Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 509. mál

Hafnalög

EES- reglur, gjaldtaka, rafræn vöktun

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 18. feb. 2021

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 151. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að innleiða reglugerð (ESB) 2017/352 um að setja ramma um veitingu hafnarþjónustu og reglur um gagnsæi í fjármál­um fyrir hafnir.

Lagt fram af Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
3. febrúar 2021
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
5 ræður · 18 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 30. jún. 2021

Markmiðið

Að innleiða reglugerð (ESB) 2017/352 um að setja ramma um veitingu hafnarþjónustu og reglur um gagnsæi í fjármál­um fyrir hafnir.

Hvað breytist

Lagt er til að innleidd verði reglugerð (ESB) 2017/352 um að setja ramma um veitingu hafnarþjónustu og reglur um gagnsæi í fjármál­um fyrir hafnir. Markmið reglugerðarinnar er að stuðla að nútímalegri hafnarþjónustu, skilvirkri notkun hafna og hagstæðu fjárfestingarumhverfi til að þróa hafnir í samræmi við kröfur varðandi flutninga og vörustjórnun. Með því að bæta aðgengi að hafnarþjónustu, innleiða gagnsæi í fjármálum og kveða á um sjálfstæði hafna er ætlað að gæði og skilvirkni þjónustu við hafnarnotendur muni aukast ásamt því að draga úr kostnaði fyrir flutningsþega og stuðla að eflingu flutninga á stuttum sjóleiðum og betri samþættingu sjóflutninga við aðra flutningsmáta. Í frumvarpinu er einnig mælt fyrir um rafræna vöktun í höfnum og í öðru lagi er mælt fyrir um eldisgjald, þ.e. gjald sem tekið er fyrir eldisfisk í sjókvíum, þ.m.t. eldisseiði, sem umskipað er, lestaður er eða losaður í höfnum.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir umtalsverðum áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/352 frá 15. febrúar 2017 um að setja ramma um veitingu hafnarþjónustu og um sameiginlegar reglur um gagnsæi í fjármálum fyrir hafnir.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af
Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Umhverfis- og samgöngunefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 9. mar. 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
11 aðilar
Fjarðabyggð, Samband íslenskra sveitarfélaga, Hafnasamband Íslands og Samtök sjávarútvegssveitarfélaga, Vesturbyggð, Landhelgisgæsla Íslands, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
18 mín · 5 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir umtalsverðum áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-153/2020· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. ágú. 2020 – 14. sep. 2020· 7 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum nr. 61/2013

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp til breytinga á hafnalögum nr. 61/2003. Innleidd verða ákvæði EES-gerðar um veitingu hafnarþjónustu og um gagnsæi í fjármálum hafna auk þess sem breyting verður gerð á gjaldtökuákvæði laganna til að skýra ákvæði um gjaldtöku tengd fiskeldi.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-153/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 14. september 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (16. september 2021)

Sjö umsagnir bárust við áform um lagasetningu. Við smíði frumvarps var tekið mið af þeim umsögnum sem bárust. Drög að frumvarpi til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003, voru birt á samráðsgátt stjórnvalda 10. nóvember 2020 (sjá mál nr. 242/2020).

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-242/2020· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. nóv. 2020 – 23. nóv. 2020· 13 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003. Frumvarpið hefur að geyma ákvæði um eldisgjald og rafræna vöktun í höfnum. Þá er það jafnframt til innleiðingar á ákvæðum EES-gerðar um þjónustu í höfnum og gagnsæi í fjármálum hafna.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-242/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 23. nóvember 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 13 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (16. september 2021)

Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003, var lagt fyrir Alþingi á 151. löggjafarþingi (sjá 509. mál). Umfjöllun um niðurstöður samráðs sem fram fór um frumvarpið er að finna í greinargerð þess.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (13)
  • #2Reykjaneshöfn
    Á 246. fundi Stjórnar Reykjaneshafnar fimmtudaginn 19. nóvember 2020 var bókað eftirfarandi í dagskrálið 3.b: Í samráðsgátt stjórnvalda er til umsagnar frumvarp til breytingu á hafnalögum nr. 61/2003. Hafnasamband Íslands hefur lagt fram umsögn um drögin sem liggja fyrir á fundinum. Eftirfarandi var lagt fram: Stjórn Reykjaneshafnar tekur að fullu undir þær athugasemdir og tillögur sem fram koma í umsögn Hafnasambands Íslands um frumvarp til breytingar á hafnalögum nr. 61/2003. Stjórn Reykjaneshafnar hvetur ráðherra samgöngumála að horfa til þeirrar umsagnar við endanlega útfærslu frumvarp… Lesa alla

    Á 246. fundi Stjórnar Reykjaneshafnar fimmtudaginn 19. nóvember 2020 var bókað eftirfarandi í dagskrálið 3.b: Í samráðsgátt stjórnvalda er til umsagnar frumvarp til breytingu á hafnalögum nr. 61/2003. Hafnasamband Íslands hefur lagt fram umsögn um drögin sem liggja fyrir á fundinum. Eftirfarandi var lagt fram: Stjórn Reykjaneshafnar tekur að fullu undir þær athugasemdir og tillögur sem fram koma í umsögn Hafnasambands Íslands um frumvarp til breytingar á hafnalögum nr. 61/2003. Stjórn Reykjaneshafnar hvetur ráðherra samgöngumála að horfa til þeirrar umsagnar við endanlega útfærslu frumvarpsins. Samþykkt samhljóða.

  • #3Hafnasamband Íslands

    Í viðhengi er rétt útgáfa af umsögn Hafnasambands Íslands.

  • #4Norðurþing

    Skipulags- og framkvæmdaráð í Norðurþingi tekur undir eins og segir í 6. gr. B lið í umsögn Hafnasambandsins. Að mikilvægt er að skerpa á ákvæðum hafnalaga um farþegagjald, sem hafa valdið ágreiningi og deilum í mörgum höfnum. Hafsækin ferðaþjónusta hefur vaxið hratt síðustu ár og farþegagjaldinu ætlað að standa undir skilgreindum fjárfestingu eldri og nýrri aðstöðu vegna nýrrar þjónustugreinar. Skipulags- og framkvæmdaráð Norðurþings.

  • #5Tálknafjarðarhreppur

    Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003.

  • #6Vesturbyggð

    Meðfylgjandi er umsögn Vesturbyggðar um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum nr. 61/2003.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    5 ræður · 18 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 9. mars 2021
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
855Stjórnarfrumvarp3. feb. 2021Sigurður Ingi JóhannssonLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur18. febrúar 2021 kl. 15:42
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ umhverfis- og samgöngunefnd18. febrúar 2021 kl. 15:42
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

5 ræður · 18 mín
  • 1. umræða: 5 ræður · 2 ræðumenn · 18 mín

Umsagnir og erindi

11 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 1 umsagnabeiðni 23. feb. 2021, frestur 9. mar. 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
FjarðabyggðumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélaga, Hafnasamband Íslands og Samtök sjávarútvegssveitarfélagaumsögnOpna PDF
VesturbyggðumsögnOpna PDF
Landhelgisgæsla ÍslandsumsögnOpna PDF
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegiumsögnOpna PDF
TálknafjarðarhreppurumsögnOpna PDF
UmhverfisstofnunumsögnOpna PDF
PersónuverndumsögnOpna PDF
Samtök ferðaþjónustunnarumsögnOpna PDF
Samtök atvinnulífsins, Samtök ferðaþjónustunnar og SVÞ - Samtök verslunar og þjónustuumsögnOpna PDF
EimskipumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.