Drög að frumvarpi til laga um innheimtu opinberra skatta og gjalda - Seinna samráð
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir nú í annað sinn til umsagnar drög að frumvarpi til laga um innheimtu opinberra skatta og gjalda. Frumvarpið var fyrst kynnt hinn 24. júlí 2019 með fresti til 28. ágúst 2019.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-221/2019)
- Umsagnarfrestur hefst · til 19. september 2019
- Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 314)
Niðurstöður samráðs (9. október 2019)
Ráðuneytið fagnar því að hafa fengið umsagnir við frumvarpsdrögin. Að þessu sinni leiddu þær ekki til breytinga á frumvarpinu en frumvarpið tók þó einhverjum breytingum sem aðallega voru til meiri skýrleika áður en það var sent til yfirlestrar í forsætisráðuneytinu. Umsögn Persónuverndar barst ráðuneytinu í tölvupósti hinn 15. október 2019 og voru þess efnis að ekki væru gerðar athugasemdir við frumvarpið. Samantektarskjalið hefur verið uppfært miðað við það.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
- #1Samtök atvinnulífsins
Góðan dag, Meðfylgjandi er sameiginleg umsögn Samtaka atvinnulífsins, Samtaka iðnaðarins, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka ferðaþjónustunnar og Samtaka verslunar og þjónustu um frumvarp til innheimtu opinberra skatta og gjalda. Virðingarfyllst, f.h. samtakanna Heiðrún Björk Gísladóttir
- #2Samband íslenskra sveitarfélaga
Hjálagt sendist umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um ofangreint frumvarp. F.h. sambandsins Guðjón Bragason
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.