Áform um breytingar á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
Áformað er að breyta tilteknum ákvæðum laga nr. 140/2018 varðandi sýndareignir og kanna jafnframt hvort tilefni sé til þess að gera afmarkaðar breytingar á lögunum með hliðsjón af þeirri reynslu sem orðin er af framkvæmd þeirra.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-264/2020)
- Umsagnarfrestur hefst · til 6. janúar 2021
- Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 594)
Niðurstöður samráðs (4. nóvember 2021)
Ein umsögn barst vegna málsins í samráðsgáttina. Fyrirhugað er að birta drög að frumvarpi til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda í lok árs 2021.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
- #1Landssamtök lífeyrissjóða
Erindi frá Landssamtökum lífeyrissjóða í tilefni af áformum um breytingar á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.