Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-182/2019 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða

Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til innleiðingar á tilskipun 2011/61/ESB um rekstraraðila sérhæfðra sjóða (AIFMD).

Frumvarpið felur í sér ný heildarlög um starfsemi rekstraraðila sérhæfðra sjóða en engin heildstæð löggjöf er í gildi hér á landi um starfsemi þeirra. Með frumvarpinu er lagt til að ákvæði tilskipunar 2011/61/ESB um rekstraraðila sérhæfðra sjóða (AIFMD) verði innleidd í íslenskan rétt. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem munu hafa áhrif á þá sem reka sérhæfða sjóði hér á landi en þau verða mismikil eftir stærð rekstraraðila. Fari starfsemin umfram ákveðin fjárhæðarmörk verða rekstraraðilar sérhæfðra sjóða starfsleyfisskyldir. Fyrir veitingu starfsleyfis eru ýmis skilyrði, s.s. um stofnframlag, eigið fé og skipulagskröfur. Áhrifin verða minni á smærri rekstraraðila undir fjárhæðarviðmiðum en þeir munu þurfa að skrá sig hjá Fjármálaeftirlitinu og uppfylla ákveðnar lágmarkskröfur.

S-182/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. júl. 2019 – 30. ágú. 2019· 7 umsagnir

Drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða

Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til innleiðingar á tilskipun 2011/61/ESB um rekstraraðila sérhæfðra sjóða (AIFMD).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-182/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 30. ágúst 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 341)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (12. nóvember 2019)

Drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða voru birt í samráðsgátt stjórnvalda 11. júlí 2019. Frestur til að skila umsögnum var til 30. ágúst 2019. Sex umsagnir bárust, þ.e. frá SKR lögfræðiþjónustu slf., Benoit Cheron, Lánamálum ríkisins, Samtökum fjármálafyrirtækja, LOGOS slf. og FRAMÍS, samtaka framtaksfjárfesta.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-182/2019: Drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða · Alviti