Frumvarp til laga um nýtingu á landi í eigu ríkisins í atvinnuskyni
Mikilvægt er að móta almennan lagaramma um nýtingu á landi í eigu ríkisins. Markmiðið er að setja fram tillögur um hvernig best verður staðið að úthlutun á rétti til hvers kyns nýtingar á landi og náttúruperlum í eigu ríkisins í atvinnuskyni.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-252/2020)
- Umsagnarfrestur hefst · til 4. desember 2020
- Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 538)
Niðurstöður samráðs (29. janúar 2021)
Fjórar umsagnir bárust innan athugasemdafrests, frá einum einstaklingi, Landsvirkjun, Bændasamtökum Íslands og sameiginleg umsögn Samtaka atvinnulífsins, Samtaka ferðaþjónustunnar og Viðskiptaráðs Íslands. Þá bárust ráðuneytinu við vinnslu frumvarpsins umsagnir frá Samorku og Ríkiseignum. Leitast var við að taka mið af þeim sjónarmiðum og ábendingum sem komu fram í þeim umsögnum sem bárust við vinnslu frumvarpsins. Sjá niðurstöðuskjal til nánari upplýsingar.
- Drög að frumvarpi til laga um nýtingu á landi í eigu ríkisins í atvinnuskyni
- Skýrsla starfshóps um sérleyfissamninga
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
- #1Björn Traustason
Taka þarf sérstaklega tillit til smærri fyrirtækja sem hafa í mörg ár byggt upp ferðaþjónustu á svæðum sem gæti komið til að yrðu boðin út. Þessi fyrir tæki eru mörg hver búin að leggja í miklar innviðauppbygyingar og fjárfestingar en mega sín lítils ef stór fyrirtæki koma og yfirbjóða leyfin. Þarna er oft um að ræða fjölskyldufyrirtæki og er því verið að stefna í hættu lífsviðurværi fjölskyldna í brothættum byggðum.
- #2Landsvirkjun
Meðfylgjandi er umsögn Landsvirkjunar.
- #3Bændasamtök Íslands
Sjá umsögn BÍ í viðhengi.
- #4Samtök atvinnulífsins
Góðan dag, Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins, Samtaka ferðaþjónustunnar og Viðskiptaráðs Íslands um frumvarpið. f.h. samtakanna Heiðrún Björk Gísladóttir
- #5Samorka
Hjálögð er umsögn Samorku um málið.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.