Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-113/2022 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Áform til laga um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um vátryggingastarfsemi (búsetuskilyrði stjórnenda)

Áformað er að leggja til breytingar á búsetuskilyrðum stjórnenda í lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um vátryggingastarfsemi þannig að komið verði til móts við athugasemdir frá ESA.

Lagt verður til að ríkisborgarar ríkja sem eru aðilar að EES-samningnum eða stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu og Færeyja verði undanþegnir búsetuskilyrðum til stjórnarmanna og framkvæmdastjóra fjármálafyrirtækja og vátryggingafélaga. Ríkisborgarar þessara ríkja munu því ekki þurfa að vera búsettir á Evrópska efnahagssvæðinu eða í OECD ríki til að geta verið stjórnarmenn í fjármálafyrirtækjum og vátryggingafélögum. Að sama skapi munu framkvæmdastjórar ekki þurfa að vera búsettir á Evrópska efnahagssvæðinu til að geta starfað sem slíkir í sömu fyrirtækjum.

S-113/2022· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. júl. 2022 – 15. ágú. 2022· 1 umsögn

Áform til laga um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um vátryggingastarfsemi (búsetuskilyrði stjórnenda)

Áformað er að leggja til breytingar á búsetuskilyrðum stjórnenda í lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um vátryggingastarfsemi þannig að komið verði til móts við athugasemdir frá ESA.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-113/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 15. ágúst 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 381)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (26. ágúst 2024)

Ein umsögn barst. Arion banki gerði athugasemd við að áformin geri ekki ráð fyrir sams konar undanþágu frá búsetuskilyrðum stjórnarmanna og framkvæmdastjóra í lífeyrissjóðum. Telur bankinn að slík breyting á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, sé bæði sanngjörn og eðlileg. Þegar litið er til sérstöðu lífeyrissjóðanna sem vörsluaðila mikilla fjármuna í eigu almennings og þeirra tafa sem breytingar á lögum nr. 129/1997 gætu haft á frumvarpið þykir ekki heppilegt að leggja til slíkar breytingar á þeim lögum að svo stöddu.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-113/2022: Áform til laga um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um vátryggingastarfsemi (búsetuskilyrði stjórnenda) · Alviti