Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-188/2019 · Atvinnuvegaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórnun grásleppu).

Sjávarútvegs- landbúnaðarráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórnun grásleppu).

Í frumvarpinu er lagt til að aflaheimildum í grásleppu verði úthlutað til skipa sem eru með rétt til að veiða grásleppu samkvæmt gildandi lögum. Í núgildandi fyrirkomulagi er veiðunum stjórnað á grundvelli leyfa og dagatakmörkunu,m sbr. lög nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og reglugerð sem sett er fyrir hverja vertíð. Með því að breyta veiðistjórn á grásleppu mun fara um stjórnunina eftir lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á framangreindum lögum sem nauðsynlegar þykja til að breyta veiðistjórn í grásleppu úr sóknarstýringu í aflamarksstýringu. Þá er vert að nefna að í frumvarpinu er mælt fyrir um að aflahlutdeild skuli úthlutað á skip á grundvelli veiðireynslu leyfis en ekki skips eins og 1. mgr. 9. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða mælir fyrir um og einnig er lagt til að viðmiðunartími verði þrjú bestu veiðitímabil af árunum 2013 til og með 2018.

S-188/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. júl. 2019 – 26. júl. 2019· 25 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórnun grásleppu).

Sjávarútvegs- landbúnaðarráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórnun grásleppu).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-188/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 26. júlí 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 25 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 419)
Niðurstöður samráðs (26. nóvember 2020)

Litið var til innsendra umsagna í lokaútgáfu af frumvarpsdrögunum. Frumvarpið var ekki lagt fram á Alþingi.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (25)
  • #1Aðalsteinn Agnarsson

    Kvótasettning grásleppu er hryðjuverk fyrir landsbyggðina og nýliða, þetta má aldrei verða! Dagakerfið hefur gefið landsbyggð og nýliðum frelsi...

  • #2Halldór Gunnar Ólafsson
    Skagaströnd 18.07.19 Umsögn um kvótasetningu á grásleppu Undirritaður er alfarið á móti kvótasetningu á grásleppu verði sú ráðstöfun til þess að rýra möguleika nýliða til þess að hefja smábátaútgerð. Á stöðum eins og Skagaströnd hafa heimamenn verið að fjárfesta í smábátum og horft til strandveiða, grásleppuveiða og byggðakvóta til þess að skapa fyrirtækjum sínum grundvöll. Grásleppuveiðar hafa þar skipt miklu máli enda verð á grásleppuleyfum verið yfirstíganlegt fyrir minni útgerðir og nýliða innan smábátaútgerðar. Í samanburði við kostnað við kaup á varanlegum aflaheimildum innan krókaaf… Lesa alla

    Skagaströnd 18.07.19 Umsögn um kvótasetningu á grásleppu Undirritaður er alfarið á móti kvótasetningu á grásleppu verði sú ráðstöfun til þess að rýra möguleika nýliða til þess að hefja smábátaútgerð. Á stöðum eins og Skagaströnd hafa heimamenn verið að fjárfesta í smábátum og horft til strandveiða, grásleppuveiða og byggðakvóta til þess að skapa fyrirtækjum sínum grundvöll. Grásleppuveiðar hafa þar skipt miklu máli enda verð á grásleppuleyfum verið yfirstíganlegt fyrir minni útgerðir og nýliða innan smábátaútgerðar. Í samanburði við kostnað við kaup á varanlegum aflaheimildum innan krókaaflamarks hafa grásleppuleyfi verið mun ákjósanlegri kostur enda hitt nánast ógerlegt. Grásleppuveiðar eru gríðarlega mikilvægur þáttur í atvinnulífi á ákveðnum landsvæðum. Í mörgum tilfellum er um að ræða hinar dreifðu byggðir sem hafa átt undir högg að sækja, m.a. vegna samþjöppunar innan sjávarútvegsins. Vanhugsaðar aðgerðir við kvótasetningu á grásleppu gætu því að mínu mati bitnað harðast á þeim sem veikastir eru fyrir. Ég tel að það sé vel hægt að sníða vankannta af núverandi kerfi með því að opna fyrir sameininu leyfa, og auka fyrirsjáanleika í útgefnu aflamagni áður en veiðar hefjast. Einnig mætti útfæra hugmyndir með svæðisbundna kvóta og gefa rýmri tíma til veiða til þess að mæta ógæftum og hugsanlegum meðafla á ákveðnum tímum. Markmiðið með þessum breytingum væri að auka arðsemi greinarinnar sem yrði til þess að áhugi myndi aukast og tryggt yrði að útgefið aflamagn myndi nást. Ég er þeirrar skoðunar að áður en ákveðið verður að kvótasetja grásleppu með sömu leikreglum eins og eiga við kvótabundnar tegundir er nauðsynlegt að láta framvæma úttekt á samfélagslegum áhrifum slíkra aðgerða. Halldór Gunnar Ólafsson sjávarútvegsfræðingur og útgerðarmaður smábáts á Skagaströnd

