Frumvarp, hollustuhættir og mengunarvarnir (viðaukar)
Með frumvarpinu er ætlunin að gera nokkrar breytingar á viðaukum í lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir til laga misræmi milli þeirra. Þá er þörf á að meta hvort tiltekna starfsemi vanti í viðauka við lögin sem og hvort einhver starfsemi sem tilgreind er í viðaukunum megi falla á brott.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-179/2019)
- Umsagnarfrestur hefst · til 23. ágúst 2019
- Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (13. júlí 2022)
Umhverfis- og auðlindaráðherra skipaði starfshóp í maí 2019 með það hlutverk að koma með tillögu að endurskoðun viðauka laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áform um lagasetningu og mat á áhrifum fór í innra samráð 7. júní 2019 og í ytra samráð í samráðsgátt stjórnvalda 9. júlí 2019 til 23. ágúst 2019. Þrjár umsagnir bárust á samráðstímanum og var höfð hliðsjón af þeim við samningu frumvarpsins. Drög að frumvarpinu voru kynnt í samráðsgáttinni 4. október 2019, sjá mál 243/2019
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
- #1Sigurður Örn Guðleifsson
Fyrir hönd ráðgjafarnefndar um opinberar eftirlitsreglur eru hjálagðar ábendingar nefndarinnar ásamt leiðarvísi um framkvæmd mats á áhrifum eftirlitsreglna á atvinnugreinar.
- #2Árný Sigurðardóttir
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
- #3Samtök atvinnulífsins
Í viðhengi má finna umsögn Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.