Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-239/2020 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (skattalegir hvatar fyrir lögaðila sem starfa til almannaheilla).

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (skattalegir hvatar fyrir lögaðila sem starfa til almannaheilla).

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ýmsum lögum um skatta og gjöld til eflingar á skattalegu umhverfi þeirra lögaðila sem starfa til almannaheilla og falla undir þriðja geirann. Breytingarnar taka að miklu leyti mið af tillögum starfshóps um skattalegt umhverfi þriðja geirans. Markmið frumvarpsins er að auka skattalega hvata fyrir þá lögaðila sem falla undir þriðja geirann og starfa til almannaheilla og skjóta þannig styrkari stoðum undir þá starfsemi sem þar fer fram. Þá þykir rétt að auka jafnframt hvatann fyrir gefendur vegna gjafa og framlaga til þeirrar starfsemi. Með auknum skattalegum hvötum bæði fyrir þiggjendur og gefendur mun sú starfsemi til almannaheilla sem fellur undir þriðja geirann eflast og styrkjast sem leiðir til auðgunar á því mikilvæga sjálfboðaliðastarfi sem fram fer í hinum ýmsu félögum og félagasamtökum um land allt. Helstu efnisatriði frumvarpsins eru eftirfarandi: — Að hugtakið ,,almannaheill“ komi í stað hugtaksins ,,almenningsheill“ og verði skilgreint nánar í lögum um tekjuskatt. — Að einstaklingum verði heimilt að draga einstaka fjárframlög til þeirra lögaðila sem starfa til almannaheilla frá skattskyldum tekjum, að hámarki 350 þús. kr. á hverju almanaksári, að frekari skilyrðum uppfylltum. — Að hlutfall frádráttarheimildar atvinnurekstraraðila vegna einstakra fjárframlaga til almenningsheilla verði hækkað úr 0,75% í 1,5% að frekari skilyrðum uppfylltum. — Að þeir lögaðilar sem starfa til almannaheilla verði undanþegnir tekjuskatti af tilgreindum fjármagnstekjum. — Að þeir lögaðilar sem starfa til almannaheilla verði undanþegnir staðgreiðslu skatts á tilgreindar fjármagnstekjur. — Að þeim lögaðilum sem starfa til almannaheilla verði gert kleift að óska eftir 60% endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnulið vegna vinnu á byggingarstað, eða vegna endurbóta eða viðhalds, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. — Að hugtakið góðgerðarstarfsemi verið skilgreint nánar í lögum um virðisaukaskatt. Samhliða er lagt til að sá dagafjöldi sem miðað er við vegna undanþágu góðgerðarstarfsemi frá virðisaukaskatti verði aukinn og að ákvæðið verði útvíkkað. — Að þeir aðilar sem starfa til almannaheilla og eru undanþegnir tekjuskatti verði jafnframt undanþegnir gjaldskyldu stimpilgjalds samkvæmt lögum um stimpilgjald. — Að í lögum um erfðafjárskatt verði kveðið á um að ekki skuli greiða erfðafjárskatt af gjöfum og framlögum til aðila sem starfa til almannaheilla.

S-239/2020· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. nóv. 2020 – 17. nóv. 2020· 17 umsagnir

Drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (skattalegir hvatar fyrir lögaðila sem starfa til almannaheilla).

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (skattalegir hvatar fyrir lögaðila sem starfa til almannaheilla).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-239/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 17. nóvember 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 17 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 342)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (27. nóvember 2020)

Sautján umsagnir bárust. Gerðar voru breytingar á nokkrum greinum frumvarpsins í ljósi framkominna athugasemda. Sjá nánari umfjöllun í niðurstöðuskjali.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (17)
  • #1Bandalag íslenskra skáta

    Bandalag íslenskra skáta fagnar þessum breytingum sem snúa að þriðja geiranum. Það er ljóst að fjárhagsleg áhrif munu vera jákvæð fyrir m.a. skátastarf í landinu. Skátafélög reka í flestum tilfellum sitt eigið húsnæði og því skiptir það miklu málið að geta sinnt eðlilegu viðhaldi og uppbyggingu á sem hagstæðastan hátt. Eins er þarna að finna fjölmarga þætti sem létta undir með erfiðum rekstri. Þriðji geirinn er afar mikilvægur í okkar samfélagið og sjálfboðaliðar skila inn verðmætu vinnuframlagi til samfélagsins. F.h. Bandalags íslenskra skáta Kristinn Ólafsson Framkvæmdastjóri

  • #2Brautin bindindisfélag ökumanna
    Félagið lýsir ánægju með drögin og telur að þau muni verða til góða fyrir samfélagið. Félagið leggur jafnframt til að frjáls félagasamtök sem vinna að forvarnastarfi séu einnig skilgreind sem starfsemi til almannaheilla. Má þar nefna félagasamtök sem vinna að umferðaröryggismálum, forvörnum gegn fíkniefnanotkun, forvörnum gegn sjálfsvígum o.s.frv. Slík félagasamtök sinna mikilvægum málefnum í samfélaginu og treysta á velvilja almennings, fyrirtækja, sjóða og hins opinbera. Slík félagasamtök falla vel að tilefni laganna þar sem þau starfa með samfélagsleg markmið að leiðarljósi og haf… Lesa alla

