Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 87/2018, um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (nikótínvörur)
Í frumvarpi þessu sem er samið í heilbrigðisráðuneytinu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 87/2018, um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur. Með breytingunum eru tóbakslausar nikótínvörur felldar undir gildissvið laganna, þar á meðal nikótínpúðar.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-277/2020)
- Umsagnarfrestur hefst · til 31. janúar 2021
- Umsagnarfresti lýkur · 25 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 713)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (9. júlí 2021)
Máli þessu lauk með framlagningu frumvarps á 151. löggjafarþingi, en var ekki samþykkt.
- Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 87/2018 um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (nikótínvörur)
- Áform um lagasetningu - frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 87/2018 (nikótínvörur)
- Frumvarp til laga (nikótínvörur) skeytt saman við lög nr. 87/2018
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (25)
- #1Helena Líndal Baldvinsdóttir
F.h. Eitrunarmiðstöðvar Landspítala þá óskar miðstöðin eftir því að bætt verði við kaflann "14. gr. Tilkynning til Neytendastofu." að skyllt sé að senda Eitrunarmiðstöðinni öryggisblöð fyrir þær nikótínvörur sem óskað er eftir að selja. Öryggisblöðin verði send á netfangið: eitur@landspitali.is
- #2Hafnarfjarðarkaupstaður
Sjá meðfylgjandi viðhengi.
- #3LYFIS ehf.
Meðfylgjandi eru athugasemdir forsvarsmanna LYFIS vegna frumvarps til laga um breytingu á lögum um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (nikótínvörur)
- #4Fjölmiðlanefnd
Í hjálögðu viðhengi er umsögn fjölmiðlanefndar um frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 87/2018 um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (nikótínvörur).
- #5Ingibjörg Þ Sigurþórsdóttir
Umsögn um: 151. löggjafarþing 2020-2021. Mál nr. 277/2020 Frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 87/2018, um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (nikótínvörur). Undirrituð sitja í Samráðshópi um forvarnir hjá Reykjavíkurborg og hafa kynnt sér frumvarp til laga um breytingar á lögum um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (nikótínvörur). Hópurinn, sem samanstendur af sérfræðingum stjórnsýslusviða borgarinnar sem hafa með málefni barna og unglinga að gera, telur brýna þörf á skýrri löggjöf um nikótínvörur sem takmarkar aðgengi að vörunum og fagnar því þessari lagabreyt… Lesa alla
Umsögn um: 151. löggjafarþing 2020-2021. Mál nr. 277/2020 Frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 87/2018, um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (nikótínvörur). Undirrituð sitja í Samráðshópi um forvarnir hjá Reykjavíkurborg og hafa kynnt sér frumvarp til laga um breytingar á lögum um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (nikótínvörur). Hópurinn, sem samanstendur af sérfræðingum stjórnsýslusviða borgarinnar sem hafa með málefni barna og unglinga að gera, telur brýna þörf á skýrri löggjöf um nikótínvörur sem takmarkar aðgengi að vörunum og fagnar því þessari lagabreytingu. Hópurinn lýsir yfir ánægju sinni á því að aldursmörk sölu og afhendingar miðist við 18 ára aldur og að sýnileikabann verði í almennum verslunum. Jafnframt því að ekki megi auglýsa nikótínvörur, að á umbúðum verði viðvaranir og merkingar um styrkleika nikótíns. Einnig er ánægjulegt að hámarksstyrkleiki nikótíns í vörunum verði lögbundinn. Að öðru leyti eru eftirfarandi athugasemdir gerðar við frumvarpið. Notkun nikótínpúða er umtalsverð meðal unglinga. Í október síðastliðnum höfðu um 10% unglinga í 10. bekk grunnskóla notað nikótínpúða í vör einu sinni eða oftar 30 daga þar á undan. Ekki hefur verið unnt að bregðast afdráttarlaust við neyslu ungmenna vegna skorts á tilhlítandi lagasetningu. Lagt er til að notkun nikótínvara verði óheimil, sbr. 12. gr. fyrrgreindra laga ,,í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum og öðrum menntastofnunum sem og í öðrum húsakynnum sem ætluð eru til dagvistunar og félags-, íþrótta- og tómstundastarfs barna og ungmenna,“ Því mikilvægt er að notkunin sé bönnuð bæði fyrir börnum og fullorðnum í starfsemi með börnum. Það er ekki gott ef hinar fullorðnu fyrirmyndir mega neyta nikótínvara fyrir framan börnin í starfinu. Jafnframt telur hópurinn mikilvægt að lögin taki til þess að börn og unglingar geti ekki keypt sér nikótívörur á netinu og að girt verði fyrir að unglingar geti pantað nikótínpúða á netinu og fengið afhent á bensínstöðvum. Hópurinn veltir því upp hvort ekki hefði verið heppilegt að vera með eina löggjöf sem nái til tóbaks og nikótíns, þ.e að sameina löggjöf um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (nikótínvörur), nr. 87/2018 og lög um tóbaksvarnir nr. 6/2002. Í því fælist að setja rafrettur og áfyllingar ásamt nikótínvörum undir sama hatt og tóbak. Með því féllu eftirlit og dreifing undir ÁTVR og takmarkanir yrðu hinar sömu. Reykjavík, 27. janúar 2021 Guðrún Halla Jónsdóttir, Miðgarði, Þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness Hólmfríður G Guðjónsdóttir, skólastjóri Hólabrekkuskóla Ingibjörg Sigurþórsdóttir, Miðgarði, Þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness Magnús Arnar Sveinbjörnsson, Umhverfis- og skipulagssviði Markús Heimir Guðmundsson, Hitt húsið, Íþrótta- og tómstundasviði Sigrún Sveinbjörnsdóttir, Skóla- og frístundasviði Þóra Kemp, Velferðasviði
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.