Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-179/2019 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Frumvarp, hollustuhættir og mengunarvarnir (viðaukar)

Með frumvarpinu er ætlunin að gera nokkrar breytingar á viðaukum í lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir til laga misræmi milli þeirra. Þá er þörf á að meta hvort tiltekna starfsemi vanti í viðauka við lögin sem og hvort einhver starfsemi sem tilgreind er í viðaukunum megi falla á brott.

Með lögum nr. 66/2017 var gerð breyting á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og nýjum viðaukum bætt við lögin. Í lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir eru fimm viðaukar þar sem talin er upp sú starfsemi sem þarf að hafa starfsleyfi frá annað hvort Umhverfisstofnun eða heilbrigðisnefndum sveitarfélaga. Umhverfisstofnun gefur út starfsleyfi fyrir starfsemi á viðaukum I-III og heilbrigðisnefndir á viðaukum IV-V. Í frumvarpi til laga, sem varð að lögum nr. 66/2017, var lagt upp með að Umhverfisstofnun myndi einungis gefa út starfsleyfi samkvæmt lögunum en niðurstaðan varð eins og áður segir að viðaukum laganna var skipt á milli Umhverfisstofnunar og heilbrigðisnefnda. Í lögunum er því að finna misræmi milli viðauka og dæmi eru um að sama starfsemi komi fyrir á tveimur viðaukum sem tilheyra sitt hvort stjórnvaldinu. Lagt verður upp með að breyta lögunum með þeim hætti að viðauki III hafi ekki að geyma sjálfstæða upptalningu á starfsemi sem þarf að hafa starfsleyfi heldur sé listi yfir starfsemi þar sem útgefandi starfsleyfis þarf að setja sérstök efnisákvæði í starfsleyfi. Þá verða gerðar breytingar á viðaukum I, II, IV og V með hliðsjón af reynslu við framkvæmd laganna. Að lokum verður lagt til að í nokkrum tilvikum falli starfsleyfisskylda á brott en viðkomandi starfsemi verði áfram undir eftirliti frá heilbrigðisnefndum sveitarfélaga.

S-179/2019· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. júl. 2019 – 23. ágú. 2019· 3 umsagnir

Frumvarp, hollustuhættir og mengunarvarnir (viðaukar)

Með frumvarpinu er ætlunin að gera nokkrar breytingar á viðaukum í lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir til laga misræmi milli þeirra. Þá er þörf á að meta hvort tiltekna starfsemi vanti í viðauka við lögin sem og hvort einhver starfsemi sem tilgreind er í viðaukunum megi falla á brott.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-179/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 23. ágúst 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 436)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (13. júlí 2022)

Umhverfis- og auðlindaráðherra skipaði starfshóp í maí 2019 með það hlutverk að koma með tillögu að endurskoðun viðauka laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áform um lagasetningu og mat á áhrifum fór í innra samráð 7. júní 2019 og í ytra samráð í samráðsgátt stjórnvalda 9. júlí 2019 til 23. ágúst 2019. Þrjár umsagnir bárust á samráðstímanum og var höfð hliðsjón af þeim við samningu frumvarpsins. Drög að frumvarpinu voru kynnt í samráðsgáttinni 4. október 2019, sjá mál 243/2019

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-179/2019: Frumvarp, hollustuhættir og mengunarvarnir (viðaukar) · Alviti