Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 43/1999 um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi (hækkun endurgreiðsluhlutfalls vegna stærri verkefna)
Breyting á lögum nr. 43/1999 í samræmi við áherslur í stjórnarsáttmála um eflingu alþjóðlega samkeppnishæfs stuðningskerfis við framleiðslu kvikmynda- og sjónvarpsefnis.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-89/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 12. maí 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 692)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (6. október 2022)
Frumvarp samþykkt sem lög nr. 76/2022 um breytingu á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, nr. 43/1999 (hækkun hlutfalls endurgreiðslu).
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)
- #1Lýður Árnason
Hækkandi endurgreiðsluhlutfall til kvikmyndagerðar eru fagnaðarefni. Mæli þó með einni breytingu, sem sé þeirri að fella niður lágmarksviðmið kostnaðar. Það skapar mismunun sem kemur mest niður á innlendu kvikmyndagerðarfólki sem hefur að jafnaði minna bolmagn til fjármögnunar en útlend risafyrirtæki. Með því að fella niður þetta 200 milljóna króna lágmark sætu allir við sama borð án þess að hvatinn fyrir erlenda aðila til að koma hingað með verkefni sín yrði minni. Kostnaðarauka við þessa breytingu tel ég lítinn eða engan þar sem hvatinn til að hækka kostnaðaráætlanir upp í lágmark… Lesa alla
Hækkandi endurgreiðsluhlutfall til kvikmyndagerðar eru fagnaðarefni. Mæli þó með einni breytingu, sem sé þeirri að fella niður lágmarksviðmið kostnaðar. Það skapar mismunun sem kemur mest niður á innlendu kvikmyndagerðarfólki sem hefur að jafnaði minna bolmagn til fjármögnunar en útlend risafyrirtæki. Með því að fella niður þetta 200 milljóna króna lágmark sætu allir við sama borð án þess að hvatinn fyrir erlenda aðila til að koma hingað með verkefni sín yrði minni. Kostnaðarauka við þessa breytingu tel ég lítinn eða engan þar sem hvatinn til að hækka kostnaðaráætlanir upp í lágmarksviðmiðið er augljós. Takk fyrir mig.
- #2Tómas Örn Tómasson
Góð tillaga sem vonandi verður að veruleika. Held reyndar að það þurfi að endurskoða lámarksfjölda tökudaga (en skv. frumvarpinu er miðað við 30 tökudaga) … Ef lagabreytingin á að ná í stóru verkefnin mætti frekar byrja á því, á meðan alvöru kvikmyndaver eru ekki til staðar í landinu, að miða við fjölda daga sem t.d. yfir 50 starfsmenn vinna í verkefninu. Undirbúningurinn er oft langur og mannfrekur þótt tökudagarnir sjálfir séu hlutfallslega fáir. Þegar reynsla er komin á viðbótar endurgreiðsluna mætti endurskoða þetta atriði og fara að miða við einhvern raunhæfan fjölda tökudaga, og er þ… Lesa alla
Góð tillaga sem vonandi verður að veruleika. Held reyndar að það þurfi að endurskoða lámarksfjölda tökudaga (en skv. frumvarpinu er miðað við 30 tökudaga) … Ef lagabreytingin á að ná í stóru verkefnin mætti frekar byrja á því, á meðan alvöru kvikmyndaver eru ekki til staðar í landinu, að miða við fjölda daga sem t.d. yfir 50 starfsmenn vinna í verkefninu. Undirbúningurinn er oft langur og mannfrekur þótt tökudagarnir sjálfir séu hlutfallslega fáir. Þegar reynsla er komin á viðbótar endurgreiðsluna mætti endurskoða þetta atriði og fara að miða við einhvern raunhæfan fjölda tökudaga, og er þá kannski komin einhver alvöru eftirspurn eftir kvikmyndaveri sem ræður við svona verkefni, sem þá fjölgað tökudögunum á Íslandi;) …. bara smá hugmynd úr sal😜 Undirritaður er sagnfræðimenntaður kvikmyndatökumaður sem hefur unnið í kvikmyndagerð fá 1994. Virðingarfyllst, Tómas Örn Tómasson www.tomastomasson.com tomasorntomasson@gmail.com
