Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-242/2020 · Innviðaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003. Frumvarpið hefur að geyma ákvæði um eldisgjald og rafræna vöktun í höfnum. Þá er það jafnframt til innleiðingar á ákvæðum EES-gerðar um þjónustu í höfnum og gagnsæi í fjármálum hafna.

Frumvarpi þessu er ætlað að innleiða ákvæði reglugerðar (ESB) 2017/352 um að setja ramma um veitingu hafnarþjónustu og um sameiginlegar reglur um gagnsæi í fjármálum fyrir hafnir. Lagðar eru til breytingar að því er varða gjaldtöku hafna, þ.e. að höfnum, sem eru innan samevrópska flutninganetsins, sé skylt að eiga samráð við notendur hafna um gjaldtöku sína. Þær skuli jafnframt veita notendum hafna upplýsingar um breytingar á eðli eða fjárhæð hafnargjalds a.m.k. tveimur mánuðum áður en breytingarnar taka gildi. Þá er mælt fyrir um að gjaldskrárákarðanir hafna innan samevrópska flutninganetsins verði kæranlegar til Samgöngustofu. Íslenskar hafnir í samevrópska flutninganetinu eru Faxaflóahafnir/Sundahöfn, Höfnin á Seyðisfirði, Hafnir Fjarðabyggðar/Mjóeyrarhöfn, Reyðarfirði, Höfnin í Vestmannaeyjum og Landeyjahöfn. Þá er lagt til að allar hafnir, sem falla undir gildissvið hafnalaga, verði heimilað að veita umhverfisafslætti. Í frumvarpinu er einnig að finna ákvæði um rafræna vöktun í höfnum. Á mörgum hafnarsvæðum er viðhaft myndavélaeftirlit. Þá er algengt að rauntímaefni myndavélanna sé sýnt á vefsíðum hafna í því skyni að leyfa bátaeigendum að fylgjast með bátum sínum og veðurlagi. Hafa skipstjórnarmenn, sem eru á leið til hafnar, einnig notað þessar upplýsingar til að sjá hvar laus pláss við hafnir séu. Þörf er á lagaheimild fyrir vinnslu persónuupplýsinga svo að gildandi réttur fullnægi skyldum laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Loks mælir frumvarpið fyrir um nýtt ákvæði í 17. gr. hafnalaga um gjöld, um svokallað eldisgjald. Fiskeldisfyrirtæki eiga í viðskiptum við hafnir víðs vegar um landið. Einn þátturinn í starfsemi fiskeldisfyrirtækja varðar flutning eldisfisks um hafnir, þ.e. umskipun, lestun og losun. Sumar hafnir hafa byggt gjaldtöku vegna þessarar starfsemi í höfnum á ákvæði um aflagjald, þ.e. e-lið 2. mgr. 17. gr. laganna. Þar segir að höfnum sé í gjaldskrá heimilt að innheimta aflagjald af sjávarafurðum sem umskipað er, lestaðar eru eða losaðar í höfnum. Ágreiningur hefur verið uppi um lögmæti þessarar gjaldtöku þar sem hún nái samkvæmt orðum sínum til afla sjávarútvegsfyrirtækja en ekki til eldisfisks frá fiskeldisfyrirtækjum. Að mati ráðuneytisins er þörf á því að leysa úr þessari réttaróvissu. Eldisgjald er gjald sem tekið er fyrir eldisfisk í sjókvíum sem umskipað er, lestaður er eða losaður í höfnum. Um er að ræða þjónustugjald sem hafnir geta mælt fyrir um í gjaldskrám en í ákvæðinu er skýrt hvaða þætti í rekstri hafna gjaldinu er ætlað að standa undir.

S-242/2020· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. nóv. 2020 – 23. nóv. 2020· 13 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003. Frumvarpið hefur að geyma ákvæði um eldisgjald og rafræna vöktun í höfnum. Þá er það jafnframt til innleiðingar á ákvæðum EES-gerðar um þjónustu í höfnum og gagnsæi í fjármálum hafna.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-242/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 23. nóvember 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 13 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 509)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (16. september 2021)

Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003, var lagt fyrir Alþingi á 151. löggjafarþingi (sjá 509. mál). Umfjöllun um niðurstöður samráðs sem fram fór um frumvarpið er að finna í greinargerð þess.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (13)
  • #2Reykjaneshöfn
    Á 246. fundi Stjórnar Reykjaneshafnar fimmtudaginn 19. nóvember 2020 var bókað eftirfarandi í dagskrálið 3.b: Í samráðsgátt stjórnvalda er til umsagnar frumvarp til breytingu á hafnalögum nr. 61/2003. Hafnasamband Íslands hefur lagt fram umsögn um drögin sem liggja fyrir á fundinum. Eftirfarandi var lagt fram: Stjórn Reykjaneshafnar tekur að fullu undir þær athugasemdir og tillögur sem fram koma í umsögn Hafnasambands Íslands um frumvarp til breytingar á hafnalögum nr. 61/2003. Stjórn Reykjaneshafnar hvetur ráðherra samgöngumála að horfa til þeirrar umsagnar við endanlega útfærslu frumvarp… Lesa alla

    Á 246. fundi Stjórnar Reykjaneshafnar fimmtudaginn 19. nóvember 2020 var bókað eftirfarandi í dagskrálið 3.b: Í samráðsgátt stjórnvalda er til umsagnar frumvarp til breytingu á hafnalögum nr. 61/2003. Hafnasamband Íslands hefur lagt fram umsögn um drögin sem liggja fyrir á fundinum. Eftirfarandi var lagt fram: Stjórn Reykjaneshafnar tekur að fullu undir þær athugasemdir og tillögur sem fram koma í umsögn Hafnasambands Íslands um frumvarp til breytingar á hafnalögum nr. 61/2003. Stjórn Reykjaneshafnar hvetur ráðherra samgöngumála að horfa til þeirrar umsagnar við endanlega útfærslu frumvarpsins. Samþykkt samhljóða.

  • #3Hafnasamband Íslands

    Í viðhengi er rétt útgáfa af umsögn Hafnasambands Íslands.

  • #4Norðurþing

    Skipulags- og framkvæmdaráð í Norðurþingi tekur undir eins og segir í 6. gr. B lið í umsögn Hafnasambandsins. Að mikilvægt er að skerpa á ákvæðum hafnalaga um farþegagjald, sem hafa valdið ágreiningi og deilum í mörgum höfnum. Hafsækin ferðaþjónusta hefur vaxið hratt síðustu ár og farþegagjaldinu ætlað að standa undir skilgreindum fjárfestingu eldri og nýrri aðstöðu vegna nýrrar þjónustugreinar. Skipulags- og framkvæmdaráð Norðurþings.

  • #5Tálknafjarðarhreppur

    Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003.

  • #6Vesturbyggð

    Meðfylgjandi er umsögn Vesturbyggðar um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum nr. 61/2003.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-242/2020: Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003. · Alviti