Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu nr. 23/2013 (upplýsingaréttur almennings)
Með drögunum er lagt til að samhljóða ákvæði um upplýsingarétt gildi m.a. um störf og starfsmenn RÚV eins og gilda um opinbera starfsmenn samkvæmt upplýsingalögum nr. 140/2012.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-240/2020)
- Umsagnarfrestur hefst · til 18. nóvember 2020
- Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (20. apríl 2021)
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, nr. 23/2013 (upplýsingaréttur almennings) var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda frá 9. nóvember til 18. nóvember 2020. Ein umsögn barst frá Ríkisútvarpinu. Ekki var talin ástæða til að bregðast við umsögninni að öðru leyti en fram kemur í 5. kafla greinargerðar með frumvarpinu.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
- #1Stefán Eiríksson
Meðfylgjandi er umsögn Ríkisútvarpsins um fyrirliggjandi frumvarpsdrög.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.