Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
149 mál · sótt 27. október 2026
- Komið til AlþingisS-118/2023· Áform um lagasetningu· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 22. jún. 2023 – 21. júl. 2023· 2 umsagnir
Breytingar á lögum um fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir
Lagt er til að bæta við lög nr. 38/2018 reglugerðarheimildum svo ráðherra sé heimilt að kveða með nánari hætti á um ýmis atriði laganna.
- Ekki komið til AlþingisS-116/2023· Áform um lagasetningu· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 22. jún. 2023 – 20. júl. 2023· 2 umsagnir
Breytingar á lögum um Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu
Markmið fyrirhugaðrar lagasetningar er að uppfæra núgildandi lög nr. 160/2008 til samræmis við þróun í málaflokki fatlaðs fólks og breytt lagaumhverfi, og stuðla að samræmi og skýrleika í löggjöf.
- Ekki komið til AlþingisS-113/2023· Áform um lagasetningu· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. jún. 2023 – 20. júl. 2023· 5 umsagnir
Breytingar á lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga
Þær breytingar sem áform standa til að gera lúta að því að bæta úrræðið um greiðsluaðlögun einstaklinga í ljósi reynslunnar og gera það skýrara og skilvirkara til hagsbóta fyrir umsækjendur.
- Komið til AlþingisS-110/2023· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. jún. 2023 – 21. júl. 2023· 12 umsagnir
Frumvarp um Mannréttindastofnun Íslands
Frumvarpið felur í sér að Mannréttindastofnun Íslands verði komið á fót. Stofnunin mun sinna hlutverki sjálfstæðrar innlendrar mannréttindastofnunar hér á landi.
- Komið til AlþingisS-103/2023· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. maí 2023 – 13. jún. 2023· 20 umsagnir
Sameining stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins
Áformað er að vinna frumvörp til laga um Loftslagsstofnun, Náttúruverndar- og minjastofnun og Náttúruvísindastofnun í tilefni af sameiningaráformum sem varða 10 stofnanir ráðuneytisins.
- Komið til AlþingisS-85/2023· Annað· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. apr. 2023 – 8. maí 2023· 4 umsagnir
Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar 2023-2027
Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir drög að tillögu til þingsályktunar um nýja framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar fyrir árin 2023-2027.
- Komið til AlþingisS-83/2023· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. apr. 2023 – 3. maí 2023· 4 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997
Heilbrigðisráðuneytið hefur gert breytingar á frumvarpi til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997, sem birt var í samráðsgátt 24. janúar sl. (mál nr. 18/2023).
- Ekki komið til AlþingisS-78/2023· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 31. mar. 2023 – 12. maí 2023· 9 umsagnir
Slit og uppgjör ÍL-sjóðs
Markmið fyrirhugaðrar lagasetningar er að mæla fyrir um skipulögð slit og uppgjör ÍL-sjóðs með hagfelldri niðurstöðu fyrir þá sem hafa hagsmuna að gæta.
Á þingmálaskrá ríkisstjórnar (154. þing)Samráðsgátt - Komið til AlþingisS-76/2023· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. mar. 2023 – 3. apr. 2023· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fyrirtækjaskrá, nr. 17/2003, o.fl
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um fyrirtækjaskrá og fl. v. ákvæða í tilskipunum og reglugerðum framkvæmdastjórnar ESB um samtengingarkerfi skráa skv. 22. gr. tilskipunar 2017/1132.
- Komið til AlþingisS-73/2023· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 16. mar. 2023 – 27. mar. 2023· 5 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um endurskoðendur og endurskoðun og lögum um ársreikninga (endurskoðunarnefndir, siðareglur endurskoðenda, sektarákvæði o.fl.)
Í frumvarpinu er að finna breytingar á lögum um endurskoðendur nr. 94/2019 og breytingar á lögum um ársreikninga nr. 3/2006. Hluti frumvarpsins var birtur í samráðsgáttinni 11. nóvember sl.
- Komið til AlþingisS-71/2023· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. mar. 2023 – 22. mar. 2023· 3 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, og lögum um tekjuskatt
Um er að ræða drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, og lögum um tekjuskatt.
- Ekki komið til AlþingisS-69/2023· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. mar. 2023 – 14. apr. 2023· 1 umsögn
Fjárnám og nauðungarsala - stafræn málsmeðferð
Áform um lagasetningu til þess að heimila stafræna málsmeðferð í fjárnáms- og nauðungarsölumálum.
Á þingmálaskrá ríkisstjórnar (154. þing)Samráðsgátt - Ekki komið til AlþingisS-68/2023· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. mar. 2023 – 23. mar. 2023· 3 umsagnir
Afnám banns við framleiðslu áfengis til einkaneyslu (heimabruggun)
Lagðar eru til breytingar á áfengislögum þannig að heimilt verði að framleiða áfengi til einkaneyslu með ákveðnum takmörkunum.
Á þingmálaskrá ríkisstjórnar (154. þing)Samráðsgátt - Komið til AlþingisS-67/2023· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. mar. 2023 – 20. mar. 2023· 44 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu)
Matvælaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til breytinga á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða ásamt mati á áhrifum lagasetningarinnar.
