Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (Skattalegir hvatar vegna starfsemi til almannaheilla - þriðji geirinn)
Áform um breytingar á ýmsum lögum um skatta og gjöld með það að markmiði að efla og styrkja starfsemi þeirra lögaðila sem starfa til almannaheilla og falla undir þriðja geirann.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-203/2020)
- Umsagnarfrestur hefst · til 13. október 2020
- Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (27. nóvember 2020)
Sex umsagnir bárust og voru þær almennt mjög jákvæðar. Tekið var tillit til framkominna athugasemda að nokkru leyti við gerð draga að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (Skattalegir hvatar fyrir lögaðila sem starfa til almannaheilla), sbr. mál nr. 239/2020 á samráðsgátt stjórnvalda, sjá nánar hér: https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=2828
- Áform um lagasetningu - Þriðji geirinn.pdf
- Frummat á áhrifum - Þriðji geirinn.pdf
- Skýrsla starfshóps um skattlagningu á starfsemi sem fellur undir þriðja geirann
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)
- #1Slysavarnafélagið Landsbjörg
Hjálagt fylgir umsögn Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
- #2Barnaheill - Save the Children á Íslandi
Umsögn Barnaheilla - Save the Children á Íslandi um áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (Skattalegir hvatar vegna starfsemi til almannaheilla – þriðji geirinn). Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa haft ofangreint mál til umsagnar og vilja koma eftirfarandi á framfæri við ráðuneytið: Samtökin lýsa yfir ánægju sinni með fyrirhugaðar breytingar á lögum í þeim tilgangi að skapa skattalegan hvata fyrir lögaðila og einstaklinga til að styrkja og efla starfsemi almannaheillafélaga. Barnaheill fagna þeirri viðurkenningu sem birtist í umfjöllun ráðu… Lesa alla
Umsögn Barnaheilla - Save the Children á Íslandi um áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (Skattalegir hvatar vegna starfsemi til almannaheilla – þriðji geirinn). Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa haft ofangreint mál til umsagnar og vilja koma eftirfarandi á framfæri við ráðuneytið: Samtökin lýsa yfir ánægju sinni með fyrirhugaðar breytingar á lögum í þeim tilgangi að skapa skattalegan hvata fyrir lögaðila og einstaklinga til að styrkja og efla starfsemi almannaheillafélaga. Barnaheill fagna þeirri viðurkenningu sem birtist í umfjöllun ráðuneytisins um málið, að starfsemi almannaheillafélaga sé samfélagslega mikilvæg og þakka fyrir hana. Barnaheill styðja þær hugmyndir sem fram eru komnar um breytingar á lögum og um þær leiðir sem lagðar eru til. Samtökin hvetja þó ráðuneytið til að stíga skrefinu lengra í því að veita almannaheillafélögum undanþágu frá greiðslu virðisaukaskatts, með því að undanskilja alfarið, ekki einungis tímabundið, hvers kyns sölu á varningi eða þjónustu almannaheillafélaga frá greiðslu virðisaukaskatts þar sem gera má ráð fyrir að sala sem fram fer á vegum almannaheillafélaga sé gerð í fjáröflunartilgangi en ekki í hagnaðarskyni. Barnaheill hvetja til þess að málið fái vandaða meðferð og leggja sitt af mörkum til að styðja við að það fái framgang. Barnaheill vinna að bættum réttindum barna og hafa Barnasáttmálann að leiðarljósi í öllu sínu starfi.
- #3Hagsmunasamtök heimilanna
Sjá viðhengi.
- #4Ungmennafélag Íslands
Meðfylgjandi er umsögn UMFÍ.
