Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-268/2020 · Atvinnuvegaráðuneytið

Áform um lagasetningu - breytingar á einkaleyfalögum, nr. 17/1991 (undanþága frá viðbótarvernd einkaleyfa vegna framleiðslu og útflutnings samheitalyfja)

Áformað er að breyta lögum um einkaleyfi, nr. 17/1991, þannig að heimilt verði að hefja framleiðslu og útflutning samheitalyfja út fyrir EES svæðið, með skilyrðum, á meðan svokallað viðbótarvottorð (SPC) er í gildi.

Breytingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins EB 469/2009 um vottorð um viðbótarvernd fyrir lyf tók gildi í Evrópusambandinu þann 1. júlí 2019. Með reglugerðinni er veitt undanþága til að byrja útflutning á samheitalyfjum út fyrir EES svæðið á meðan svokallað viðbótarvottorð er í gildi en það lengir virkan verndartíma einkaleyfis. Breytingareglugerð þessi hefur ekki verið tekin upp í EES- samninginn en gerðin er í skoðun hjá fastanefnd EFTA. Samkeppnisstaða samheitalyfjaframleiðenda á Íslandi er því önnur en samskonar framleiðenda í Evrópusambandinu þar sem undanþágan hefur tekið gildi. Áformað er að breyta lögum um einkaleyfi þannig að breytingareglugerðin verði tekin efnislega upp í íslenska löggjöf áður en gerðin verður tekin upp í EES-samninginn og þetta úrræði innleitt.

S-268/2020· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. des. 2020 – 5. jan. 2021· 1 umsögn

Áform um lagasetningu - breytingar á einkaleyfalögum, nr. 17/1991 (undanþága frá viðbótarvernd einkaleyfa vegna framleiðslu og útflutnings samheitalyfja)

Áformað er að breyta lögum um einkaleyfi, nr. 17/1991, þannig að heimilt verði að hefja framleiðslu og útflutning samheitalyfja út fyrir EES svæðið, með skilyrðum, á meðan svokallað viðbótarvottorð (SPC) er í gildi.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-268/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 5. janúar 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 616)
Niðurstöður samráðs (19. febrúar 2021)

Drög að frumvarpi til umsagnar, sjá mál á Samráðsgátt nr. 53/2021.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-268/2020: Áform um lagasetningu - breytingar á einkaleyfalögum, nr. 17/1991 (undanþága frá viðbótarvernd einkaleyfa vegna framleiðslu og útflutnings samheitalyfja) · Alviti