- Komið til AlþingisS-62/2023· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. mar. 2023 – 24. mar. 2023· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði (hnúðlax)
Með frumvarpinu er áformað að lögfesta tímabundið ákvæði til bráðabirgða til að bregðast við hnúðlaxi sem kann að koma í íslenskar ár og vötn á gildistíma ákvæðisins.
- Komið til AlþingisS-64/2023· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. mar. 2023 – 30. mar. 2023· 38 umsagnir
Endurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
Markmið með endurskoðuninni er að bæta gæði jöfnunar, einfalda útreikninga og skipulag sjóðsins og að Jöfnunarsjóður fylgi þróun sveitarfélagagerðarinnar.
- Komið til AlþingisS-59/2023· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. mar. 2023 – 15. mar. 2023· 8 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuréttindi útlendinga og lögum um útlendinga
Áform um lagasetningu til þess að rýmka reglur um dvalar- og atvinnuréttindi útlendinga.
- Ekki komið til AlþingisS-55/2023· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 6. mar. 2023 – 13. mar. 2023· 6 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum (eftirlitsheimildir Skattsins og ráðstöfun séreignarsparnaðar)
Um er að ræða frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum (eftirlitsheimildir Skattsins og ráðstöfun séreignarsparnaðar)
- Komið til AlþingisS-54/2023· Drög að frumvarpi til laga· Utanríkisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. mar. 2023 – 10. mar. 2023· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna
Frumvarpið felur í sér að tvenn lög, sem eru nátengd, og sem varða framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, verða sameinuð í ein lög til að stuðla að samræmingu í löggjöf.
- Komið til AlþingisS-53/2023· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. mar. 2023 – 13. mar. 2023· 3 umsagnir
Breyting á lögum um handiðnað (útgáfa sveinsbréfa)
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið kynnir drög að frumvarpi til breytinga á lögum um handiðnað, nr. 42/1978. Með frumvarpinu er útgáfa sveinsbréfa færð frá áðurnefndu ráðuneyti til sýslumanna.
- Komið til AlþingisS-52/2023· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 2. mar. 2023 – 15. mar. 2023· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003
Innviðaráðuneytið kynnir drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003. Með frumvarpinu eru m.a. lögð til ákvæði er varða tilkynningarskyldu og stjórnvaldssektir.
- Komið til AlþingisS-50/2023· Drög að stefnu· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. mar. 2023 – 20. mar. 2023· 45 umsagnir
Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélags á Íslandi til ársins 2025
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra boðar til samráðs um tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélags á Íslandi til ársins 2025
- Komið til AlþingisS-47/2023· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 28. feb. 2023 – 7. mar. 2023· 45 umsagnir
Breytingar á vopnalögum, hálfsjálfvirk og sjálfvirk skotvopn og innleiðing á tilskipun Evrópuþingsins- og ráðsins 2021/555
Lagðar eru til breytingar á ákvæðum um merkingar, skráningar, vörslu, eftirlit og skilyrðum um veitingu leyfa ásamt afleiddum breytingum á erfðalögum og lögum um skipti á dánarbúum o.fl.
- Komið til AlþingisS-48/2023· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. feb. 2023 – 14. mar. 2023· 13 umsagnir
Breyting á raforkulögum (raforkuöryggi)
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir drög að frumvarpi til breytinga á raforkulögum.
- Komið til AlþingisS-46/2023· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. feb. 2023 – 13. mar. 2023· 4 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sjálfstæðs raforkueftirlits
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir drög að frumvarpi að breytingu á ýmsum lögum vegna sjálfstæðis raforkueftirlits.
- Komið til AlþingisS-45/2023· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 27. feb. 2023 – 8. mar. 2023· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ríkislögmann, nr. 51/1985
Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um ríkislögmann hvað varðar starfshætti, verkefni og sáttaumleitan hjá embættinu.
- Komið til AlþingisS-42/2023· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. feb. 2023 – 12. mar. 2023· 7 umsagnir
Breyting á kosningalögum
Með þeim breytingum sem lagðar eru til í frumvarpinu er leitast við að bregðast við þeim ágöllum sem komið hafa í ljós við beitingu nýrra kosningalaga.
- Komið til AlþingisS-44/2023· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. feb. 2023 – 10. mar. 2023· 7 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna (samþætting þjónustu, snemmtækur stuðningur o.fl.)
Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna.
- Ekki komið til AlþingisS-43/2023· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. feb. 2023 – 10. mar. 2023· 2 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjarskipti nr. 70/2022, o.fl. fleiri lögum (ríkisstyrktir fjarskiptainnviðir, EES-reglur, eftirlit með lénaskráningum og þagnaskylda)
Áætluð lögfesting vegna heildsöluaðgangs ríkisstyrktra fjarskiptainnviða, EES-reglugerðar um vöktun á barnaníðsefni, bætt eftirlits með lénaskráningum og þagnaskyldu vegna fjarskiptaöryggis.
- Ekki komið til AlþingisS-38/2023· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. feb. 2023 – 10. mar. 2023· 30 umsagnir
Frumvarp til laga um þjónustustofnun á sviði menntamála
Frumvarpið felur í sér að ný þjónustustofnun á sviði menntamála verður sett á fót. Stofnunin tekur við hluta af verkefnum Menntamálastofnunar, sem verður lögð niður.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)