Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-183/2019 · Atvinnuvegaráðuneytið

Áform um frumvarp um breytingu á lögum nr. 33/2013 um neytendalán

Starfshópur um endurskoðun á starfsumhverfi smálánafyrirtækja var skipaður með bréfi ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, dagsett 11. júlí 2018. Starfshópurinn skilaði skýrslu til ráðherra í janúar 2019.Með fyrirhuguðu frumvarpi er ætlað að bregðast við niðurstöðum þeirrar skýrslu

Starfshópur um endurskoðun á starfsumhverfi smálánafyrirtækja var skipaður með bréfi ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, dagsett 11. júlí 2018. Starfshópurinn skilaði skýrslu til ráðherra í janúar 2019. Honum var ætlað að kortleggja umhverfi smálánafyrirtækja og bera það saman við lagalegt umhverfi í nágrannalöndum. Þá var hópnum falið að skilgreina hugtakið smálán, hvernig slík lán eru veitt, áhrif þeirra á neytendur og markaðinn. Loks skyldi starfshópurinn leggja mat á það hvort starfsemin ætti að vera starfsleyfisskyld og leggja fram tillögur til úrbóta á starfsumhverfi smálánafyrirtækja. Starfshópurinn taldi að hin eiginlegu smálán væru þau lán sem væru að valda mestum vanda hjá neytendum. Starfshópurinn skilaði nokkrum tillögum til að þrengja að starfsemi þeirra. Hins vegar er mikilvægt að þrengja ekki veitingu löglegra neytendalána sem veitt eru í fjarsölu. Ráðherra var afhent skýrslan og þetta frumvarp er til þess að bregðast við þeirri skýrslu og útfæra þær tillögur sem starfshópurinn lagði til. Með fyrirhuguðu frumvarpi er ætlað að bregðast við niðurstöðum fyrrgreindrar skýrslu

S-183/2019· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. júl. 2019 – 16. ágú. 2019· 3 umsagnir

Áform um frumvarp um breytingu á lögum nr. 33/2013 um neytendalán

Starfshópur um endurskoðun á starfsumhverfi smálánafyrirtækja var skipaður með bréfi ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, dagsett 11. júlí 2018. Starfshópurinn skilaði skýrslu til ráðherra í janúar 2019.Með fyrirhuguðu frumvarpi er ætlað að bregðast við niðurstöðum þeirrar skýrslu

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-183/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 16. ágúst 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 344)
Niðurstöður samráðs (6. janúar 2020)

Drög að frumvarpi voru kynnt í samráðsgátt þann 16.09.2019—24.09.2019. Niðurstöður voru birtar 06.01.2020. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 14.10.2019 og varð með breytingum efnahags- og viðskiptanefndar að lögum frá Alþingi. Sjá einnig mál Samráðsgáttar nr. 227/2019.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-183/2019: Áform um frumvarp um breytingu á lögum nr. 33/2013 um neytendalán · Alviti