Hverju lofaði ríkisstjórnin?
Þingmálaskrá ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur fyrir 153. þing. Þinginu er lokið: hér sést hvað af skránni Alþingi samþykkti, hvað dagaði uppi og hvað kom aldrei fram.
frumvörp og tillögur á þingmálaskrá 153. þings
Af málum sem komu fram voru 24 lögð fram í áætluðum mánuði eða fyrr og 65 seinna en áætlað var.
Hvað komst í gegn? Samanburður milli þinga
Hlutfall frumvarpa og tillagna á þingmálaskrá hvers þings sem Alþingi samþykkti fyrir þinglok. Skrárnar eru misstórar og lengri skrá getur gefið lægra hlutfall, svo fjöldinn fylgir með.
- 158. þing · Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur · yfirstandandi1 % samþykkt · 1 af 1501 samþykkt32 í vinnslu117 ekki komið fram
- 157. þing · Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur62 % samþykkt · 91 af 14791 samþykkt24 dagaði uppi eða fellt32 kom aldrei fram
- 154. þing · Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur44 % samþykkt · 88 af 20088 samþykkt19 dagaði uppi eða fellt93 kom aldrei fram
- 153. þing · Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur43 % samþykkt · 64 af 14964 samþykkt25 dagaði uppi eða fellt60 kom aldrei fram
| Þing | Dagsetning | Lögð fram | Samþykkt |
|---|---|---|---|
| 158. þing | 27. okt. 2026 | 33 af 150 | 1 |
| 157. þing | 28. okt. 2025 | 45 af 147 | 7 |
| 154. þing | 31. okt. 2023 | 26 af 200 | 0 |
| 153. þing | 1. nóv. 2022 | 23 af 149 | 0 |
155. þingi lauk snemma vegna alþingiskosninga í nóvember 2024 og 156. þing var aðeins vorþing, svo þau eru ekki borin saman hér. Á 154. þingi tók ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar við í apríl 2024; skráin var birt af ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.
Forsætisráðherra
4 af 5 komin fram
- Kom aldrei framFrumvarp
Rýni á beinum erlendum fjárfestingum vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu
Áætlað: nóvemberÍ Samráðsgátt:S-102/2022 (áform um lagasetningu, 4 umsagnir)S-197/2022 (drög að frumvarpi til laga, 11 umsagnir)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Í frumvarpinu er mælt fyrir um heimildir stjórnvalda til að meta og taka afstöðu til fjárfestinga erlendra aðila í þýðingarmiklum samfélagsinnviðum og tengdri starfsemi með tilliti til sjónarmiða um þjóðaröryggi, sbr. ábendingar í skýrslu stýrihóps um heildstæða löggjöf og stjórnsýslu varðandi jarðir, land og aðrar fasteignir (maí 2021) og löggjöf um þetta efni annars staðar á Norðurlöndum og á Evrópska efnahagssvæðinu.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um rýni á beinum erlendum fjárfestingum vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.
Dómsmálaráðherra
12 af 20 komin fram
- Kom aldrei framFrumvarp
Framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins
Áætlað: septemberHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að sýslumannsembættin níu verði sameinuð í eitt, með það að aðalmarkmiði að efla þjónustu hins opinbera á öllu landinu.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins.
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á ýmsum lögum (sameining sýslumannsembætta)
Áætlað: nóvemberÍ Samráðsgátt:S-122/2022 (drög að frumvarpi til laga, 32 umsagnir)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum sem varða verkefni sýslumanna, með það að markmiði að endurspegla breytta skipan sýslumannsembættanna við sameiningu. Að auki eru lagðar til breytingar á lögunum sem miða að því að eyða hindrunum fyrir innleiðingu stafrænna lausna fyrir framkvæmd verkefna.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum (sameining sýslumannsembætta).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á skaðabótalögum, nr. 50/1993 (örorkumat o.fl.)
Áætlað: nóvemberÍ Samráðsgátt:S-91/2022 (áform um lagasetningu, 8 umsagnir)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum skaðabótalaga sem varða mat á örorku og örorkunefnd. Einnig e ru lagðar til breytingar er varða margfeldisstuðul, vísitölutengingu og frádráttarreglur sem lagðar voru til í frumvarpi sem lagt var fram á Alþingi á 148. löggjafarþingi.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á skaðabótalögum, nr. 50/1993 (örorkumat o.fl.)
