Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-169/2019 · Forsætisráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á upplýsingalögum (Réttarstaða þriðja aðila)

Áformað er að gera breytingar á upplýsingalögum nr. 140/2012 í því skyni að bæta réttarstöðu þriðja aðila, þ.e. þess sem á hagsmuna að gæta af afhendingu upplýsinga, og gera hana skýrari.

Réttarbótin felst í eftirfarandi breytingum á upplýsingalögum: i. Bætt verði við nýju ákvæði í 17. gr. upplýsingalaga þar sem kveðið verður á um skyldu stjórnvalda til þess að leita afstöðu þriðja aðila til afhendingar upplýsinga sem varða hann sjálfan áður en ákvörðun er tekin um afhendingu gagna nema það sé bersýnilega óþarft. ii. Ákvæði 1. mgr. 23. gr. upplýsingalaga verði breytt þannig að úrskurðarnefnd um upplýsingamál sé gert skylt að birta úrskurð þeim aðila sem upplýsingar um einkahagsmuni varða ef í úrskurði er fallist á rétt kæranda til aðgangs að upplýsingunum. iii. Bætt verði við ákvæði í 24. gr. upplýsingalaga þar sem þriðja aðila verður veittur réttur til þess að krefjast þess að réttaráhrifum úrskurðar úrskurðarnefndar um upplýsingamál verði frestað í því skyni að bera ágreining um gildi úrskurðarins undir dómstóla.

S-169/2019· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. júl. 2019 – 31. júl. 2019· 4 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á upplýsingalögum (Réttarstaða þriðja aðila)

Áformað er að gera breytingar á upplýsingalögum nr. 140/2012 í því skyni að bæta réttarstöðu þriðja aðila, þ.e. þess sem á hagsmuna að gæta af afhendingu upplýsinga, og gera hana skýrari.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-169/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 31. júlí 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 644)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (3. desember 2020)

Sjá mál nr. 46/2020 á samráðsgáttinni.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-169/2019: Frumvarp til laga um breytingu á upplýsingalögum (Réttarstaða þriðja aðila) · Alviti