Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-243/2019 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Frumvarp, hollustuhættir og mengunarvarnir (viðaukar)

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á starfsleyfis- eða skráningarskyldri starfsemi í þá veru að einungis verði gerð krafa um starfsleyfi eða að starfsemi sé skráð þegar þess er þörf með tilliti til umfangs og eðli starfseminnar. Markmið með frumvarpinu er að einfalda regluverk í þágu atvinnulífs og almennings.

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar í tengslum við starfsleyfis- eða skráningarskylda starfsemi í þá veru að einungis verði gerð krafa um starfsleyfi eða að starfsemi sé skráð þegar þess er þörf með tilliti til umfangs og eðli starfseminnar. Frumvarpið felur m.a. í sér breytingar á viðaukum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir sem lista upp starfsleyfis- og skráningarskylda starfsemi. Við mat á því hvort starfsemi skuli vera háð starfsleyfi eða skráningu er byggt á áhættumati af viðkomandi starfsemi. Þannig er lagt til í frumvarpinu að sú starfsemi sem skorar hátt í áhættumati verði áfram starfsleyfis- eða skráningarskyld en sú starfsemi, sem skorar lágt verði ekki háð starfsleyfis- eða skráningarskyldu. Þrátt fyrir þær lagabreytingar sem ráðgerðar eru þurfa þau fyrirtæki, sem verða ekki starfsleyfis- og skráningarskyld eftir sem áður að uppfylla þær kröfur sem fram koma í lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Einnig er gert ráð fyrir að stjórnvöld hafi áfram heimildir til þess að bregðast við í þeim tilvikum þar sem misbrestur verður á að reglum sé fylgt, svo sem með beitingu þvingunarúrræða.

S-243/2019· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. okt. 2019 – 25. okt. 2019· 10 umsagnir

Frumvarp, hollustuhættir og mengunarvarnir (viðaukar)

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á starfsleyfis- eða skráningarskyldri starfsemi í þá veru að einungis verði gerð krafa um starfsleyfi eða að starfsemi sé skráð þegar þess er þörf með tilliti til umfangs og eðli starfseminnar. Markmið með frumvarpinu er að einfalda regluverk í þágu atvinnulífs og almennings.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-243/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 25. október 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 10 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 436)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (13. júlí 2022)

Lög nr. 66/2020 um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir tóku gildi 1. júlí 2020

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (10)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-243/2019: Frumvarp, hollustuhættir og mengunarvarnir (viðaukar) · Alviti