Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-239/2019 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Frumvarp - breyting á lögum um loftslagsmál, nr. 70/2012

Breytingar verða lagðar til á lögum um loftslagsmál til þess að innleiða breytingar á tilskipun (ESB) 2018/410 sem breytir tilskipun 2003/87/EB um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. Frumvarpið mun einnig veita tveimur reglugerðum ESB lagastoð (2018/841 LULUCF og 2018/842 ESR) en innleiðing gerðanna er lykilatriði í samkomulagi Íslands við ESB og Noreg um markmið á grundvelli Parísarsamningsins.

Breytingar verða lagðar til á lögum um loftslagsmál til þess að innleiða breytingar á tilskipun (ESB) 2018/410 sem breytir tilskipun 2003/87/EB um aðgerðir sem eiga að stuðla að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda og hvetja til fjárfestinga í lágkolefnatækni/-framleiðslu og ákvörðun (ESB) 2015/1804. Um er að ræða breytingar sem gilda fyrir fjórða tímabil viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir (ETS) sem varir frá 2021-2030. Í frumvarpinu verða einnig ákvæði sem munu veita lagastoð fyrir reglugerðir sem ætlað er að innleiða tvær gerðir Evrópusambandsins. Annars vegar er um að ræða reglugerð (ESB) um sameiginlega ábyrgð, 2018/842 og hins vegar reglugerð (ESB) um landnotkun, breytta landnotkun og skógrækt, 2018/841. Innleiðing gerðanna er lykilatriði í samkomulagi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins um sameiginlegt markmið á grundvelli Parísarsamningsins.

S-239/2019· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. sep. 2019 – 14. okt. 2019· 1 umsögn

Frumvarp - breyting á lögum um loftslagsmál, nr. 70/2012

Breytingar verða lagðar til á lögum um loftslagsmál til þess að innleiða breytingar á tilskipun (ESB) 2018/410 sem breytir tilskipun 2003/87/EB um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. Frumvarpið mun einnig veita tveimur reglugerðum ESB lagastoð (2018/841 LULUCF og 2018/842 ESR) en innleiðing gerðanna er lykilatriði í samkomulagi Íslands við ESB og Noreg um markmið á grundvelli Parísarsamningsins.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-239/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 14. október 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 718)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (28. maí 2020)

Hagsmunaaðilum var send tilkynning þess efnis að skjal með áformum um lagasetningu hefði verið sett í samráðsgátt. Ein umsögn barst frá ráðgjafarnefnd á vegum hins opinbera, skv. lögum nr. 27/1999. Í umsögninni var bent á að fjalla mætti um hvaða atvinnugreinar sé að ræða sem falli undir viðskiptakerfið og áætlaðan fjölda og stærð þeirra fyrirtækja sem verða fyrir áhrifum af lagasetningunni. Texta þess efnis var bætt við frumvarpið.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-239/2019: Frumvarp - breyting á lögum um loftslagsmál, nr. 70/2012 · Alviti