Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-39/2022 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun þannig að stækkanir á virkjunum sem þegar er í rekstri verði undanskildar ferli rammaáætlunar.

Í frumvarpinu er lögð til sú breyting á 3. mgr. 3. gr. laga um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011, að stækkanir á virkjunum sem ekki hafa áhrif á óröskuð svæði þurfi ekki að fara í gegnum málsmeðferð rammaáætlunar. Telja verður að með því að undanskilja stækkanir á virkjunum því ferli sem lög nr. 48/2011 kveða á um verði hægt að hraða aflaukningu þeirra virkjana sem þegar eru í rekstri á landsvæðum sem búið er að taka ákvörðun um að heimila virkjanarekstur á. Þannig er hægt að auka orkuvinnslu í landinu og stuðla að hraðari orkuskiptum eins og markmið er um.

S-39/2022· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. feb. 2022 – 7. mar. 2022· 6 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun þannig að stækkanir á virkjunum sem þegar er í rekstri verði undanskildar ferli rammaáætlunar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-39/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 7. mars 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 583)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (4. nóvember 2025)

Frumvarpið var lagt fram á Alþingi á 152. löggjafarþingi. Sjá niðurstöður samráðs í 5. kafla greinargerðar á eftirfarandi slóð: https://www.althingi.is/altext/152/s/0825.html Frumvarpið var samþykkt sem lög frá Alþingi 15. júní 2022.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-39/2022: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011 · Alviti