  • #3Kristján Júlíus Kristjánsson

    Já það á að kvóta setja grásleppu .veiðireynsla seinustu 6 ár 3 af þeim valin gott mál ,þeir sem ekki hafa Stundað veiðar á þessum árum hafi engan rétt engin skúffu leyfi .þettað verður til frammdráttar fyrir grásleppuveiðar menn geta endurskipulagt sig . Það verður auðveldara að komast inn í veiðar geta keipt smátt og stækkað.Undiritaður hefur Stundað grásleppu veiðar síðan 1982 ó slitið Kristján j Kristjánsson.

  • #4Vigfús Þórarinn Ásbjörnsson
    Umsögn Smábátafélagsins Hrollaugs á Hornafirði vegna frumvarp um kvótasetningu á grásleppu. Smábátafélagið Hrollaugur á Hornafirði mótmælir harkalega frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórnun grásleppu) þar sem fyrirhugað er að kvótasetja grásleppu. Frumvarpið er aðförð að smábátaútgerð allt í kringum landið. Engin vísindaleg rök segja að þörf sé á kvótasetningu á grásleppu. Einungis virðist markmiðið vera að færa einstaka útgerðum gríðarleg verðmæti á kostnað fjöldans og samfélagsins alls. Sagan segir okkur hv… Lesa alla

