Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-219/2019 · Atvinnuvegaráðuneytið

Drög að frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 34/1991 um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri

Um er að ræða breytingar vegna athugasemda Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) vegna núverandi skilyrða um búsetu og heimilisfesti framkvæmdastjóra og stjórnenda í íslenskum atvinnufyrirtækjum. Breytingin afnemur þau skilyrði í samræmi við athugasemdir ESA.

Tilefni frumvarpsins má rekja til athugasemda Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) vegna skilyrða um búsetu og heimilisfesti framkvæmdastjóra og stjórnenda í íslenskum atvinnufyrirtækjum. ESA hefur gert athugasemd við núgildandi kröfu um að framkvæmdastjórar og meirihluti stjórnarmanna í íslenskum atvinnufyrirtækjum sem eru ríkisborgarar Færeyja, þeirra ríkja sem eiga aðilda að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samningurinn) eða þeirra ríkja sem eru aðilar að stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA), þurfi að vera búsettir í aðildarríkjum EES-samningsins, aðildarríkjum EFTA eða í Færeyjum. ESA hefur bent á að krafan sé ekki í samræmi við EES-samninginn. Á þetta einnig við ríkisborgara annarra ríkja sem eru búsettir á framangreindum svæðum. Markmið lagasetningarinnar er að tryggja frelsi launþega á grundvelli ríkisfangs innan EES-svæðisins og tryggja staðfesturétt einstaklinga. Ekki er hægt að setja höft á rétt ríkisborgara á EES-svæðinu til að öðlast staðfestu á yfirráðasvæði einhvers annars ríkis á svæðinu. Staðfesturétturinn felur meðal annars í sér að rétt til að hefja og stunda sjálfstæða atvinnustarfsemi og til að stofna og reka fyrirtæki. Til nánari glöggvunar á fyrrgreindum reglum er vísað til 28. og 31. gr. EES-samningsins.

S-219/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. sep. 2019 – 20. sep. 2019· 0 umsagnir

Drög að frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 34/1991 um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri

Um er að ræða breytingar vegna athugasemda Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) vegna núverandi skilyrða um búsetu og heimilisfesti framkvæmdastjóra og stjórnenda í íslenskum atvinnufyrirtækjum. Breytingin afnemur þau skilyrði í samræmi við athugasemdir ESA.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-219/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 20. september 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 186)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (3. janúar 2020)

Engar umsagnir bárust. Lagafrumvarpið var lagt fram efnislega eins og það birtist á samráðsgáttinni og varð að lögum 4. desember 2019, lög nr. 138/2019.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-219/2019: Drög að frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 34/1991 um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri · Alviti