- #3Þóra Hallgrímsdóttir
Nefnd um endurgreiðslur skv. lögum nr. 43/1999 sendir inn eftirfarandi bókun úr fundargerð vegna fundar nefndarinnar í dag. "Nýtt frumvarp til breytinga á lögum nr. 43/1999. Á fundi nefndarinnar í dag, 12. maí 2022, var farið yfir efnisatriði frumvarps í samráðsgátt stjórnvalda um tillögur til breytinga á endurgreiðsluhlutfalli í 35% vegna verkefna sem uppfylla tiltekin skilyrði. Þau þrjú skilyrði sem sett eru fram í 1. gr. frumvarpsins eru þau í fyrsta lagi að framleiðslukostnaður sem falli til við framleiðslu hér á landi nái að lágmarki 200 m.kr., í öðru lagi að tökudagar, eftir atvikum e… Lesa alla
Nefnd um endurgreiðslur skv. lögum nr. 43/1999 sendir inn eftirfarandi bókun úr fundargerð vegna fundar nefndarinnar í dag. "Nýtt frumvarp til breytinga á lögum nr. 43/1999. Á fundi nefndarinnar í dag, 12. maí 2022, var farið yfir efnisatriði frumvarps í samráðsgátt stjórnvalda um tillögur til breytinga á endurgreiðsluhlutfalli í 35% vegna verkefna sem uppfylla tiltekin skilyrði. Þau þrjú skilyrði sem sett eru fram í 1. gr. frumvarpsins eru þau í fyrsta lagi að framleiðslukostnaður sem falli til við framleiðslu hér á landi nái að lágmarki 200 m.kr., í öðru lagi að tökudagar, eftir atvikum eftirvinnslutímabil, séu að lágmarki 30 dagar og í þriðja lagi að fjöldi starfsmanna sem vinni beint að verkefninu sé að lágmarki 50 talsins. Nefndin bendir á þessu stigi aðallega á að ákvæðið þurfi að vera skýrara hvað varðar skilyrði tvö og þrjú. Í fyrrnefndri 1. gr. frumvarpsins telur nefndin að í athugasemdum með frumvarpinu séu takmarkaðar skýringar á því hvernig eigi að reikna dagafjölda umfram sérstaka tökudaga. Heimild til að reikna endurvinnslutímabil inn í þann dagafjölda er háð túlkun og telur nefndin ákvæðið þurfa að vera skýrara hvað þetta varðar. Einnig er bent á að ekki sé skýrt við hvað sé átt með orðinu „starfsmenn“ í frumvarpinu. Þar á nefndin við að við túlkun á þriðja skilyrði ákvæðisins um 50 starfsmenn þurfi að vera skýrara hvort sé átt jafnt við launþega og verktaka, hvort starfshlutfall skipti máli eða hvað það þýði að vinna „beint að verkefninu“. Nefndin telur til bóta að bæði þessi skilyrði séu skýrari í lagatexta og/eða athugasemdum og þar með meira gagnsæi fyrir umsækjendur sem og fyrir nefndina sem þarf að gæta þess við afgreiðslu sína að skilyrðin séu uppfyllt. Einnig gerir nefndin athugasemdir við 2. gr. frumvarpsins varðandi gildistöku og telur þurfa að skýra frekar hvort þau verkefni sem hafa þá þegar fengið vilyrði fyrir endurgreiðslu þegar lögin taka gildi geti sótt 35% endurgreiðslu að uppfylltum skilyrðum laganna þegar til útborgunar þeirra vilyrða kemur, eða hvort það séu einungis verkefni sem fái vilyrði eftir gildistöku laganna." F.h. nefndarinnar, Þóra Hallgrímsdóttir, formaður.