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á áfengislögum, lögum um verslun með áfengi og tóbak og lögum um aukatekjur ríkissjóðs (vefverslun með áfengi)
Áætlað: nóvemberHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að innlendum söluaðilum verði heimilt að starfrækja vefverslun með áfengi í smásölu til neytenda hér á landi.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum, lögum um verslun með áfengi og tóbak og lögum um aukatekjur ríkissjóðs (vefverslun með áfengi).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum, nr. 13/1984 (einföldun málsmeðferðar)
Áætlað: janúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum til einföldunar á framkvæmd laganna.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum, nr. 13/1984 (einföldun málsmeðferðar).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum fyrir fötluð börn, nr. 47/2010 (Hjalteyri)
Áætlað: febrúarÍ Samráðsgátt:S-257/2022 (drög að frumvarpi til laga, 10 umsagnir)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum fyrir fötluð börn með það að markmiði að tryggja börnum sem voru vistuð við óviðunandi aðstæður á síðustu öld á heimilinu að Hjalteyri rétt til sanngirnisbóta.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum fyrir fötluð börn, nr. 47/2010 (Hjalteyri).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögræðislögum, nr. 71/1997 (ýmsar breytingar)
Áætlað: febrúarÍ Samráðsgátt:S-209/2022 (áform um lagasetningu, 3 umsagnir)S-161/2023 (drög að frumvarpi til laga, 16 umsagnir)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru fyrst og fremst lagðar til breytingar á ákvæðum laganna um nauðungarvistanir, auk nokkurra annarra breytinga. Er markmiðið að tryggja að lagaumhverfi um nauðung arvistanir og verklag á grundvelli þess sé í samræmi við alþjóðlegar mannréttindaskuldbindingar.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögræðislögum, nr. 71/1997 (ýmsar breytingar).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008 (ýmsar breytingar vegna skipulagðrar brotastarfsemi)
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um meðferð sakamála til að takast á við rannsókn mála er varða skipulagða brotastarfsemi, svo sem lengd gæsluvarðhalds og aðgang að gögnum. Þá verður einnig komið til móts við athugasemdir nefndar Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum hvað varðar ákvæði um einangrun gæsluvarðhaldsfanga.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008 (ýmsar breytingar vegna skipulagðrar brotastarfsemi).
Félags- og vinnumarkaðsráðherra
6 af 12 komin fram
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006 (desemberuppbót)
Áætlað: októberÍ Samráðsgátt:S-154/2022 (drög að frumvarpi til laga, 1 umsögn)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að lögfest verði að greiða skuli desemberuppbætur til atvinnuleitenda sem uppfylla tiltekin skilyrði.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006 (desemberuppbót).
- Kom aldrei framFrumvarp
Greiðslur vegna umönnunar langveikra eða fatlaðra barna
Áætlað: nóvember· EndurfluttHvað stendur í þingmálaskránni?
Í frumvarpinu felast breytingar á tilhögun stuðnings við foreldra og forráðamenn fatlaðra og langveikra barna í samræmi við niðurstöður starfshóps sem skipaður var til þess að meta reynslu af framkvæmd laganna og þörf á breytingum. Einföldun kerfis með sameiningu foreldragreiðslna og umönnunargreiðslna auk þess sem greiðslur til foreldra taki mið af umönnunarþörf og kostnaði sem er tilkominn vegna fötlunar og veikinda barnsins. Frumvarpinu er ætlað að koma í stað laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, nr. 22/2006, og 4. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um greiðslur vegna umönnunar langveikra eða fatlaðra barna.
- Kom aldrei framFrumvarp
Atvinnuleysistryggingar
Áætlað: febrúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér ný heildarlög um atvinnuleysistryggingar sem meðal annars er ætlað að einfalda gildandi atvinnuleysistryggingakerfi sem og að bregðast við þeim breytingum sem orðið hafa á vinnumarkaði, svo sem hvað varðar ólík ráðningarform.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um atvinnuleysistryggingar.
- Kom aldrei framFrumvarp
Þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd
Áætlað: febrúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Í ljósi þess að þjónusta við umsækjendur um alþjóðlega vernd skv. 27. og 33. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016 hefur verið flutt undir málefnasvið félags- og vinnumarkaðsráðuneytis, sbr. forsetaúrskurð um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 6/2022, er ætlunin að leggja fram frumvarp til laga um þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd þar sem meðal annars verði kveðið á um þá opinberu stofnun á málefnasviði félags- og vinnumarkaðsráðuneytis sem veita mun umrædda þjónustu.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd.
- Kom aldrei framFrumvarp
Starfskjaralaga
Áætlað: mars· EndurfluttHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpinu er ætlað að fylgja eftir tillögum sem fram koma í skýrslu samstarfshóps um félag sleg undirboð og brotastarfsemi á vinnumarkaði en hópurinn skilaði tillögum sínum í janúar 2019. Jafnframt er frumvarpinu ætlað að hrinda í framkvæmd aðgerðum ríkisstjórnarinnar til stuðnings lífskjarasamningum er falla undir málefnasvið félags- og vinnumarkaðsráðuneytis og lúta að vinnumarkaði.
Heiti á skránni: Frumvarp til starfskjaralaga.
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð (endurskoðun greiðslukerfis vegna skertrar starfsgetu og endurhæfingar)
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að greiðsluflokkar vegna skertrar starfsgetu verði þrír, þ.e. sjúkragreiðslur, endurhæfingargreiðslur og örorkulífeyrir, en til viðbótar greiðist heimilisuppbót þeim sem búa einir og aldursviðbót þeim sem fara í endurhæfingu eða eru metin til örorku í fyrsta sinn ung að árum. Markmiðið er að tryggja sjálfbærni örorkulífeyriskerfisins, einfalda það og bæta samspil þess við lífeyrissjóðakerfið ásamt því að auka stuðning við þann hóp örorkulífeyrisþega sem hefur mjög lágar eða engar tekjur sér til framfærslu aðrar en bætur almannatrygginga. Þannig verði bótaflokkar sameinaðir og þeim þar með fækkað, dregið úr tekjutengingum og útreikningar einfaldaðir auk þess sem hvatar til atvinnuþátttöku verði auknir.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð (endurskoðun greiðslukerfis vegna skertrar starfsgetu og endurhæfingar).
