2017/565, sem er veitt lagagildi í 3. gr. laganna, hvað varðar 1) hvað telst viðskipti fyrir eigin reikning (reglugerð ESB 2017/2294), 2) viðmiðunarmörk fyrir vikulegar stöðutilkynningar vegna staðna í afleiðuviðskiptum (reglugerð ESB 2021/527) og 3) ákveðin skilyrði sem þarf að uppfylla til að fá markaðastorg fjármálagerninga skráð sem vaxtarmarkað fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki (reglugerð ESB 2019/1011). 2. Breytingar á lögum um markaðssvik, nr. 60/2021, og lögum um lýsingu verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, nr. 14/2020. - Með breytingunum er verið að draga úr ýmsum formkröfum til vaxtarmarkaða, og þar af leiðandi kostnaði við slíka skráningu, á sama tíma og gætt er að heilleika (e. integrity) markaðarins og fjárfestavernd. 3. Breytingar á lögum um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði, nr. 24/2017, og lögum um lánshæfismatsfyrirtæki, nr. 50/2017. - Um er að ræða smávægilegar breytingar á ákvæðum um upplýsingagjöf lögbærra yfirvalda, hér á landi Seðlabanka Íslands, til Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar (ESMA) og Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunarinnar (EIOPA). 4. Breytingar á lögum um yfirtökur, nr. 108/2007. - Í frumvarpinu er lagt til að nokkrar greinar laganna sem eiga ekki lengur við verði felldar brott. Nánari efnisumfjöllun er að finna í 2. og 3. kafla greinargerðar meðfylgjandi frumvarpsdraga.

S-56/2022· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. mar. 2022 – 18. mar. 2022· 0 umsagnir

Áform um breytingar á ýmsum lögum á fjármálamarkaði (innleiðing o.fl.)

Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar áform um breytingar á ýmsum lögum á fjármálamarkaði ásamt frumvarpsdrögum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-56/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 18. mars 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 532)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (17. ágúst 2022)

Engar umsagnir bárust um málið.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-56/2022: Áform um breytingar á ýmsum lögum á fjármálamarkaði (innleiðing o.fl.) · Alviti