Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
109 mál · sótt 27. október 2026
- Komið til AlþingisS-279/2020· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. des. 2020 – 7. jan. 2021· 5 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum tengdum málefnum sveitarfélaga (Covid-19 og sveitarfélög)
Birt eru til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingar á ýmsum lögum tengdum málefnum sveitarfélaga vegna áhrifa kórónaveirufaraldursins á sveitarfélög.
- Komið til AlþingisS-277/2020· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. des. 2020 – 31. jan. 2021· 25 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 87/2018, um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (nikótínvörur)
Í frumvarpi þessu sem er samið í heilbrigðisráðuneytinu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 87/2018, um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur. Með breytingunum eru tóbakslausar nikótínvörur felldar undir gildissvið laganna, þar á meðal nikótínpúðar.
- Komið til AlþingisS-270/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. des. 2020 – 5. jan. 2021· 1 umsögn
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum á sviði matvæla, landbúnaðar, sjávarútvegs- og fiskeldis (einföldun regluverks)
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum í því skyni að einfalda regluverk og stjórnsýslu á sviði fiskeldis, matvæla og landbúnaðar.
- Komið til AlþingisS-268/2020· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. des. 2020 – 5. jan. 2021· 1 umsögn
Áform um lagasetningu - breytingar á einkaleyfalögum, nr. 17/1991 (undanþága frá viðbótarvernd einkaleyfa vegna framleiðslu og útflutnings samheitalyfja)
Áformað er að breyta lögum um einkaleyfi, nr. 17/1991, þannig að heimilt verði að hefja framleiðslu og útflutning samheitalyfja út fyrir EES svæðið, með skilyrðum, á meðan svokallað viðbótarvottorð (SPC) er í gildi.
- Komið til AlþingisS-267/2020· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. des. 2020 – 12. jan. 2021· 4 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997.
Með frumvarpinu er ætlað að tryggja fullnægjandi lagaheimildir til að taka ákvarðanir gagnvart frelsissviptum sjúklingum á heilbrigðisstofnunum og tryggja réttindi sjúklinga, m.a. með því að kveða skýrt á um að þvingunum sé ekki beitt nema í algerum undantekningartilvikum.
- Komið til AlþingisS-264/2020· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. des. 2020 – 6. jan. 2021· 1 umsögn
Áform um breytingar á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
Áformað er að breyta tilteknum ákvæðum laga nr. 140/2018 varðandi sýndareignir og kanna jafnframt hvort tilefni sé til þess að gera afmarkaðar breytingar á lögunum með hliðsjón af þeirri reynslu sem orðin er af framkvæmd þeirra.
- Komið til AlþingisS-260/2020· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. des. 2020 – 16. des. 2020· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki (CRD IV og CRR)
Gert er ráð fyrir að ljúka innleiðingu tilskipunar 2013/36/ESB um aðgang að starfsemi lánastofnana og varfærniseftirlit með lánastofnunum og verðbréfafyrirtækjum („CRD IV“) og lögfesta reglugerð (ESB) nr. 575/2013 um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki („CRR“).
- Komið til AlþingisS-258/2020· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. nóv. 2020 – 13. des. 2020· 3 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um Fjarskiptastofu
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um Fjarskiptastofu.
- Komið til AlþingisS-255/2020· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. nóv. 2020 – 15. des. 2020· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúklingatryggingu, nr. 111/2000 (tryggingavernd í klínískum lyfjarannsóknum á heilbrigðisstofnunum).
Heilbrigðisráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til breytinga á lögum um sjúklingatryggingu, nr. 111/2000 (tryggingavernd í klínískum lyfjarannsóknum á heilbrigðisstofnunum).
- Komið til AlþingisS-254/2020· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. nóv. 2020 – 7. des. 2020· 13 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda
Með frumvarpi til laga um stafrænt pósthólf er gert ráð fyrir þeirri meginreglu að stjórnvöld sendi gögn til einstaklinga og lögaðila með stafrænum hætti í gegn um stafrænt pósthólf. Sú aðferð mun hafa sömu réttaráhrif og þegar gögn berast með bréfpósti eða öðrum hætti.
