Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-227/2020 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og lögum um fjársýsluskatt (fjármálaþjónusta o.fl.)

Í frumvarpinu er lagðar til breytingar á lögum um vsk og lögum um fjársýsluskatt. Breytingarnar fela m.a. í sér afmörkun á undanþágu vsk vegna sölu á fjármálaþjónustu, framlengingu á 100% endurgreiðslu vsk af vinnu við íbúðarhúsnæði, frístundahúsnæði o.fl.

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt og lögum nr. 165/2011, um fjársýsluskatt. Helstu efnisatriði frumvarpsins eru eftirfarandi: 1. Að vátryggingastarfsemi verði felld undir undanþáguákvæði 10. töluliðar 3. mgr. 2. gr. laga um virðisaukaskatt með annarri undanþeginni fjármálaþjónustu. 2. Að kveða skýrar á um undanþágu virðisaukaskatts vegna sölu fjármálaþjónustu og milligöngu um hana. Við afmörkun undanþágunnar verði litið til sambærilegs ákvæðis í norsku virðisaukaskattslögunum (n. merverdiavgiftsloven). 3. Að gerðar verði breytingar á ákvæðum laga um fjársýsluskatt vegna tillögu um að vátryggingarstarfsemi í 9. tölul. 3. mgr. 2. gr. laga um virðisaukaskatt verði felld undir hugtakið fjármálaþjónusta í 10. tölul. sömu málsgreinar. 4. Að heimilt verði að endurgreiða skattaðila inneign í virðisaukaskatti þrátt fyrir að innsend skýrsla vegna fyrra uppgjörstímabils sé óafgreidd. Áfram verði þó óheimilt að endurgreiða inneign ef álagning á fyrri uppgjörstímabilum byggir á áætlun ríkisskattstjóra. 5. Að ákvæði til bráðabirgða XXIX í lögum um virðisaukaskatt verði lögfest á ný og gildistími þess verði afmarkaður frá og með 1. janúar 2021 til og með 31. desember 2023. 6. Að ákvæði til bráðabirgða XXXIII og XXXIV í lögum um virðisaukaskatt verði framlengd til og með 31. desember 2021.

S-227/2020· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. okt. 2020 – 9. nóv. 2020· 3 umsagnir

Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og lögum um fjársýsluskatt (fjármálaþjónusta o.fl.)

Í frumvarpinu er lagðar til breytingar á lögum um vsk og lögum um fjársýsluskatt. Breytingarnar fela m.a. í sér afmörkun á undanþágu vsk vegna sölu á fjármálaþjónustu, framlengingu á 100% endurgreiðslu vsk af vinnu við íbúðarhúsnæði, frístundahúsnæði o.fl.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-227/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 9. nóvember 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 372)
Niðurstöður samráðs (17. nóvember 2020)

Þrjár umsagnir bárust. Ekki þótti tilefni til breytinga á frumvarpinu í ljósi þeirra umsagna sem bárust.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-227/2020: Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og lögum um fjársýsluskatt (fjármálaþjónusta o.fl.) · Alviti