    Umsögn Smábátafélagsins Hrollaugs á Hornafirði vegna frumvarp um kvótasetningu á grásleppu. Smábátafélagið Hrollaugur á Hornafirði mótmælir harkalega frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórnun grásleppu) þar sem fyrirhugað er að kvótasetja grásleppu. Frumvarpið er aðförð að smábátaútgerð allt í kringum landið. Engin vísindaleg rök segja að þörf sé á kvótasetningu á grásleppu. Einungis virðist markmiðið vera að færa einstaka útgerðum gríðarleg verðmæti á kostnað fjöldans og samfélagsins alls. Sagan segir okkur hvað mun gerast. Aflaheimildir munu þjappast á örfáa báta allt í kringum landið og smábátaútgerðum fækka gríðarlega. Það þarf engann sérfræðing til þess að sjá það, það er nóg að lesa sögu þessa lands. Mörg byggðarlög í kringum landið sem stuðst hafa við áratuga sköpun á atvinnu við grásleppuveiðar munu nú missa þann möguleika frá sér um ókomna framtíð og tækifærin fyrir komandi kynslóðir til að hefja hér útgerð alfarið hverfa. Sagan eru bestu rökin, kvótasetning með framsalsheimild er ekki ný á nálinni í okkar þjóðfélagi og hefur reynst þjóðfélaginu illa. Mörg byggðarlög munu verða brunarústir einar eins og reynslan segir okkur sé tekið mið af hvað gerist þegar búin er til skortstaða á auðlindum. Örfáir munu hagnast en samfélagið tapa. Það er ekki hægt að færa rök fyrir því að hagkvæmara sé að veiða fisk á færri bátum fyrir þjóðfélagið heldur en fleiri því kostnaðurinn sem fylgir því að rústa heilu byggðalögunum hefur aldrei verið tekinn inn í myndina þegar talað er um hagkvæmni við nýtingu fiskveiðiauðlindarinnar. Atvinnuleysi, tekjmissir, fækkun atvinnutækifara komandi kynslóða og aðengi hennar að nýtingu auðlinda, gjaldþrot, verðlaus húsnæði og margt margt fleira mætti örugglega telja inn sem kostnað við hagkvæmnirannsóknar og framkvæmd sem þessa. Aðeins til þess að einstaka útgerðarmenn geti velt sér upp úr auðæfum. Ekki fyrir að veiða fisk heldur með sölu og leigu aflaheimilda eða til þess að nýta sér þær til veðsettningar fyrir hvað þeim svo sem dettur í hug að gera. Núverandi kerfi við grásleppuveiðar hefur reynst þjóðfélaginu mjög vel. Það eru engin vísindaleg rök sem styðja það að kvótasetja þurfi grásleppu. Stofninn er sterkur og enginn ofveiði hefur átt sér stað sem styður það að núverandi kerfi virkar vel við stýringu sóknar á grásleppu. Núverandi kerfi hefur áratuga reynslu sem er góð við nýtingu grásleppu, stofninn er enn sterkur og engar vísbendingar eru um það að ofveiði eigi sér stað heldur þvert á móti. Sóknin er dreifð í kringum landið og skapar atvinnu í mörgum byggðarlögum sem gefur af sér jákvætt samfélag þar sem tekjum og atvinnutækifærum er dreift í kringum landið og auðlindanýtingin verður handa fólkinu í landinu en ekki einstaka lénsherrum sem þetta frumvarp miðar að. Það er algjör trú okkar í Smábátafélaginu Hrollaugi á Höfn að enginn þingmaður muni greiða atkvæði með þessu frumvarpi sem vill vinna vel fyrir þetta þjóðfélag í heild heldur berjast á móti því með kjafti og klóm þjóðfélaginu til heilla. Íslendingar eru í grunnin fiskiveiðiþjóðfélag og með að takmarka en frekar aðgengi hennar að nýtingu á fiskveiðiaulindinni mun samfélagið í heild fara verulega hnignandi eins og sagan segir okkur. Örfá byggðarlög munu njóta en miklu fleiri byggðarlög og einstaklingar tapa. Svona aðgerðir mætti líkja við að banna Grænlendingum að veiða sér sel í matinn, hvernig haldið þið að það myndi virka á þá samfélagsgerð. Við mótmælum þessu frumvarpi harkalega og viljum að grásleppuveiðar verði stundaðar frá Íslandi í núverandi kerfi sem reynst hefur þjófélaginu vel og stuðlar að heilbrigðri atvinnusköpun í kringum landið. Fyrir hönd Smábátafélagsins Hrollaugs á Hornafirði 24-07-2019 Vigfús Ásbjörnsson Formaður

  • #5Börkur Hrafn Árnason
    Hér er umsögn Smábátafélagsins Hrollaugs vegna frumvarps um kvótasetningu á grásleppu. Við hvetjum alla, einsaklinga og hagsmunasamtög til að senda inn umsögn hver sem skoðun ykkar er. Allir sem vilja meiga nýta umsögn okkar og senda hana inn ef þið viljið. Umsagnar frestur rennur út næsta föstudag svo menn verða að vera snöggir og láta sér málið varða. Hér er linkur inn á samráðsgáttina þar sem hægt er að senda inn umsagnir [https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=1447](https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=1447) Umsögn Smábátafélagsins Hrollaugs á H… Lesa alla

