Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-58/2022 · Heilbrigðisráðuneytið

Drög að tillögu til þingsályktunar um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030

Drög að stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030 sem byggð er á fjórum kjarnaþáttum sett fram sem tillaga til þingsályktunar.

Stefnur og aðgerðaáætlanir í heilbrigðismálum hafa, frá árinu 2019, tekið mið af þingsályktun Alþingis um heilbrigðisstefnu til 2030 (þskj. 835, 509. mál á 149. löggjafarþingi) og lýðheilsustefnu til ársins 2030 (þskj. 1108, 645. mál á 151. löggjafarþingi). Við mótun í geðheilbrigðismálum til ársins 2030 var engin undantekning gerð á því og leggur hún þar af leiðandi bæði áherslu á grunngildi sem hvetja til einstaklingsmiðaðrar heilbrigðisþjónustu á félagslegum grunni, sem og stuðning við heilsueflingu á öllum æviskeiðum. Með samþykkt heilbrigðisstefnu til 2030 er nú kominn leiðarvísir að uppbyggingu á heildstæðu, öflugu og enn betra heilbrigðiskerfi á Íslandi til framtíðar fyrir alla. Lögð er áhersla á að íslensk heilbrigðisþjónusta verði á heimsmælikvarða og lýðheilsustarf með áherslu á heilsueflingu og forvarnir verði hluti af allri þjónustu með áherslu á heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað fólks í heilbrigðiþjónustu. Öll heilbrigðisþjónusta skuli vera örugg, árangursrík og aðgengileg. Helstu straumar og stefnur í geðheilbrigðismálum á heimsvísu sýna að á Íslandi eins og í öðrum löndum eru það sameiginlegir hagsmunir þjóða að auka áherslu á lýðheilsu, forvarnir og geðheilbrigðisþjónustu. Þetta er í takt við áhersluatriði í fyrrgreindum stjórnarsáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Þrátt fyrir töluverðar framfarir í geðheilbrigðismálum á undanförnum árum eru vísbendingar um að Íslendingar standi frammi fyrir frekari áskorunum og hindrunum sem ryðja þurfi úr vegi til að ná árangursríkum framförum til framtíðar. Samantekt niðurstaðna Geðheilbrigðisþings 2020 ásamt fyrri þverfaglegum greiningum og skýrslum um málaflokkinn sýna að það skortir heildstæða og samhæfða nálgun í geðheilbrigðismálum allt frá geðrækt, forvörnum og snemmbærum úrræðum til geðheilbrigðisþjónustu á öllum stigum og á milli velferðarþjónustukerfa og við dómskerfi. Þjónusta milli heilbrigðisþjónustustiga er að einhverju leyti brotakennd og ósamhæfð, samþætting við félagsþjónustu, skólaþjónustu eða aðra opinbera þjónustu er takmörkuð og skortur er á þverfaglegum mannauð í geðheilbrigðisþjónustu á öllum stigum sem áríðandi er að ráða bót á. Brýnt er að finna lausnir á ofangreindum áskorunum til umbóta fyrir fólkið í landinu. Framsetning tillögu til þingsályktunar um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030 tekur þannig mið af því og er sett fram með hliðsjón af fjórum kjarnaþáttum og áherslum sem móta á aðgerðir og sérstakar aðgerðir að. Áherslur til framtíðar í geðheilbrigðismálum þurfa að vera á jafnt og greitt aðgengi að einfaldri, skilvirkri og notendamiðaðri geðheilbrigðisþjónustu sem byggir á bestu mögulegu gagnreyndu meðferð og endurhæfingu hverju sinni, gæðaviðmiðum og nýsköpun og er veitt af hæfu starfsfólki.

S-58/2022· Annað· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. mar. 2022 – 22. mar. 2022· 28 umsagnir

Drög að tillögu til þingsályktunar um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030

Drög að stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030 sem byggð er á fjórum kjarnaþáttum sett fram sem tillaga til þingsályktunar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-58/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 22. mars 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 28 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 575)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (15. júlí 2022)

Umrædd tillaga til þingsályktunar var lögð fram á 152. löggjafarþingi og samþykkt með áorðnum breytingum velferðarnefndar hinn 15. júní 2022.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (28)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-58/2022: Drög að tillögu til þingsályktunar um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030 · Alviti