Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-208/2019 · Dómsmálaráðuneytið

Breyting á lögum um íslenskan ríkisborgararétt

Lagðar eru til breytingar á lögunum með það að markmiði að auka skilvirkni og skerpa á ákvæðum þeirra.

Frumvarpið felur í sér breytingar á nokkrum ákvæðum laga um íslenskan ríkisborgararétt nr. 100/1952 er varða skilyrði fyrir veitingu ríkisborgararéttar og snerta biðtíma vegna refsinga. Með hliðsjón af breytingum á reglum um fjárhæðir sekta vegna umferðarlagabrota eru lagðar til úrbætur á 6. tölul. 9. gr. laganna til að koma í veg fyrir að reglurnar raski upphaflegum tilgangi ríkisborgaralaga um biðtíma vegna refsinga. Til samræmis við ný lög um útlendinga er lögð til lítils háttar breyting á heimild umsækjanda um ríkisborgararétt til dvalar erlendis. Í þeim tilgangi að skýra lögin betur er jafnframt ákvæði um hversu löng dvöl erlendis megi vera án þess að hún skerði dvalartíma hér á landi. Vegna nýrra laga um útlendinga er einnig lögð til breyting á búsetuskilyrði maka íslensks ríkisborgara úr þremur árum í fjögur ár. Loks er lagt til að tekið verði aftur upp í lögin ákvæði um heimild til að endurveita íslenskan ríkisborgararétt þeim sem misstu íslenska ríkisfangið fyrir 1. júlí 2003, vegna ákvæða í eldri lögum, en ákvæðið hefur tvívegis verið tímabundið í lögunum. Sambærilegar breytingar voru lagðar fram á samráðsgátt í febrúar sl. en voru ekki lagðar fram á Alþingi. Þar var þó gengið lengra en gert er nú og kveðið á um að horfið yrði frá þeirri meginreglu að Alþingi afgreiddi umsóknir um ríkisborgararétt heldur yrðu þær afgreiddar að meginstefnu á stjórnsýslustigi, hjá Útlendingastofnun. Sömuleiðis var því gert ráð fyrir að Útlendingastofnun hefði heimildir til að leggja mat á tiltekin atriði við afgreiðslu umsókna. Fallið hefur verið frá þeirri breytingartillögu í frumvarpi þessu.

S-208/2019· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. ágú. 2019 – 26. ágú. 2019· 0 umsagnir

Breyting á lögum um íslenskan ríkisborgararétt

Lagðar eru til breytingar á lögunum með það að markmiði að auka skilvirkni og skerpa á ákvæðum þeirra.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-208/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 26. ágúst 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 252)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (25. ágúst 2020)

Engar umsagnir bárust um frumvarpið. Það var lagt fram á Alþingi og samþykkt sem lög nr. 11/2020. Lögin voru birt í A deild Stjórnartíðinda 3. mars 2020 og öðluðust gildi 1. apríl 2020. https://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=da145c6d-8c73-4a4d-8fd9-f314e78f8de2

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-208/2019: Breyting á lögum um íslenskan ríkisborgararétt · Alviti