Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-238/2019 · Atvinnuvegaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 65/2015, um leigu skráningarskyldra ökutækja

Með frumvarpinu er lagt til að Samgöngustofu verði veitt heimild til að leggja stjórnvaldssektir á leyfishafa, einstakling eða lögaðila, sem breytir kílómetrastöðu skráningarskylds ökutækis, sem skráð er hjá Samgöngustofu í notkunarflokki ökutækjaleigu.

Með frumvarpinu er lagt til að Samgöngustofu verði veitt heimild til að leggja stjórnvaldssektir á leyfishafa, einstakling eða lögaðila, sem breytir kílómetrastöðu skráningarskylds ökutækis, sem skráð er hjá Samgöngustofu sem ökutæki í notkunarflokki ökutækjaleigu. Niðurfærsla kílómetrastöðu felur í sér villandi viðskiptahætti og gefur ranga ásýnd af ökutæki, sem og ranga ásýnd af rekstri leyfishafa. Þá getur háttsemin komið í veg fyrir að eigandi eða umráðamaður ökutækis geti framfylgt reglubundnu viðhaldi öryggisbúnaðar og nauðsynlegum viðgerðum í tæka tíð. Háttsemin getur þannig haft áhrif á öryggi í akstri sem er sér í lagi alvarlegt í ljósi þess að leigutakar aka oft hundruð kílómetra á dag í aðstæðum sem þeir eru óvanir.

S-238/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. sep. 2019 – 14. okt. 2019· 3 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 65/2015, um leigu skráningarskyldra ökutækja

Með frumvarpinu er lagt til að Samgöngustofu verði veitt heimild til að leggja stjórnvaldssektir á leyfishafa, einstakling eða lögaðila, sem breytir kílómetrastöðu skráningarskylds ökutækis, sem skráð er hjá Samgöngustofu í notkunarflokki ökutækjaleigu.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-238/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 14. október 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 386)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (3. desember 2021)

Alls bárust þrjár umsagnir. Umsagnaraðilar voru þeirrar skoðunar að um jákvætt skref væri að ræða. Einn umsagnaraðili benti á, að huga þyrfti nánar að því hvernig ætti að hafa eftirlit með því hvort átt hafi verið við ökurita ökutækis. Samgöngustofa hefur eftirlit með því að lögunum sé fylgt. Að mati ráðuneytisins var ekki talin ástæða að bregðast við athugasemdum að svo stöddu.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Samtök fjármálafyrirtækja

    Meðfylgjandi er umsögn Samtaka fjármálafyrirtækja ("SFF") Virðingarfyllst, fyrir hönd SFF, Margrét A. Jónsdóttir

  • #2Benedikt Sveinbj. Benediktsson

    Meðfylgjandi er umsögn SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu um frumvarpdrögin.

  • #3Samtök ferðaþjónustunnar

    Ágæti viðtakandi, Í viðhengi er umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 65/2015, um leigu skráningarskyldra ökutækja. Ég væri þakklátur fyrir staðfestingu á móttöku. Með góðum kveðjum F.h. SAF Gunnar Valur Sveinsson

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-238/2019: Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 65/2015, um leigu skráningarskyldra ökutækja · Alviti