Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Neytendastofu nr. 62/2005 og fleiri lögum (endurskoðun stjórnsýslu neytendamála).
Með frumvarpinu er lagt til að ýmis stjórnsýsluverkefni verði færð frá Neytendastofu til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og Póst- og fjarskiptastofnunar.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-230/2020)
- Umsagnarfrestur hefst · til 11. nóvember 2020
- Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 344)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (15. september 2021)
Sjö umsagnir bárust við frumvarpsdrög í samráðsgátt sem hafðar voru til hliðsjónar við ritun og endanlegan frágang frumvarpsins. Stjórnarfrumvarp var lagt fram á Alþingi þann 26. nóvember 2020, sbr. þskj. 418 á 151. löggjafarþingi 2020-2021 (344 mál). Frumvarpið var samþykkt sem lög frá Alþingi þann 16. mars 2021, sbr. lög nr. 18/2021 um breytingu á lögum um Neytendastofu og fleiri lögum (stjórnsýsla neytendamála).
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)
- #1Árný Sigurðardóttir
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
- #2Grímur Kjartansson
Varðandi stjórnsýsluverkefni á sviði rafrænnar auðkenningar og Traustþjónustu = eftirlit Þegar lögin 28/2001 um rafrænar undirskriftir voru samþykkt þá héldu menn í alvöru að flóðgáttir mundu opnast í notkun rafrænna skilríkja til auðkenningar og undirritunar. Nú nær 20 árum síðar þá er notkun rafrænna skilríkja til unirritunar enn mjög takmörkuð og því ætti að nýta þessar lagabreytingar til alvarlegrar naflaskoðunar hvers vegna svo er. Hugsanlega gæti eftirlitshlutverkið stutt vottunarstöðvarnar betur í auka traust almennings til rafrænnar auðkenningar með PKI skilríkjum og þar með stuðla… Lesa alla
Varðandi stjórnsýsluverkefni á sviði rafrænnar auðkenningar og Traustþjónustu = eftirlit Þegar lögin 28/2001 um rafrænar undirskriftir voru samþykkt þá héldu menn í alvöru að flóðgáttir mundu opnast í notkun rafrænna skilríkja til auðkenningar og undirritunar. Nú nær 20 árum síðar þá er notkun rafrænna skilríkja til unirritunar enn mjög takmörkuð og því ætti að nýta þessar lagabreytingar til alvarlegrar naflaskoðunar hvers vegna svo er. Hugsanlega gæti eftirlitshlutverkið stutt vottunarstöðvarnar betur í auka traust almennings til rafrænnar auðkenningar með PKI skilríkjum og þar með stuðlað að meiri notkun? Ég sá um eftirlitið hjá Löggildingarstofu, las þá staðla sem eru í viðhenginu og flest annað tengt rafrænum undirritunum. Það er bjargföst skoðun mín að ef auka á notkun öruggra rafrænna auðkenninga þá þurfi eftirlitið að vera á höndum einhvers með breiðan tæknibakgrunn og mikla þekkingu á upplýsingaöryggi. Lögfræðingur sem einungis horfir á tyrfin lagatextan frá Brussel mun frekar draga úr en örva notkun rafrænna skilríkja á Íslandi. Eftirlitið í lögunum snýst um öryggi sbr. „stressed the importance of the security of electronic services, especially of electronic signatures“ ESB - 910/2014 10.11.2020 Grímur Kjartansson – 66 ára atvinnulaus GSM 8969894
- #3Neytendasamtökin
Meðfylgjandi er umsögn Neytendasamtakanna um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Neytendastofu nr 62/2005 ofl.
- #4SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu
Meðfylgjandi er umsögn SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Neytendastofu nr. 62/2005 og fleiri lögum (endurskoðun stjórnsýslu neytendamála).
- #5Viðskiptaráð Íslands
Meðfylgjandi er umsögn Viðskiptaráð um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Neytendastofu nr. 62/2005 og fleiri lögum.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.