Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-185/2019 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja

Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja til innleiðingar á tilskipun 2014/59/ESB um endurreisn og skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.

Í frumvarpinu eru lögð til ný heildarlög um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja sem innleiða ákvæði tilskipunar 2014/59/ESB. Frumvarpið er yfirgripsmikið og er því skipt upp í 5 þætti þar sem fjallað er um ferli skilameðferðar frá fyrirbyggjandi aðgerðum og undirbúningi skilameðferðar til ákvörðunartöku og framkvæmd á sjálfri skilameðferðinni. Í frumvarpinu er kveðið á um einingu innan Seðlabanka Íslands sem nefnist Skilavald og fer með undirbúning og framkvæmd skilameðferðar og sérstakt fjármögnunarfyrirkomulag sem hægt er að nýta við skilameðferð og nefnist Skilasjóður. Jafnframt eru lagðar til einstakar breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, sem byggja að hluta til á efni tilskipunarinnar og að hluta á því að frumvarpið kveður á um nýja heildarlöggjöf sem leysir ákveðnar eldri reglur um sama efni af hólmi. Þar að auki eru lagðar til afmarkaðar breytingar á lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, nr. 98/1999, vegna innbyrðis tengsla þeirra við ákvæði frumvarpsins.

S-185/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. júl. 2019 – 4. sep. 2019· 1 umsögn

Drög að frumvarpi til laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja

Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja til innleiðingar á tilskipun 2014/59/ESB um endurreisn og skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-185/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 4. september 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 361)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-185/2019: Drög að frumvarpi til laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja · Alviti