- #4Ólafur Jóhannesson
Þetta er hvetjandi frumvarp og afar jákvætt fyrir sívaxandi starfsgrein. Ég hef starfað við kvikmyndagerð í rúmlega tuttugu ár og vinn bæði með sjálfstæðum framleiðendum, sem og ungu fólki sem er að taka sín fyrstu skref í kvikmyndagerð. Mín ósk varðandi frumvarpið, og það sem ég hef heyrt frá kollegum mínum er að þetta verði gert með þverskurðar-sniði. Að það verði 35% endurgreiðsla á öllum verkefnum óháð upphæðarviðmiði í framleiðslukostnaði. Grasrótin að stórum verkefnum á Íslandi, liggur hjá óháðu kvikmyndagerðarfólki og ekki síður hjá ungu fólki sem er að stíga sín fyrstu skref í st… Lesa alla
Þetta er hvetjandi frumvarp og afar jákvætt fyrir sívaxandi starfsgrein. Ég hef starfað við kvikmyndagerð í rúmlega tuttugu ár og vinn bæði með sjálfstæðum framleiðendum, sem og ungu fólki sem er að taka sín fyrstu skref í kvikmyndagerð. Mín ósk varðandi frumvarpið, og það sem ég hef heyrt frá kollegum mínum er að þetta verði gert með þverskurðar-sniði. Að það verði 35% endurgreiðsla á öllum verkefnum óháð upphæðarviðmiði í framleiðslukostnaði. Grasrótin að stórum verkefnum á Íslandi, liggur hjá óháðu kvikmyndagerðarfólki og ekki síður hjá ungu fólki sem er að stíga sín fyrstu skref í starfsgreininni. Þessir aðilar eru baklandið og gríðarlega mikilvægur hlekkur í að undirbúa fólk fyrir stærri verkefni oftar en ekki í verkefnum undir nefndu viðmiði (200 millj. kr.). Að hafa 35% endurgreiðsluhlutfall á öll kvikmynda-verkefni myndi ekki einungis gæta að jafnræði í starfsgreininni heldur einnig margfalda fjölda stærri verkefna í framtíðinni.
- #5RVK Studios ehf.
Tökum undir alla umsögn #3 frá Þóru Hallgrímsdóttur. Til að meta breytingarnar þyrfti að skýra betur skilyrðin í greinum 2-3. Þá viljum við einnig leggja til breytingu á 2.gr. varðandi verkefnatímann, að auk eftirvinnslu verði heimilt að telja með lágmarks dagafjölda formlegs undirbúnings (e. pre-production) enda stór og mikilvægur hluti framleiðsluferlisins unninn á þeim tíma. Af gefnu tilefni. Við gerum athugasemd við umsögn #2 frá Tómasi Tómassyni varðandi “vöntun á alvöru kvikmyndaveri á Íslandi”. RVK Studios rekur kvikmyndaver í Gufunesi sem hefur vakið athygli víða um heim, sinnt f… Lesa alla
Tökum undir alla umsögn #3 frá Þóru Hallgrímsdóttur. Til að meta breytingarnar þyrfti að skýra betur skilyrðin í greinum 2-3. Þá viljum við einnig leggja til breytingu á 2.gr. varðandi verkefnatímann, að auk eftirvinnslu verði heimilt að telja með lágmarks dagafjölda formlegs undirbúnings (e. pre-production) enda stór og mikilvægur hluti framleiðsluferlisins unninn á þeim tíma. Af gefnu tilefni. Við gerum athugasemd við umsögn #2 frá Tómasi Tómassyni varðandi “vöntun á alvöru kvikmyndaveri á Íslandi”. RVK Studios rekur kvikmyndaver í Gufunesi sem hefur vakið athygli víða um heim, sinnt fjölda erlendra verkefna og þykir aðstaðan með þeim betri í Evrópu. Fh. RVK Studios Baltasar Kormákur
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.