Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
108 mál · sótt 27. október 2026
- Komið til AlþingisS-243/2019· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. okt. 2019 – 25. okt. 2019· 10 umsagnir
Frumvarp, hollustuhættir og mengunarvarnir (viðaukar)
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á starfsleyfis- eða skráningarskyldri starfsemi í þá veru að einungis verði gerð krafa um starfsleyfi eða að starfsemi sé skráð þegar þess er þörf með tilliti til umfangs og eðli starfseminnar. Markmið með frumvarpinu er að einfalda regluverk í þágu atvinnulífs og almennings.
- Komið til AlþingisS-241/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. sep. 2019 – 7. okt. 2019· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stimpilgjald, nr. 138/2013 (afnám stimpilgjalds af skjölum varðandi eignayfirfærslu skipa)
Í frumvarpinu er fyrirhugað að leggja til breytingar á lögum um stimpilgjald, nr. 138/2013, í tengslum við afnám stimpilgjalds af skjölum er varða eignayfirfærslu skipa.
- Komið til AlþingisS-239/2019· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. sep. 2019 – 14. okt. 2019· 1 umsögn
Frumvarp - breyting á lögum um loftslagsmál, nr. 70/2012
Breytingar verða lagðar til á lögum um loftslagsmál til þess að innleiða breytingar á tilskipun (ESB) 2018/410 sem breytir tilskipun 2003/87/EB um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. Frumvarpið mun einnig veita tveimur reglugerðum ESB lagastoð (2018/841 LULUCF og 2018/842 ESR) en innleiðing gerðanna er lykilatriði í samkomulagi Íslands við ESB og Noreg um markmið á grundvelli Parísarsamningsins.
- Komið til AlþingisS-238/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. sep. 2019 – 14. okt. 2019· 3 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 65/2015, um leigu skráningarskyldra ökutækja
Með frumvarpinu er lagt til að Samgöngustofu verði veitt heimild til að leggja stjórnvaldssektir á leyfishafa, einstakling eða lögaðila, sem breytir kílómetrastöðu skráningarskylds ökutækis, sem skráð er hjá Samgöngustofu í notkunarflokki ökutækjaleigu.
- Komið til AlþingisS-223/2019· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. sep. 2019 – 9. okt. 2019· 25 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007
Í frumvarpi þessu sem er samið í heilbrigðisráðuneytinu eru lagðar til breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007. Frumvarpið er lagt fram til að samræma lög um heilbrigðisþjónustu við tillögur heilbrigðisstefnu.
- Komið til AlþingisS-222/2019· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. sep. 2019 – 26. sep. 2019· 3 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um þjóðlendur og afmörkun eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998
Lög um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998, tóku gildi 1. júlí 1998 og er því nokkur reynsla komin á þá málsmeðferð sem mælt er fyrir um í lögunum. Ástæða er til að taka nokkur ákvæði laganna til endurskoðunar.
- Komið til AlþingisS-221/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. sep. 2019 – 19. sep. 2019· 2 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um innheimtu opinberra skatta og gjalda - Seinna samráð
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir nú í annað sinn til umsagnar drög að frumvarpi til laga um innheimtu opinberra skatta og gjalda. Frumvarpið var fyrst kynnt hinn 24. júlí 2019 með fresti til 28. ágúst 2019.
- Komið til AlþingisS-219/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. sep. 2019 – 20. sep. 2019· 0 umsagnir
Drög að frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 34/1991 um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri
Um er að ræða breytingar vegna athugasemda Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) vegna núverandi skilyrða um búsetu og heimilisfesti framkvæmdastjóra og stjórnenda í íslenskum atvinnufyrirtækjum. Breytingin afnemur þau skilyrði í samræmi við athugasemdir ESA.
- Komið til AlþingisS-216/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. sep. 2019 – 19. sep. 2019· 2 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á tollalögum og fleiri lögum (fyrirkomulag tollafgreiðslu og tollgæslu).
Verði frumvarpið að lögum mun tollafgreiðsla og tollgæsla, sem tollstjóri annast nú, færast til ríkisskattstjóra frá og með 1. janúar 2020.
- Komið til AlþingisS-214/2019· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. ágú. 2019 – 16. sep. 2019· 5 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um íslensk landshöfuðlén
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi til laga um íslensk landshöfuðlén.
- Komið til AlþingisS-208/2019· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. ágú. 2019 – 26. ágú. 2019· 0 umsagnir
Breyting á lögum um íslenskan ríkisborgararétt
Lagðar eru til breytingar á lögunum með það að markmiði að auka skilvirkni og skerpa á ákvæðum þeirra.
- Komið til AlþingisS-196/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. júl. 2019 – 28. ágú. 2019· 3 umsagnir
Drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um innheimtu opinberra skatta og gjalda
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um innheimtu opinberra skatta og gjalda.
- Komið til AlþingisS-193/2019· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. júl. 2019 – 9. ágú. 2019· 8 umsagnir
Áform um lagasetningu - Breyting á lögum um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa.
Áformað er að leggja fram frumvarp til að samræma skilgreiningu smáskipa í lögum nr. 30/2007 um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa við reglur um veiðileyfi með krókaaflamarki í lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða.
- Komið til AlþingisS-191/2019· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. júl. 2019 – 6. ágú. 2019· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 34/1991 um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri
Frumvarpinu er ætlað að breyta lögum nr. 34/1991 um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri. Frumvarpinu er ætlað að afnema búsetuskilyrði ríkisborgara í aðildarríkjum EES-samningsins, aðildarríkjum EFTA eða í Færeyjum.
