Frumvarp til laga um breytingu á lögum er varða rannsókn og saksókn í skattalagabrotum (tvöföld refsing, málsmeðferð)
Frumvarp vinnuhóps um breytingar á efnisreglum, stofnanauppbyggingu og samstarfi sem hafa mun í för með sér að tvöföldum refsingum verður ekki beitt við rannsókn og saksókn skattalagabrota.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-235/2020)
- Umsagnarfrestur hefst · til 16. nóvember 2020
- Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (17. nóvember 2020)
Frumvarpið er samið af vinnuhóp og hefur að geyma þær tillögur að lagabreytingum sem best þóttu fallnar til að ná þeim markmiðum sem vinnuhópnum var falið að útfæra og mótun stefnu til framtíðar. Tillögurnar eiga að ná því markmiði með skýrari verkaskiptingu þeirra embætta sem koma að rannsókn og saksókn skattalagabrota og skjótari málsmeðferð þeirra mála. Með skýrara stofnanafyrirkomulagi, sem meðal annars felur í sér einfaldari og styttri málsmeðferðartíma, er stefnt að því að styrkja enn frekar eftirlit og rannsóknir á skattundanskotum.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
- #1Viðskiptaráð Íslands
Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins, Samtaka iðnaðarins og Viðskiptaráðs Íslands um frumvarp til laga um breytingu á lögum er varða rannsókn og saksókn í skattalagabrotum, mál nr. 235/2020.
- #2Jóhannes Hraunfjörð Karlsson
Hér er til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum er varða rannsókn og saksókn í skattalagabrotum, sbr. mál nr. 235/2020 á samráðsgátt ríkisstjórnarinnar. Samkvæmt kynningu fjármála- og efnahagsráðuneytis á frumvarpinu er meginmarkmið frumvarpsins að útiloka beitingu álags samhliða stjórnvaldssektum eða refsingum vegna skattalagabrota. Síðar segir: „Jafnframt er lagt til að embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins verði sérstök eining innan Skattsins, sem sameinist embætti ríkisskattstjóra.“ Látið er í það skína að þessi tvö mál, beiting álags og embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins,… Lesa alla
Hér er til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum er varða rannsókn og saksókn í skattalagabrotum, sbr. mál nr. 235/2020 á samráðsgátt ríkisstjórnarinnar. Samkvæmt kynningu fjármála- og efnahagsráðuneytis á frumvarpinu er meginmarkmið frumvarpsins að útiloka beitingu álags samhliða stjórnvaldssektum eða refsingum vegna skattalagabrota. Síðar segir: „Jafnframt er lagt til að embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins verði sérstök eining innan Skattsins, sem sameinist embætti ríkisskattstjóra.“ Látið er í það skína að þessi tvö mál, beiting álags og embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins, séu skyld, einkum m.t.t. langs málsmeðferðartíma og réttaröryggis þeirra sem hafa verið til rannsóknar hjá embættinu. Þetta er svo rökstutt með því að vísa til Mannréttindadómstóls Evrópu. Með öðrum orðum er gefið til kynna að embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins sé meginorsök vandans, enda er niðurlagning embættisins meginefni frumvarpsins. Hér verða gerðar nokkrar athugasemdir við þennan málatilbúning. Sjá nánar fylgiskjal.
- #3Bjarnfreður H Ólafsson
Hjálögð umsögn vegna máls nr. 235/2020
- #4PricewaterhouseCoopers ehf.
Umsögn PwC vegna máls 235/2020
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.