- Komið til AlþingisS-252/2020· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. nóv. 2020 – 4. des. 2020· 5 umsagnir
Frumvarp til laga um nýtingu á landi í eigu ríkisins í atvinnuskyni
Mikilvægt er að móta almennan lagaramma um nýtingu á landi í eigu ríkisins. Markmiðið er að setja fram tillögur um hvernig best verður staðið að úthlutun á rétti til hvers kyns nýtingar á landi og náttúruperlum í eigu ríkisins í atvinnuskyni.
- Komið til AlþingisS-251/2020· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. nóv. 2020 – 22. nóv. 2020· 4 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt og lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur (fjármagnstekjuskattur).
Frumvarpinu er ætlað að útfæra tillögur starfshóps um endurskoðun skattstofns fjármagnstekjuskatts.
- Komið til AlþingisS-249/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. nóv. 2020 – 1. des. 2020· 15 umsagnir
Breytingar á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks.
- Komið til AlþingisS-248/2020· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. nóv. 2020 – 28. nóv. 2020· 2 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um stefnumarkandi áætlanir á sviði samgöngu-, fjarskipta-, og byggðamála
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til nýrra laga um stefnumarkandi áætlanir á sviði samgöngu-, fjarskipta-, og byggðamála þar sem tekin eru næstu skref við samhæfingu áætlana á þessum sviðum.
- Komið til AlþingisS-245/2020· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. nóv. 2020 – 27. nóv. 2020· 3 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingar á lögum um Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins nr. 83/2003 (Greiningar- og ráðgjafarstöð)
Félags- og barnamálaráðherra kynnir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Það er liður í endurskoðun á löggjöf um málefni barna sem tengist m.a. samþættingu þjónustu í þágu barna.
- Komið til AlþingisS-242/2020· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. nóv. 2020 – 23. nóv. 2020· 13 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003. Frumvarpið hefur að geyma ákvæði um eldisgjald og rafræna vöktun í höfnum. Þá er það jafnframt til innleiðingar á ákvæðum EES-gerðar um þjónustu í höfnum og gagnsæi í fjármálum hafna.
- Komið til AlþingisS-240/2020· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. nóv. 2020 – 18. nóv. 2020· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu nr. 23/2013 (upplýsingaréttur almennings)
Með drögunum er lagt til að samhljóða ákvæði um upplýsingarétt gildi m.a. um störf og starfsmenn RÚV eins og gilda um opinbera starfsmenn samkvæmt upplýsingalögum nr. 140/2012.
- Komið til AlþingisS-239/2020· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. nóv. 2020 – 17. nóv. 2020· 17 umsagnir
Drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (skattalegir hvatar fyrir lögaðila sem starfa til almannaheilla).
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (skattalegir hvatar fyrir lögaðila sem starfa til almannaheilla).
- Komið til AlþingisS-237/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. nóv. 2020 – 18. nóv. 2020· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum er varða úrskurðaraðila á sviði neytendamála (einföldun úrskurðarnefnda).
Með frumvarpinu er lagt til að endurskoða gildandi fyrirkomulag úrskurðarnefndar í vátryggingarmálum, úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki, úrskurðarnefndar um dreifingu vátrygginga og eftirlitsnefndar fasteignasala.
- Komið til AlþingisS-236/2020· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. nóv. 2020 – 11. nóv. 2020· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til breytinga á lögreglulögum nr. 90/1996 (nefnd um eftirlit með lögreglu o.fl.)
Um er að ræða áform um ýmsar breytingar á lögum um lögreglu nr. 90/1996, þar á meðal á hlutverki nefndar um eftirlit með lögreglu.
