Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-223/2019 · Heilbrigðisráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007

Í frumvarpi þessu sem er samið í heilbrigðisráðuneytinu eru lagðar til breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007. Frumvarpið er lagt fram til að samræma lög um heilbrigðisþjónustu við tillögur heilbrigðisstefnu.

Á 149. löggjafarþingi var samþykkt þingsályktunartillaga heilbrigðisráðherra um heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Með heilbrigðisstefnunni hefur verið mótuð framtíðarsýn fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030. Í heilbrigðisstefnunni er meðal annars kveðið á um að löggjöf um heilbrigðisþjónustu skuli vera skýr, hún kveði afdráttarlaust um hlutverk heilbrigðisstofnanna og annarra sem veita heilbrigðisþjónustu og hvernig samskiptum þeirra skuli háttað. Markmiðið með heilbrigðisstefnunni er að skapa heildrænt kerfi sem ætlað er að tryggja samfellda þjónustu við notendur á réttu þjónustustigi hverju sinni og gæta að hagkvæmni og jafnræði við veitingu heilbrigðisþjónustu. Með frumvarpinu er lagt til að skilgreiningar laganna á heilbrigðisþjónustu verði skipt upp í þrjú stig til samræmis við heilbrigðisstefnu. Lagðar eru til breytingar sem ætlað er að skýra hlutverk heilbrigðisstofnana auk þess sem breytingar eru gerðar á kafla laganna um stjórnir heilbrigðisstofnana.

S-223/2019· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. sep. 2019 – 9. okt. 2019· 25 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007

Í frumvarpi þessu sem er samið í heilbrigðisráðuneytinu eru lagðar til breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007. Frumvarpið er lagt fram til að samræma lög um heilbrigðisþjónustu við tillögur heilbrigðisstefnu.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-223/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 9. október 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 25 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 439)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (25)
  • #1Ebba Margrét Magnúsdóttir

    Meðfylgjandi er umsögn stjórnar læknaráðs Landspítala.

  • #2Óskar Sesar Reykdalsson
    Lagt er til að 11.grein laganna breytist. Ég legg til að þetta orðist víðar og verði með þeim hætti auðframkvæmanlegra. Gæti orðast 12. gr. 11. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn: Fagráð Á heilbrigðisstofnunum sem reknar eru af ríkinu skal vera starfandi sérstakt fagráð. Fagráð mynda fulltrúar allra fjölmennra heilbrigðisstétta sem starfa á stofnuninni og er það forstjóra heilbrigðisstofnunar til ráðuneytis um málefni hennar. Forstjóri getur leitað álits álits fagráðs um mikilvægar ákvarðanir sem varða heilbrigðisþjónustu stofnunarinnar. Fagráð skulu setja sér starfsreglur sem st… Lesa alla

    Lagt er til að 11.grein laganna breytist. Ég legg til að þetta orðist víðar og verði með þeim hætti auðframkvæmanlegra. Gæti orðast 12. gr. 11. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn: Fagráð Á heilbrigðisstofnunum sem reknar eru af ríkinu skal vera starfandi sérstakt fagráð. Fagráð mynda fulltrúar allra fjölmennra heilbrigðisstétta sem starfa á stofnuninni og er það forstjóra heilbrigðisstofnunar til ráðuneytis um málefni hennar. Forstjóri getur leitað álits álits fagráðs um mikilvægar ákvarðanir sem varða heilbrigðisþjónustu stofnunarinnar. Fagráð skulu setja sér starfsreglur sem staðfestar skulu af forstjóra.

  • #3Marta Jónsdóttir

    Meðfylgjandi er umsögn hjúkrunarráðs Landspítala.

  • #4Marta Jónsdóttir

    Meðfylgjandi er umsögn hjúkrunarráðs Landspítala.

  • #5Ólafur Baldursson
    Athugasemd þessi varðar eingöngu þær breytingar sem lagðar eru til við 10. gr. laganna. Ekki eru gerðar athugasemdir við aðrar greinar, en þó má segja að um drögin í heild gildi sú athugasemd að tryggja þarf meira og víðtækara samráð. 10. gr. laga um heilbrigðisþjónustu virðist breytast talsvert mikið. Í drögunum stendur: „Fagstjórnendur. Á heilbrigðisstofnun skulu starfa einn eða fleiri fagstjórnendur sem bera faglega ábyrgð á þjónustu stofnunarinnar gagnvart forstjóra.“ Svo virðist sem 10. gr. laganna einfaldist mjög og stöðuheitin „framkvæmdastjóri lækninga“ (FL) og „framkvæmdastjó… Lesa alla

    Athugasemd þessi varðar eingöngu þær breytingar sem lagðar eru til við 10. gr. laganna. Ekki eru gerðar athugasemdir við aðrar greinar, en þó má segja að um drögin í heild gildi sú athugasemd að tryggja þarf meira og víðtækara samráð. 10. gr. laga um heilbrigðisþjónustu virðist breytast talsvert mikið. Í drögunum stendur: „Fagstjórnendur. Á heilbrigðisstofnun skulu starfa einn eða fleiri fagstjórnendur sem bera faglega ábyrgð á þjónustu stofnunarinnar gagnvart forstjóra.“ Svo virðist sem 10. gr. laganna einfaldist mjög og stöðuheitin „framkvæmdastjóri lækninga“ (FL) og „framkvæmdastjóri hjúkrunar“ (FL) falli brott. Mikilvægt er að þetta atriði sé rætt vandlega áður en þessi stöðuheiti eru fjarlægð. Hvað Landspítala varðar hefur tekist vel að móta þessi hlutverk á undanförnum árum og verkaskipting orðin skýr, vel þekkt og vissar væntingar til staðar varðandi það hvaða málaflokka þessir aðilar sjá um. Þau verkefni sem FL og FH hafa rekið sl. 7 ár hafa almennt skilað árangri og leitt til umbóta á starfi spítalans og verið virðisaukandi. Til viðbótar hafa samsvarandi erlend heiti þekkta skírskotun til erlendra samstarfsaðila, þar sem heitin „chief medical officer“ (CMO) og „chief nursing officer“ (CNO), eru þekktar stærðir. Fyrirhuguð nafnabreyting myndi því raska mikið því mikilvæga jafnvægi sem komið er á þessar stöður innan spítalans og utan. Einnig er rétt að hafa í huga að mikill meirihluti allrar klínískrar þjónustu er veitt af læknum og hjúkrunarfræðingum og því mikilvægt að í framkvæmdastjórn sé skírskotað sérstaklega til þessara stétta, með fullri virðingu fyrir þeim fjölmörgu sem leggja hönd á plóg. Hugmyndin um fagstjórnendur er óljós hvað LSH varðar. Hvernig eru „faglegir framkvæmdastjórar“ þá skilgreindir í samanburði við aðra framkvæmdastjóra ? Hvað heita þau stöðugildi ? Til dæmis framkvæmdastjóri fag…hvað….? Þetta er óljóst og hljómar veikburða. Til viðbótar má benda á að sums staðar í nágrannalöndunum hafa stöðurnar FL og FH verið lagðar niður, með slæmum afleiðingum. Hefur verið haft samráð við helstu haghafa sem þessi breyting varðar ? Hún virðist koma flestum hlutaðeigandi alveg í opna skjöldu. Óskað er eftir mun betri undirbúningi og umræðum um þessi drög, við þá aðila sem best þekkja til starfa fagstjórnenda í heilbrigðiskerfinu.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-223/2019: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007 · Alviti