Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-237/2020 · Atvinnuvegaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum er varða úrskurðaraðila á sviði neytendamála (einföldun úrskurðarnefnda).

Með frumvarpinu er lagt til að endurskoða gildandi fyrirkomulag úrskurðarnefndar í vátryggingarmálum, úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki, úrskurðarnefndar um dreifingu vátrygginga og eftirlitsnefndar fasteignasala.

Með frumvarpinu er lagt til að endurskoða gildandi fyrirkomulag nokkurra úrskurðarnefnda. Nánar tiltekið er lagt til að úrskurðarnefnd í vátryggingarmálum, úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki og úrskurðarnefnd um dreifingu vátrygginga verði ekki lengur lögbundnar. Þá er lagt til að eftirlitsnefnd fasteignasala taki ekki lengur til meðferðar einkaréttarlegan ágreining um þóknun eða skaðabætur vegna starfa fasteignasala. Þá er lagt til að gera breytingar á lögum um úrskurðaraðila á sviði neytendamála, nr. 81/2019, til að skýra nánar lögsögu lögbundinna og viðurkenndra úrskurðaraðila. Markmið frumvarpsins er að deilur neytenda við fjármálafyrirtæki, vátryggingarfyrirtæki, vátryggingamiðlara og fasteignasala verði framvegis leystar hjá frjálsum viðurkenndum úrskurðaraðilum í stað lögbundinna úrskurðaraðila.

S-237/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. nóv. 2020 – 18. nóv. 2020· 0 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum er varða úrskurðaraðila á sviði neytendamála (einföldun úrskurðarnefnda).

Með frumvarpinu er lagt til að endurskoða gildandi fyrirkomulag úrskurðarnefndar í vátryggingarmálum, úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki, úrskurðarnefndar um dreifingu vátrygginga og eftirlitsnefndar fasteignasala.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-237/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 18. nóvember 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 400)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (15. september 2021)

Engin umsögn barst við frumvarpsdrög í samráðsgátt. Stjórnarfrumvarp var lagt fram á Alþingi þann 14. desember 2020, sbr. þskj. 574 á 151. löggjafarþingi 2020-2021 (4000 mál). Frumvarpið var samþykkt sem lög frá Alþingi þann 16. mars 2021, sbr. lög nr. 19/2021 um breytingu á ýmsum lögum er varða úrskurðaraðila á sviði neytendamála (einföldun úrskurðarnefnda).

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-237/2020: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum er varða úrskurðaraðila á sviði neytendamála (einföldun úrskurðarnefnda). · Alviti