Áform um lagasetningu - Breyting á lögum um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa.
Áformað er að leggja fram frumvarp til að samræma skilgreiningu smáskipa í lögum nr. 30/2007 um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa við reglur um veiðileyfi með krókaaflamarki í lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-193/2019)
- Umsagnarfrestur hefst · til 9. ágúst 2019
- Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 316)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (15. september 2021)
Samtals bárust tíu umsagnir við áform um framlagningu frumvarps til laga um breytingu á lögum um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa, nr. 30/2007. Drög að frumvarpi til laga voru kynnt á samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is (mál nr. 225/2019). Við vinnslu frumvarpsins var m.a. tekið mið af þessum umsögnum.
- Áform um lagasetningu - Breyting á lögum um áharnir skipa.docx
- Frummat á áhrifum - Breyting á lögum um áhafnir skipa.docx
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)
- #1Valmundur Valmundsson
Sjómannasamband Íslands mótmælir því harðlega að lög um stjórn fiskveiða stjórni mönnun skipa á Íslandi. Mönnun fiskiskipa og annara skipa á alltaf að taka mið af öryggi skips og áhafnar, ekki hvort þessi eða hin lög um stjórn fiskveiða gildi um viðkomandi skip Reyndar væri miklu nær að stýrimaður og vélstjóri væru um alltaf um borð í skipum undir 24 metrum þó ekki sé róið lengur en 14 klst. á hverju 24 klst. tímabili og engar undanþágur veittar. Sjómannasamband íslands bendir á að þessi tegund fiskiskipa eru mjög öflug og með stórar vélar sem þurfa sína gæslu. Að skipstjóri geti einn séð s… Lesa alla
Sjómannasamband Íslands mótmælir því harðlega að lög um stjórn fiskveiða stjórni mönnun skipa á Íslandi. Mönnun fiskiskipa og annara skipa á alltaf að taka mið af öryggi skips og áhafnar, ekki hvort þessi eða hin lög um stjórn fiskveiða gildi um viðkomandi skip Reyndar væri miklu nær að stýrimaður og vélstjóri væru um alltaf um borð í skipum undir 24 metrum þó ekki sé róið lengur en 14 klst. á hverju 24 klst. tímabili og engar undanþágur veittar. Sjómannasamband íslands bendir á að þessi tegund fiskiskipa eru mjög öflug og með stórar vélar sem þurfa sína gæslu. Að skipstjóri geti einn séð stjórn skips og vélgæslu er afturför að mati Sjómannasambands Íslands. Valmundur Valmundsson formaður Sjómannasambands Íslands
- #2Árni Bjarnason
Undirritaður vísar til umsagnar Sjómannasambands Íslands og tekur að öllu leiti undir þau sjónarmið sem þar koma fram. Viðvarandi ásókn er því miður, af hálfu sumra fyrirtækja í sjávaútvegi og fiskeldi í þá veru að knýja á um tilslakanir á mönnun sem hafa í för með sér skert öryggi samfara auknu álagi sem þó var meira en nóg fyrir. Lýsi hér með eindreginni andstöðu við fyrirhuguðum breytingum á lögum um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtilbáta og annarra skipa.… Lesa alla
Undirritaður vísar til umsagnar Sjómannasambands Íslands og tekur að öllu leiti undir þau sjónarmið sem þar koma fram. Viðvarandi ásókn er því miður, af hálfu sumra fyrirtækja í sjávaútvegi og fiskeldi í þá veru að knýja á um tilslakanir á mönnun sem hafa í för með sér skert öryggi samfara auknu álagi sem þó var meira en nóg fyrir. Lýsi hér með eindreginni andstöðu við fyrirhuguðum breytingum á lögum um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtilbáta og annarra skipa. Fyrir hönd Félags skipstjórnarmanna Árni Bjarnason Formaður
- #3Félag vélstjóra og málmtæknimanna
VM – félag vélstjóra og málmtæknimanna taka að öllu leiti undir sjónarmið Sjómannasambands Íslands og Félags skipstjórnarmanna. Mönnun fiskiskipa sem og annarra skipa á alltaf að taka mið af öryggi skips og áhafnar. VM - félag vélstjóra og málmtæknimanna, telur að ekkert ósamræmi er milli laga um stjórn fiskveiða og áhafnalaga, þó breyting á lögum um stjórn fiskveiða heimili nú að bátar á krókaaflamarki geti verið allt að 15 metrar, í stað 12 metra. Félagið telur því að ekkert það ,,réttarástand‘‘ hafi skapast með þessari breytingu sem kalli á breytingu á lögum um mönnun skipa. Fyrir hönd V… Lesa alla
VM – félag vélstjóra og málmtæknimanna taka að öllu leiti undir sjónarmið Sjómannasambands Íslands og Félags skipstjórnarmanna. Mönnun fiskiskipa sem og annarra skipa á alltaf að taka mið af öryggi skips og áhafnar. VM - félag vélstjóra og málmtæknimanna, telur að ekkert ósamræmi er milli laga um stjórn fiskveiða og áhafnalaga, þó breyting á lögum um stjórn fiskveiða heimili nú að bátar á krókaaflamarki geti verið allt að 15 metrar, í stað 12 metra. Félagið telur því að ekkert það ,,réttarástand‘‘ hafi skapast með þessari breytingu sem kalli á breytingu á lögum um mönnun skipa. Fyrir hönd VM – félags vélstjóra og málmtæknimanna Guðmundur Helgi Þórarinsson Formaður
- #4Breiðavík ehf
Í mati á áhrifum lagasetningar þeirrar sem hér um ræðir kemur fram að með frumvarpi þessu sé leitast við að samræma reglur um smáskip til einföldunar og hagræðis fyrir sjómenn sem sigla skipum á stærðarbilinu 12-15 metrar. Eðlilegast væri að okkar mati að breyta 3 gr. laga nr. 30/2007 um smáskip þar sem þau eru skilgreind sem skip sem eru 12 metrar að skráningarlengd eða styttri í 15 metra að skráningarlengd eða styttri. Þar með væri komið samræmi á milli 4.gr. laga nr. 116/2006 þar sem þeir bátar einir geta öðlast veiðileyfi með krókaaflamarki sem eru styttri en 15 metrar að mestu lengd… Lesa alla
Í mati á áhrifum lagasetningar þeirrar sem hér um ræðir kemur fram að með frumvarpi þessu sé leitast við að samræma reglur um smáskip til einföldunar og hagræðis fyrir sjómenn sem sigla skipum á stærðarbilinu 12-15 metrar. Eðlilegast væri að okkar mati að breyta 3 gr. laga nr. 30/2007 um smáskip þar sem þau eru skilgreind sem skip sem eru 12 metrar að skráningarlengd eða styttri í 15 metra að skráningarlengd eða styttri. Þar með væri komið samræmi á milli 4.gr. laga nr. 116/2006 þar sem þeir bátar einir geta öðlast veiðileyfi með krókaaflamarki sem eru styttri en 15 metrar að mestu lengd og minni en 30 brúttótonn og laga nr. 30/2007 þar sem smáskip eru í dag skilgreind sem skip sem eru 12 metrar og undir. Fyrir hönd Breiðavík ehf Þorsteinn Bárðarson. Útgerðarstjóri/skipstjóri.
- #5Slysavarnafélagið Landsbjörg
Umsögn Slysavarnafélagsins Landsbjargar um mál nr. S-193/2019
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.