- #5Jónas Guðmundsson
Reykjavík 12. október 2020 Skattamál almannaheillasamtaka: Umsögn Almannaheilla um boðað frumvarp Umsögn um: Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (Skattalegir hvatar vegna starfsemi til almannaheilla – þriðji geirinn). Mál nr. 24 á þingmálaskrá fjármála- og efnahagsráðherra. Það er Almannaheill að sjálfsögðu mikið fagnaðarefni að hér eru boðuð áform um að létta sköttum og gjöldum af íslenskum almannaheillasamtökum. Almannaheill hafa margoft á undanförnum árum ítrekað það álit sitt að brýnt sé að styrkja skattalega stöðu almannaheillasamtaka í la… Lesa alla
Reykjavík 12. október 2020 Skattamál almannaheillasamtaka: Umsögn Almannaheilla um boðað frumvarp Umsögn um: Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (Skattalegir hvatar vegna starfsemi til almannaheilla – þriðji geirinn). Mál nr. 24 á þingmálaskrá fjármála- og efnahagsráðherra. Það er Almannaheill að sjálfsögðu mikið fagnaðarefni að hér eru boðuð áform um að létta sköttum og gjöldum af íslenskum almannaheillasamtökum. Almannaheill hafa margoft á undanförnum árum ítrekað það álit sitt að brýnt sé að styrkja skattalega stöðu almannaheillasamtaka í landinu. Þau hafa löngum búið við mun erfiðara skattaumhverfi en almannaheillasamtök í samanburðarlöndunum. Afleiðingin er sú að íslensk samtök eru fjárhagslega veikari og ver undirbúin til að takast á við óleyst samfélagsleg málefni og samfélagsleg áföll en efni standa til. Þetta kemur t.d. berlega í ljós nú þegar veirufaraldur herjar á landsmenn. Almannaheillasamtök, sem vinna gegn ýmsum afleiðingum faraldursins, s.s. fátækt, kvíða, sjálfsvígshættu, hungri, vanheilsu, atvinnuleysi, sorg og ótta standa mörg fjárhagslega höllum fæti til að sinna hlutverki sínu af krafti og hafa sjálf orðið fyrir áföllum í faraldrinum. Íslensk stjórnvöld hafa ekki séð sér fært að veita almannaheillasamtökum umtalsverðarn stuðning við þessar aðstæður—þau hafa veitt nokkra styrki vegna nýrra verkefna og þjónustu sem samtökin takast á hendur vegna hins bága ástands. Þessi veika staða félaganna getur orðið samfélaginu dýrkeypt. Þó skattabreytingar bæti ekki skaðann í bráð gera þær almannaheilla¬samtök betur búin undir næstu áföll og undir áframhaldandi glímu við þann veruleika sem við blasir. Hið sama myndi sterkari lagaleg staða almannaheillasamtaka gera, en samtökin hafa beðið eftir samþykkt frumvarps til laga á Alþingi um félög til almannaheilla um nokkurra ára skeið. Örugg skattaleg og lagaleg umgjörð er mikilvæg undirstaða fyrir það samfélagslega starf sem almannaheillasamtökin vinna. Þær tillögur um skattabreytingar sem boðaðar eru í þessum “áformum um frumvarp till laga” eru byggðar á skýrslu ráðherraskipaðrar nefndar sem skilaði áliti fyrr á þessu ári. Tillögurnar marka viss tímamót og munu, ef þær verða að lögum, bæta verulega skattalega stöðu samtaka sem vinna að almannaheill. Mestum tíðindum sæta heimildir til handa einstaklingum til að lækka skattgreiðslur sínar með því að beina styrkjum til viðurkenndra almannaheillafélaga. Slík skattaleg hvatning til fólks um að styrkja félög til góðra verka er í sumum öðrum löndum talin verðmætust allra skattaívilnana sem þarlend félög búa við, eins og bent var á í áliti Almannaheilla í samráðsgátt fyrir um ári síðan (umsögn send 30. ágúst 2019). Í frummati sem hér liggur ennfremur fyrir á áhrifum breytinganna kemur fram að breytingarnar muni létta um 2ja milljarða álögum af almannaheillasamtökum á ári hverju. Nokkuð skortir á að þessi upphæð sé sett í samhengi: hvað vegur þessi lækkun mikið í heildarskattgreiðslum almannaheillasamtaka í landinu? Og ekki síður: hvaða samtökum kemur lækkunin helst til góða? Nauðsynlegt er að fá fram nánari greiningu á hvernig þessar nýju ívilnanair koma fram hjá einstökum flokkum eða tegundum almannaheillasamtaka; þetta er nauðsynlegt að fá fram vegna þess að almannaheillasamtök búa við mjög ólíkar aðstæður og hafa ólíka stöðu. Greinargerð af þessu tagi þyrfti að fylgja með boðuðu frumvarpi til laga. Þó ljóst sé að lögin sem hér eru boðuð muni breyta miklu um rekstur íslenskra almanna¬heillasamtaka, þá munu þau ekki tæma óskalista Almannaheilla og skyldra aðila varðandi þróun skattalegs umhverfis almannaheillastarfs; boðuð lög munu heldur ekki brúa að fullu það bil sem er á milli íslenskra almannaheillasamtaka og sambærilegra samtaka í samanburðarlöndunum í skattalegum efnum. Sérstaklega þarf í framhaldinu að skoða greiðslur almannaheillasamtaka á innskatti virðisaukaskatts, sem vega nú þyngra en aðrar skattgreiðslur í útgjöldum íslenskra almannaheillasamtaka samkvæmt könnun sem Almannaheill hafa gert—mörg sambærileg samtök í nágrannalöndunum eru undanþegin þessum skatti. Almannaheill lýsa sig reiðubúin til frekara samráðs við stjórnvöld um útfærslu breytinga á skattaumhverfi íslenskra almannaheillasamtaka. f.h. Almannaheilla, samtaka þriðja geirans ¬¬¬¬¬¬¬¬¬¬¬¬__________________________________________ Jónas Guðmundsson formaður
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.