    Hér er umsögn Smábátafélagsins Hrollaugs vegna frumvarps um kvótasetningu á grásleppu. Við hvetjum alla, einsaklinga og hagsmunasamtög til að senda inn umsögn hver sem skoðun ykkar er. Allir sem vilja meiga nýta umsögn okkar og senda hana inn ef þið viljið. Umsagnar frestur rennur út næsta föstudag svo menn verða að vera snöggir og láta sér málið varða. Hér er linkur inn á samráðsgáttina þar sem hægt er að senda inn umsagnir [https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=1447](https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=1447) Umsögn Smábátafélagsins Hrollaugs á Hornafirði vegna frumvarp um kvótasetningu á grásleppu. Smábátafélagið Hrollaugur á Hornafirði mótmælir harkalega frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórnun grásleppu) þar sem fyrirhugað er að kvótasetja grásleppu. Frumvarpið er aðförð að smábátaútgerð allt í kringum landið. Engin vísindaleg rök segja að þörf sé á kvótasetningu á grásleppu. Einungis virðist markmiðið vera að færa einstaka útgerðum gríðarleg verðmæti á kostnað fjöldans og samfélagsins alls. Sagan segir okkur hvað mun gerast. Aflaheimildir munu þjappast á örfáa báta allt í kringum landið og smábátaútgerðum fækka gríðarlega. Það þarf engann sérfræðing til þess að sjá það, það er nóg að lesa sögu þessa lands. Mörg byggðarlög í kringum landið sem stuðst hafa við áratuga sköpun á atvinnu við grásleppuveiðar munu nú missa þann möguleika frá sér um ókomna framtíð og tækifærin fyrir komandi kynslóðir til að hefja hér útgerð alfarið hverfa. Sagan eru bestu rökin, kvótasetning með framsalsheimild er ekki ný á nálinni í okkar þjóðfélagi og hefur reynst þjóðfélaginu illa. Mörg byggðarlög munu verða brunarústir einar eins og reynslan segir okkur sé tekið mið af hvað gerist þegar búin er til skortstaða á auðlindum. Örfáir munu hagnast en samfélagið tapa. Það er ekki hægt að færa rök fyrir því að hagkvæmara sé að veiða fisk á færri bátum fyrir þjóðfélagið heldur en fleiri því kostnaðurinn sem fylgir því að rústa heilu byggðalögunum hefur aldrei verið tekinn inn í myndina þegar talað er um hagkvæmni við nýtingu fiskveiðiauðlindarinnar. Atvinnuleysi, tekjmissir, fækkun atvinnutækifara komandi kynslóða og aðengi hennar að nýtingu auðlinda, gjaldþrot, verðlaus húsnæði og margt margt fleira mætti örugglega telja inn sem kostnað við hagkvæmnirannsóknar og framkvæmd sem þessa. Aðeins til þess að einstaka útgerðarmenn geti velt sér upp úr auðæfum. Ekki fyrir að veiða fisk heldur með sölu og leigu aflaheimilda eða til þess að nýta sér þær til veðsettningar fyrir hvað þeim svo sem dettur í hug að gera. Núverandi kerfi við grásleppuveiðar hefur reynst þjóðfélaginu mjög vel. Það eru engin vísindaleg rök sem styðja það að kvótasetja þurfi grásleppu. Stofninn er sterkur og enginn ofveiði hefur átt sér stað sem styður það að núverandi kerfi virkar vel við stýringu sóknar á grásleppu. Núverandi kerfi hefur áratuga reynslu sem er góð við nýtingu grásleppu, stofninn er enn sterkur og engar vísbendingar eru um það að ofveiði eigi sér stað heldur þvert á móti. Sóknin er dreifð í kringum landið og skapar atvinnu í mörgum byggðarlögum sem gefur af sér jákvætt samfélag þar sem tekjum og atvinnutækifærum er dreift í kringum landið og auðlindanýtingin verður handa fólkinu í landinu en ekki einstaka lénsherrum sem þetta frumvarp miðar að. Það er algjör trú okkar í Smábátafélaginu Hrollaugi á Höfn að enginn þingmaður muni greiða atkvæði með þessu frumvarpi sem vill vinna vel fyrir þetta þjóðfélag í heild heldur berjast á móti því með kjafti og klóm þjóðfélaginu til heilla. Íslendingar eru í grunnin fiskiveiðiþjóðfélag og með að takmarka en frekar aðgengi hennar að nýtingu á fiskveiðiaulindinni mun samfélagið í heild fara verulega hnignandi eins og sagan segir okkur. Örfá byggðarlög munu njóta en miklu fleiri byggðarlög og einstaklingar tapa. Svona aðgerðir mætti líkja við að banna Grænlendingum að veiða sér sel í matinn, hvernig haldið þið að það myndi virka á þá samfélagsgerð. Við mótmælum þessu frumvarpi harkalega og viljum að grásleppuveiðar verði stundaðar frá Íslandi í núverandi kerfi sem reynst hefur þjófélaginu vel og stuðlar að heilbrigðri atvinnusköpun í kringum landið. Fyrir hönd Smábátafélagsins Hrollaugs á Hornafirði 24-07-2019 Vigfús Ásbjörnsson Formaður

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-188/2019: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórnun grásleppu). · Alviti