Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-196/2019 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um innheimtu opinberra skatta og gjalda

Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um innheimtu opinberra skatta og gjalda.

Í frumvarpi þessu er lagt til að lögfestar verði reglur um innheimtu opinberra skatta og gjalda ásamt því að lagt er til að hluti ákvæða flytjist úr XIII. kafla laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, að mestu leyti óbreytt yfir í frumvarp þetta og lög um endurgreiðslu oftekinna skatta og gjalda, nr. 29/1995, fari sömuleiðis inn í þessi lög, ásamt breytingum á fleiri lögum. Í dag eru reglur um innheimtu opinberra skatta og gjalda að finna á víð og dreif í hinum ýmsu lagabálkum en aðallega í XIII. kafla laga um tekjuskatt, nr. 90/2003. Að öðru leyti gilda stjórnsýslulög, nr. 37/1993, um alla meðferð stjórnsýslumála fyrir hönd ríkissjóðs og verklagsreglur sem innheimtumaður ríkissjóðs hefur sett sér ásamt reglugerð frá fjármála- og efnahagsráðherra, nr. 1060/2014, sem að sumu leyti er orðin úrelt og þarfnast endurútgáfu. Helsta markmiðið með gerð frumvarpsins er að tryggja sem best réttaröryggi gjaldenda gagnvart ríkissjóði þegar kemur að innheimtu opinberra skatta og gjalda og lögfesta gildandi framkvæmd ásamt því að frumvarpið felur í sér nokkrar breytingar sem talið er að verði til bóta í framkvæmd og auki jafnræði gjaldenda. Fyrirmynd að frumvarpinu er að einhverju leyti sótt til nágrannalanda Íslands.

S-196/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. júl. 2019 – 28. ágú. 2019· 3 umsagnir

Drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um innheimtu opinberra skatta og gjalda

Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um innheimtu opinberra skatta og gjalda.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-196/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 28. ágúst 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 314)
Niðurstöður samráðs (11. september 2019)

Fjármála- og efnahagsráðuneytið þakkar umsagnaraðilum fyrri sendar umsagnir. Ráðuneytið hyggst leggja fram drög að frumvarpi til laga um innheimtu opinberra skatta og gjalda að nýju á samráðsgáttina til umsagnar, með stuttum umsagnarfresti, í ljósi þess að drögin hafa tekið breytingum frá því það var lagt fyrst fram til umsagnar. Tekin var ákvörðun um að veita hagsmunaaðilum tækifæri til að koma með frekari athugasemdir við drögin á þessu stigi, þ.e. áður en þau verða endanlega útbúin til framlagningar á Alþingi í október. Sjá nánari lýsingu í viðhengdu niðurstöðuskjali.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Nasdaq verðbréfamiðstöð hf.

    Meðfylgjandi er umsögn Nasdaq verðbréfamiðstöðvar hf.

  • #2Persónuvernd

    Persónuvernd hyggst veita umsögn um drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um innheimtu opinberra skatta og gjalda við fyrsta tækifæri en vegna anna hjá stofnuninni er ekki unnt að ljúka henni innan þess frests sem gefinn hefur verið í samráðsgátt. Persónuvernd mun gera alvarlegar athugasemdir við 19. gr. draganna. F.h. Persónuverndar, Vigdís Eva Líndal Skrifstofustjóri upplýsingaöryggis

  • #3Samtök atvinnulífsins

    Góðan dag, Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins um fyrirliggjandi frumvarpsdrög. Virðingarfyllst, Heiðrún Björk Gísladóttir

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-196/2019: Drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um innheimtu opinberra skatta og gjalda · Alviti