Drög að frumvarpi til laga um stefnumarkandi áætlanir á sviði samgöngu-, fjarskipta-, og byggðamála
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til nýrra laga um stefnumarkandi áætlanir á sviði samgöngu-, fjarskipta-, og byggðamála þar sem tekin eru næstu skref við samhæfingu áætlana á þessum sviðum.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-248/2020)
- Umsagnarfrestur hefst · til 28. nóvember 2020
- Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (2. júlí 2021)
Frumvarpið var birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar um tveggja vikna skeið og bárust tvær umsagnir. Í umsögn frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga kom fram stuðningur við frumvarpið og mælt með því að það verði að lögum. Þá barst umsögn frá landshlutasamtökum sveitarfélaga sem varð til þess að ákvæði um stýrihóp Stjórnarráðsins um byggðamál var bætt við frumvarpið. Frumvarpið var lagt fram á 151. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. Stefnt er að endurframlagningu á haustþingi 152. löggjafarþings 2021-2022.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
- #1Samband íslenskra sveitarfélaga
Hjálagt sendist umsögn sambandsins um frumvarpið. F.h. sambandsins Guðjón Bragason
- #2Landshlutasamtök sveitarfélaga
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.