Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-258/2020 · Innviðaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um Fjarskiptastofu

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um Fjarskiptastofu.

Í frumvarpi þessu felst heildarendurskoðun á lögum um Póst- og fjarskiptastofnun, með tilliti til áorðinna og fyrirsjáanlegra breytinga á verkefnum stofnunarinnar. Sá lagarammi sem stofnunin vinnur eftir hefur tekið miklum breytingum á undanförnum misserum. Sem dæmi um nýlegar lagabreytingar má nefna ný póstlög nr. 98/2019, ný lög um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða nr. 78/2019, og lög nr. 125/2019 um ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraðafjarskiptaneta. Þá eru nú til umfjöllunar á Alþingi frumvarp til nýrra fjarskiptalaga og frumvarp til laga um landslénið .is, sem hvoru tveggja hafa áhrif á starfsumhverfi Póst- og fjarskiptastofnunar. Meginþungi verkefna stofnunarinnar snýr að fjarskipta- og netöryggismálum, en póstmál eru aðeins um 6% af starfsemi stofnunarinnar. Í kjölfar greiningar á verkefnum stofnunarinnar hefur einnig verið lagt til að eftirlit með póstmálum flytjist frá Póst- og fjarskiptastofnun. Ákvæði er varða flutning eftirlits með póstþjónustu verða lögð fram í öðru frumvarpi sem til stendur að flytja samhliða þessu frumvarpi. Með frumvarpi þessu er ætlunin að einfalda og skýra regluverkið sem gildir um þá stofnun sem fer með eftirlit og stjórnsýslu á fjarskiptamarkaði. Meginmarkmið þeirra breytinga sem hér eru lagðar til er jafnframt að stuðla að því að stofnunin mæti væntingum og þörfum samfélagsins í heimi fjarskipta og netöryggis, með því að gera stofnuninni kleift að styrkja þá þætti stofnunarinnar er snúa að tæknilegum verkefnum, en á næstu árum munu verkefni stofnunarinnar á sviði netöryggismála aukast til muna. Á fáum sviðum er viðvarandi jafn hröð tækniþróun eins og raun ber vitni á sviði fjarskipta- og netöryggis. Fjarskipti gegna lykilhlutverki í nútímasamfélagi og eru grundvöllur fyrir þjónustu á svo mörgum öðrum sviðum, því er sérstaklega mikilvægt að huga að því að öll umgjörð sé eins og best verður á kosið. Þrátt fyrir að Ísland standi mjög framarlega í alþjóðlegu samhengi hvað varðar grunnlag fjarskipta, þ.e. gæði og fjölda háhraðanettenginga á landsvísu, þá er einnig mikilvægt að tryggja næsta lag, þ.e.a.s. öryggi fjarskiptanna, til að fjarskiptagrunnvirkin nýtist sem best. Nauðsynlegt er að aðhafast til þess að halda í við tækniþróun, og nýta þau tækifæri sem bjóðast til úrbóta. Það er mikilvægt að leita leiða til þess að stofnunin geti þjónustað samfélagið sem best til framtíðar. Til að endurspegla betur verkefni stofnunarinnar er lögð til nafnabreyting og er lagt til að stofnunin heiti nú Fjarskiptastofa. Í þessu frumvarpi felst ekki innleiðing á EES-gerðum. Aftur á móti ber að hafa í huga að gildandi lög um Póst- og fjarskiptastofnun sem og fjarskiptalöggjöf og tengt regluverk byggist að miklu leyti á samevrópsku regluverki. Ráðuneytið óskar eftir umsögnum frá haghöfum um drög að frumvarpi til laga um Fjarskiptastofu.

S-258/2020· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. nóv. 2020 – 13. des. 2020· 3 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um Fjarskiptastofu

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um Fjarskiptastofu.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-258/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 13. desember 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 506)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (5. nóvember 2021)

Sjá meðfylgjandi niðurstöðuskjal.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-258/2020: Drög að frumvarpi til laga um Fjarskiptastofu · Alviti