- Komið til AlþingisS-235/2020· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. nóv. 2020 – 16. nóv. 2020· 4 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum er varða rannsókn og saksókn í skattalagabrotum (tvöföld refsing, málsmeðferð)
Frumvarp vinnuhóps um breytingar á efnisreglum, stofnanauppbyggingu og samstarfi sem hafa mun í för með sér að tvöföldum refsingum verður ekki beitt við rannsókn og saksókn skattalagabrota.
- Komið til AlþingisS-233/2020· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. nóv. 2020 – 16. nóv. 2020· 3 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum sem heyra undir mennta- og menningarmálaráðuneyti vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018
Frumvarpinu er ætlað að gera nauðsynlegar breytingar á ákvæðum laga sem heyra undir málefnasvið mennta- og menningarmálaráðuneytis til að tryggja að vinnsla persónuupplýsinga skv. lögunum samræmist persónuverndarlögum.
- Komið til AlþingisS-231/2020· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. okt. 2020 – 10. nóv. 2020· 3 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (tryggingagjald, tekjuskattur, vörugjald, bifreiðagjald, skipagjald o.fl.).
Um er að ræða ýmsar breytingar á skattalögum, m.a. tryggingagjaldi, tekjuskatti, vörugjaldi og bifreiðagjaldi. Jafnframt eru lögð til ný lög um skipagjald.
- Komið til AlþingisS-230/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. okt. 2020 – 11. nóv. 2020· 7 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Neytendastofu nr. 62/2005 og fleiri lögum (endurskoðun stjórnsýslu neytendamála).
Með frumvarpinu er lagt til að ýmis stjórnsýsluverkefni verði færð frá Neytendastofu til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og Póst- og fjarskiptastofnunar.
- Komið til AlþingisS-227/2020· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. okt. 2020 – 9. nóv. 2020· 3 umsagnir
Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og lögum um fjársýsluskatt (fjármálaþjónusta o.fl.)
Í frumvarpinu er lagðar til breytingar á lögum um vsk og lögum um fjársýsluskatt. Breytingarnar fela m.a. í sér afmörkun á undanþágu vsk vegna sölu á fjármálaþjónustu, framlengingu á 100% endurgreiðslu vsk af vinnu við íbúðarhúsnæði, frístundahúsnæði o.fl.
- Komið til AlþingisS-226/2020· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. okt. 2020 – 13. nóv. 2020· 3 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um gjaldeyrismál
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar áform um lagasetningu ásamt frumdrögum að frumvarpi.
- Komið til AlþingisS-223/2020· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. okt. 2020 – 4. nóv. 2020· 7 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna póstmála (flutningur póstmála frá Póst- og fjarskiptastofnun til Byggðastofnunar).
Birt eru til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna tilfærslu póstmála frá Póst- og fjarskiptastofnun til Byggðastofnunar.
- Komið til AlþingisS-222/2020· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. okt. 2020 – 28. okt. 2020· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á vátryggingamarkaði
Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á vátryggingamarkaði (hæfis- og hæfniskilyrði, atkvæðisréttur, réttarstaða við ógjaldfærnimeðferð, búsetuskilyrði, eftirlitsheimildir o.fl.).
- Komið til AlþingisS-221/2020· Drög að frumvarpi til laga· Utanríkisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. okt. 2020 – 3. nóv. 2020· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ráðstafanir í kjölfar samnings við Bandaríkin um skil á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli, nr. 176/2006
Með frumvarpinu eru m.a. lagðar til breytingar á ákvæðum lögum nr. 176/2006 varðandi hlutverk Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar.
- Komið til AlþingisS-220/2020· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. okt. 2020 – 16. nóv. 2020· 13 umsagnir
Frumvarp til laga um loftferðir
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um loftferðir. Í frumvarpinu eru lagðar til veigamiklar breytingar frá núgildandi lögum einkum í því skyni að taka mið af þjóðréttarlegum skuldbindingum sem Ísland hefur undirgengist og stefnu stjórnvalda á sviði flugsamgangna.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)