- Komið til AlþingisS-189/2019· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. júl. 2019 – 13. ágú. 2019· 7 umsagnir
Frumvarp til laga um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Með frumvarpi þessu er lagt til að tvær stofnanir, Íbúðalánasjóður og Mannvirkjastofnun verði lagðar niður og nýrri stofnun, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun verði falið að annast framkvæmd húsnæðis- og mannvirkjamála. Fjármálaumsýsla vegna eldri starfsemi Íbúðalánasjóðs verður aðskilin frá nýrri sameinaðri stofnun.
- Komið til AlþingisS-188/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. júl. 2019 – 26. júl. 2019· 25 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórnun grásleppu).
Sjávarútvegs- landbúnaðarráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórnun grásleppu).
- Komið til AlþingisS-185/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. júl. 2019 – 4. sep. 2019· 1 umsögn
Drög að frumvarpi til laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja til innleiðingar á tilskipun 2014/59/ESB um endurreisn og skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.
- Komið til AlþingisS-183/2019· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. júl. 2019 – 16. ágú. 2019· 3 umsagnir
Áform um frumvarp um breytingu á lögum nr. 33/2013 um neytendalán
Starfshópur um endurskoðun á starfsumhverfi smálánafyrirtækja var skipaður með bréfi ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, dagsett 11. júlí 2018. Starfshópurinn skilaði skýrslu til ráðherra í janúar 2019.Með fyrirhuguðu frumvarpi er ætlað að bregðast við niðurstöðum þeirrar skýrslu
- Komið til AlþingisS-182/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. júl. 2019 – 30. ágú. 2019· 7 umsagnir
Drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til innleiðingar á tilskipun 2011/61/ESB um rekstraraðila sérhæfðra sjóða (AIFMD).
- Komið til AlþingisS-181/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. júl. 2019 – 29. ágú. 2019· 3 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga.
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 909/2014 um bætt verðbréfauppgjör og verðbréfamiðstöðvar (e. CSDR).
- Komið til AlþingisS-179/2019· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. júl. 2019 – 23. ágú. 2019· 3 umsagnir
Frumvarp, hollustuhættir og mengunarvarnir (viðaukar)
Með frumvarpinu er ætlunin að gera nokkrar breytingar á viðaukum í lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir til laga misræmi milli þeirra. Þá er þörf á að meta hvort tiltekna starfsemi vanti í viðauka við lögin sem og hvort einhver starfsemi sem tilgreind er í viðaukunum megi falla á brott.
- Komið til AlþingisS-177/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. júl. 2019 – 19. júl. 2019· 2 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt og lögum nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur (stofn fjármagnstekjuskatts).
Með frumvarpinu er ráðgert að endurskoða stofn fjármagnstekjuskatts sem m.a. felur í sér möguleika á að færast nær því að skattleggja raunávöxtun og hvetja til aukins sparnaðar.
- Komið til AlþingisS-175/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. júl. 2019 – 26. ágú. 2019· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um fjárhagslegar viðmiðanir
Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til að innleiða reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/1011 um vísitölur sem notaðar eru sem viðmiðanir í fjármálagerningum og fjárhagslegum samningum eða til að mæla árangur fjárfestingarsjóða.
- Komið til AlþingisS-169/2019· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. júl. 2019 – 31. júl. 2019· 4 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á upplýsingalögum (Réttarstaða þriðja aðila)
Áformað er að gera breytingar á upplýsingalögum nr. 140/2012 í því skyni að bæta réttarstöðu þriðja aðila, þ.e. þess sem á hagsmuna að gæta af afhendingu upplýsinga, og gera hana skýrari.
- Komið til AlþingisS-168/2019· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. júl. 2019 – 31. júl. 2019· 3 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands (Varnir gegn hagsmunaárekstrum hjá æðstu handhöfum framkvæmdarvalds)
Fyrirhugað er að smíða löggjöf til varnar hagsmunaárekstrum hjá æðstu handhöfum framkvæmdarvalds, m.a. í samræmi við tilmæli GRECO, samtaka ríkja innan Evrópuráðsins gegn spillingu, og starfshóps forsætisráðherra um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu
- Komið til AlþingisS-167/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. júl. 2019 – 16. júl. 2019· 2 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um innheimtu opinberra skatta og gjalda
Áform um að leiða í lög heildstæða löggjöf um innheimtu opinberra skatta og gjalda.
- Komið til AlþingisS-162/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jún. 2019 – 1. ágú. 2019· 0 umsagnir
Frv. til l. um br. á l. um lax- og silungsveiði
Tillaga um minnih. br. á l. um lax- og silungsv. hvað snertir ábyrgð af kostnaði af arðskrármati.
- Komið til AlþingisS-161/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jún. 2019 – 12. júl. 2019· 3 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á tollalögum og fleiri lögum.
Áformað er að tollafgreiðsla og tollgæsla, sem tollstjóri annast nú, verði færð til ríkisskattstjóra frá og með 1. janúar 2020.
- Komið til AlþingisS-159/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jún. 2019 – 12. júl. 2019· 1 umsögn
Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld.
Áformaðar eru ýmsar nauðsynlegar breytingar og leiðréttingar á skattalöggjöf sem tengjast bæði skattlagningu lögaðila og einstaklinga.
- Komið til AlþingisS-158/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jún. 2019 – 26. júl. 2019· 0 umsagnir
Áform um breytingu á tollalögum (rafræn skil og greiðslur, vöruvalsreglur, innflutningur matvæla ofl.)
Áformaskjalið felur í sér áform um ýmsar breytingar á tollalögum nr. 88/2005.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)