    Félagið lýsir ánægju með drögin og telur að þau muni verða til góða fyrir samfélagið. Félagið leggur jafnframt til að frjáls félagasamtök sem vinna að forvarnastarfi séu einnig skilgreind sem starfsemi til almannaheilla. Má þar nefna félagasamtök sem vinna að umferðaröryggismálum, forvörnum gegn fíkniefnanotkun, forvörnum gegn sjálfsvígum o.s.frv. Slík félagasamtök sinna mikilvægum málefnum í samfélaginu og treysta á velvilja almennings, fyrirtækja, sjóða og hins opinbera. Slík félagasamtök falla vel að tilefni laganna þar sem þau starfa með samfélagsleg markmið að leiðarljósi og hafa það að meginmarkmiði að vinna að umbótum í þágu almennings og samfélagsins. Fyrir hönd Brautarinnar - bindindisfélags ökumanna Guðmundur Karl Einarsson Gjaldkeri stjórnar

  • #3Magnús Björnsson
    Í drögunum stendur: " Einstaka gjafir og framlög til lögaðila sem hafa með höndum starfsemi til almannaheilla skv. a–f-lið 4. tölul. 4. gr., að lágmarki 10 þús. kr. og allt að hámarki 350 þús. kr. á almanaksári" Ekki virðist fastur styrkur, t.d. 1000 kr á mánuði falla undir þetta þótt heildar fjárhæð yfir árið sé yfir tilgreindu lágmarki. Fastir styrkir í formi mánaðrgreiðslna eru mikilvægir í rekstri margra félaga og samtaka en gera má ráð fyrir því að stærstur hluti þeirra nái ekki 10 þús. kr. á mánuði. Skýra þarf hvort mánaðarstyrkir sem samtals ná yfir 10 þús. kr. mörkin falli undir þen… Lesa alla

    Í drögunum stendur: " Einstaka gjafir og framlög til lögaðila sem hafa með höndum starfsemi til almannaheilla skv. a–f-lið 4. tölul. 4. gr., að lágmarki 10 þús. kr. og allt að hámarki 350 þús. kr. á almanaksári" Ekki virðist fastur styrkur, t.d. 1000 kr á mánuði falla undir þetta þótt heildar fjárhæð yfir árið sé yfir tilgreindu lágmarki. Fastir styrkir í formi mánaðrgreiðslna eru mikilvægir í rekstri margra félaga og samtaka en gera má ráð fyrir því að stærstur hluti þeirra nái ekki 10 þús. kr. á mánuði. Skýra þarf hvort mánaðarstyrkir sem samtals ná yfir 10 þús. kr. mörkin falli undir þennan lið.

  • #4Bjarni Valur Guðmundsson

    Ágæti viðtakandi. Mér finnst að kaup á skjalaöskjum, blöðum og bleki til útprentunar tölvupósta vegna gjafar á sínu eigin einkaskjalasafni til Þjóðskjalsafns eigi að heyra undir þessi lög. Eins það ef maður kaupir skjöl á Netinu og gefur þau til skjalasafns eða skjalsafn kaupir þau ekki af manni á kostnaðarverði. Mér finnst líka að þessi lög eigi að gilda fyrir nótur og gjafir á þessu ári svo maður geti fært þetta inn á næsta skattframtali. Með virðingu, Bjarni.

  • #5Krabbameinsfélag Íslands
    Krabbameinsfélag Íslands fagnar þeim tímabæru breytingum sem lagðar eru til í frumvarpsdrögunum. Breytingarnar munu án efa hafa jákvæð áhrif og efla þriðja geirann í sínum mikilvægu störfum til almannaheilla. Félagið gerir eftirfarandi athugasemdir: 2. gr.: Í greininni þarf að taka tillit til þess að styrkir til félagasamtaka eru oft ekki greiddir í einni greiðslu heldur brotnir niður á greiðslur í hverjum mánuði. Gera þarf ráð fyrir að þegar styrkir hvers og eins nema samtals á bilinu frá 10.000 til 350.000, á almanaksári, sé viðkomandi veittur frádráttur frá skatti, að uppfylltum öðrum s… Lesa alla

    Krabbameinsfélag Íslands fagnar þeim tímabæru breytingum sem lagðar eru til í frumvarpsdrögunum. Breytingarnar munu án efa hafa jákvæð áhrif og efla þriðja geirann í sínum mikilvægu störfum til almannaheilla. Félagið gerir eftirfarandi athugasemdir: 2. gr.: Í greininni þarf að taka tillit til þess að styrkir til félagasamtaka eru oft ekki greiddir í einni greiðslu heldur brotnir niður á greiðslur í hverjum mánuði. Gera þarf ráð fyrir að þegar styrkir hvers og eins nema samtals á bilinu frá 10.000 til 350.000, á almanaksári, sé viðkomandi veittur frádráttur frá skatti, að uppfylltum öðrum skilyrðum. Mikilvægt er sömuleiðis að búa þannig um hnúta í reglugerð ráðherra að auðvelt verði tæknilega fyrir bæði lítil og stór félagasamtök að gera skil á styrkjum til Skattsins. 8. gr. Í síðustu málsgrein er fjallað um að verði breyting á forsendum endurgreiðslu virðisaukaskatts innan 10 ára frá því að framkvæmd fór fram, skuli félög leiðrétta virðisaukaskatt og endurgreiða ríkissjóði. Krabbameinsfélagið leggur til að tímabilið frá því að framkvæmd fór fram og þar til þær breytingar verða sem geta kallað á endurgreiðslu, verði stytt í fimm ár. Endurgreiðsla félaga til ríkissjóðs verði ekki að fullu allan þann tíma, heldur reiknist hlutfallslega miðað við fimm ár. Með kveðju Halla Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-239/2020: Drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (skattalegir hvatar fyrir lögaðila sem starfa til almannaheilla). · Alviti