Breytingar á vopnalögum, hálfsjálfvirk og sjálfvirk skotvopn og innleiðing á tilskipun Evrópuþingsins- og ráðsins 2021/555
Lagðar eru til breytingar á ákvæðum um merkingar, skráningar, vörslu, eftirlit og skilyrðum um veitingu leyfa ásamt afleiddum breytingum á erfðalögum og lögum um skipti á dánarbúum o.fl.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-47/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 7. mars 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 45 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 946)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (45)
- #1Hermann Björgvin Haraldsson
Nýliðun í skotfimi verður sífellt erfiðari með þessari löggjöf. Væri gott að sjá einhverskonar málamiðlun í þessu sem myndi leyfa iðkendum að verzla hálfsjálfvirk skotvopn til íþróttaiðkunar gegn einhverskonar vörzlusamkomulagi við viðurkennt félag.
- #2Hermann Björgvin Haraldsson
Tek mig sem dæmi Hóf að stunda skotfimi með A leyfi fyrir 14 mánuðum. Nú sýnist mér að til þess að halda áfram iðkun þá geti ég sótt um C leyfi í loftbyssuna sem er vel og gott og til bóta, en svo hengur D leyfið mitt þangað til þessi löggjöf fer í gegn og ég sæki um C leyfi og svo bætast við 2 ár á klukkuna. Þannig biðin eftir D leyfi verður þá hátt í fjögur ára bið. Ég spyr nú bara hvernig er þetta sanngjarnt fyrir íþróttaiðkenndur? Betra væri að fasa þetta inn með nýjum iðkendum ef að á að gera svona róttækar breytingar á D leyfinu.
- #3Björn Ásgeirsson
athugasemdir vegna nýrra Vopnalaga
- #4Garðar Páll Jónsson
í þessum lögum þurfa að vera tilslakanir vegna veiðimann sem eru ráðnir hjá Sveitarfélögum og eru með samning, Notkun á nætursjónaukum á skopvopn ætti að vera þeim heimil, eins notkun skotvopna á rýmri grundvelli, eins og nálægt vegi eða bifreið. Eins ættu þeir að mega nota önnur skotvopn en þau sem skotið er frá öxl. Þar er átt við handvopn sem notuð eru við minnkaveiðar.
- #5Eymundur Sigurðsson
Góðan dag, Við vinnslu þessa frumvarps, vantar algjörlega að sá hópur sem frumvarpið kemur hvað verst við, hafi fengið að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. En þar á ég við byssusafnara. Með þessu frumvarpi, þar sem banna á innflutning á safnvopnum, eru byssusöfnurum gert útilokað að sinna áhugamáli sínu, áhugamáli sem veitir flestum hlutaðeigandi mikla ánægju í kringum sögugrúsk og rannsóknir tengt vopnunum sem um ræðir. Þess má einnig geta, að þessi vopn sem flest tengjast Seinni Heimsstyrjöld eru hugsuð sem fjárfesting hjá sumum, en verðgildi vopna frá þessum tíma hefur hækkað mi… Lesa alla
Góðan dag, Við vinnslu þessa frumvarps, vantar algjörlega að sá hópur sem frumvarpið kemur hvað verst við, hafi fengið að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. En þar á ég við byssusafnara. Með þessu frumvarpi, þar sem banna á innflutning á safnvopnum, eru byssusöfnurum gert útilokað að sinna áhugamáli sínu, áhugamáli sem veitir flestum hlutaðeigandi mikla ánægju í kringum sögugrúsk og rannsóknir tengt vopnunum sem um ræðir. Þess má einnig geta, að þessi vopn sem flest tengjast Seinni Heimsstyrjöld eru hugsuð sem fjárfesting hjá sumum, en verðgildi vopna frá þessum tíma hefur hækkað mikið undanfarið og mun gera það áfram vegna aldurs og sögulegrar tengingar. Mér finnst sjálfsagt að regluverk þessa málaflokks sé hert, og okkur sé gert erfiðara að eignast þessi vopn, sem og að gera kröfur til söluaðila, en að banna alfarið innflutning án nokkurra raka ber vott um forræðishyggju. En þarna virðist ráðherra ætla að benda á að búið sé að leysa "vandamálið", vandamál sem er ekki til staðar. Það að mikið hafi verið flutt inn af safnvopnum síðustu ár, finnst mér hæpin ástæða þess að banna innflutning, þrátt fyrir að það hafi verið niðurstaða starfshóps Dómsmálaráðuneytisins og lögregluembættanna. Af hverju? Jú þessi vopn hafa ekki verið notuð í glæpsamlegum tilgangi að mér vitandi nema í einu tilfelli, þar sem enginn skaði hlaust af. Er það að mínu mati undantekningin sem sannar regluna. Að ætla að banna eitthvað af því að mikið sé til af því og það gæti verið hættulegt, eru í besta falli hæpin rök. Að banna innflutning safnvopna til að koma í veg fyrir aðgengi glæpahópa að þessum vopnum er mjög langsótt, þeir einstaklingar hafa alltaf haft sínar leiðir til að útvega sér vopn, og það mun ekki breytast. Bann við innflutningi safnvopna mun því miður ekki koma í veg fyrir t.d. hnífaárásir. Safnvopn eiga að vera fyrir safnara, og við eigum að þurfa að gera grein fyrir því af hverju við viljum eignast þessi vopn, hvaða söguleg tenging eða annað það er sem vekur áhuga okkar. Sumir safna vopnum frá ákveðnu landi, aðrir safna vopnum hönnuðum af sama einstakling, eins og John Moses Browning eða Hugo Schmeisser. Þetta gengur söfnun út á, ekki bara að kaupa eitthvað af því að viðkomandi finnst það flott. Mér finnst það frekar hart að við sem teljum okkur vera alvöru safnara. eigum að líða fyrir það að flest allir hafi geta keypt safnvopn síðustu ár, án þess að geta talist vera safnarar. Í frumvarpinu er einnig bent á að þessi vopn séu bönnuð í Svíþjóð, því sé réttast að gera slíkt hið sama hér. Þrátt fyrir stranga skotvopnalöggjöf í Svíþjóð, og bann við safnvopnum, þá er hvergi í Evrópu hærri tíðni byssutengdra glæpa en þar. Svo það er hæpið og í raun óskiljanlegt dæmi að vitna til. Ef við skoðum hvernig þessum málum er háttað í löndunum í kringum okkur, þá eru sjálvirk vopn víða bönnuð, nema ef að um safnvopn sé að ræða. Þannig að einföld Google leit getur sýnt fram á földa dæma þessu til stuðnings. Mér finnst einnig skorta almennt á þekkingu á málaflokki safnvopna, en átt er við vopn sem notuð voru í Seinni Heimsstyrjöld og fyrr. Í fjölmiðlaumræðu undanfarið hafa allskonar vopn verið áberandi, AR og AK rifflar sem búið er að breyta í meintum annarlegum tilgangi. Þessi vopn hafa allt of oft verið nefnd í tengslum við safnvopn, sem er alrangt, og merkilegt að lögreglan hafi ekki bent á þær rangfærslur, því þetta hefur haft mjög neikvæð áhrif á umræðuna um safnvopn að ósekju. Ég er safnari, þetta er mitt helsta áhugamál, því vona ég að þetta frumvarp verði ekki að lögum í óbreyttri mynd. Leyfið okkur að koma okkar sjónarmiðum á framfæri, svo hægt sé að komast að sameiginlegri niðurstöðu sem allir geta sætt sig við. Kv. Eymundur Sigurðsson
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.