Fjármála- og efnahagsráðherra
9 af 11 komin fram
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og sta rfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997 (starfsleyfi lífeyrissjóða)
Áætlað: októberÍ Samráðsgátt:S-71/2023 (drög að frumvarpi til laga, 3 umsagnir)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að veiting starfsleyfa til lífeyrissjóða og staðfesting á samþ ykktum þeirra verð i færðar frá ráðuneytinu til Seðlabanka Íslands.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og sta rfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997 (starfsleyfi lífeyrissjóða).
- Kom aldrei framFrumvarp
Gagnsæi í fjármö gnunarviðskiptum (SFTR)
Áætlað: október· EES-innleiðingÍ Samráðsgátt:S-196/2021 (áform um lagasetningu, 1 umsögn)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2365 frá 25. nóvember 2015 um gagnsæi í fjármögnunarviðskiptum með verðbréf og um endurnotkun og breytingu á reglugerð (ESB) 648/2012, verði innleidd. Frumvarpið felur meðal annars í sér að tilteknar upplýsingar um fjármögnunarviðskipti með verðbréf verða skráðar í viðskiptaskrá til að auka gagnsæi viðskiptanna.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um gagnsæi í fjármö gnunarviðskiptum (SFTR).
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
2 af 5 komin fram
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um f jarskiptasjóð, nr. 132/2005 (gildistími)
Áætlað: nóvemberHvað stendur í þingmálaskránni?
Í gildandi lögum um fjarskiptasjóð, nr. 132/2005, er sólarlagsákvæði sem kveður á um að lögin falli úr gildi í árslok 2022. Fjarskiptasjóður hefur verið nýttur sem tæki til uppbyggingar fjarskipta og hefur hann úthlutað fjármagni til verkefna á grundvelli fjarskiptaáætlunar, ef ætla má að ekki verði í þau ráðist á markaðsforsendum.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um f jarskiptasjóð, nr. 132/2005 (gildistími).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um löggildingu nokkurra starfsheita sérfræðinga í tækni- og hönnunargreinum, nr. 8/1996 (endurskoðun)
Áætlað: nóvemberHvað stendur í þingmálaskránni?
Lög um löggildingu nokkurra starfsheita sérfræðinga í tækni- og hönnunargeiranum kveða á um löggildingu starfsheita sérfræðinga í tækni- og hönnunargreinum. Frumvarpið mælir fyrir um endurskoðun á lögunum með einföldun regluverks að markmiði.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um löggildingu nokkurra starfsheita sérfræðinga í tækni- og hönnunargreinum, nr. 8/1996 (endurskoðun).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um Nýsköpunarsjóð atvi nnulífsins, nr. 61/1997 (endurskoðun)
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er mælt fyrir um almenna endurskoðun á lögum um Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins,nr. 67/1997.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Nýsköpunarsjóð atvi nnulífsins, nr. 61/1997 (endurskoðun).
Heilbrigðisráðherra
6 af 9 komin fram
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997 (takmörkun á beitingu nauð ungar)
Áætlað: febrúarÍ Samráðsgátt:S-18/2023 (drög að frumvarpi til laga, 7 umsagnir)S-83/2023 (áform um lagasetningu, 4 umsagnir)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um réttindi sjúklinga sem fela meðal annars í sér meginreglu um bann við beitingu nauðungar en einnig undanþágur frá meginreglunni þegar brýna nauðsyn ber til að beita nauðung að uppfylltum skilyrðum sem skilgreind eru í frumvarpinu. Enn fremur eru með frumvarpinu lagðar til strangari málsmeðferðarreglur en nú gilda sem fylgja þarf við og í kjölfar slíkra inngripa, þ.m.t. skráningarskyldu tilvika, kæruheimildir og rétt til að bera mál undir dómstóla.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997 (takmörkun á beitingu nauð ungar).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974 (afnám refsingar)
Áætlað: marsÍ Samráðsgátt:S-129/2022 (áform um lagasetningu, 7 umsagnir)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér breytingu á ákvæði laganna um vörslu og meðferð á þann hátt að heimila vörslu ávana- og fíkniefna sem teljast til eigin nota.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974 (afnám refsingar).
- Kom aldrei framÞingsályktunartillaga
Áætlun um framkvæmd geðheilbrigðisstefnu til fimm ára
Áætlað: janúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Með vísan til þingsályktunar um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030 verður lögð fram tillaga til þingsályktunar um aðgerðaráætlun til fimm ára til að hrinda í framkvæmd stefnu í geðheilbrigðismálum.
Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um áætlun um framkvæmd geðheilbrigðisstefnu til fimm ára.
Innviðaráðherra
13 af 19 komin fram
- Kom aldrei framFrumvarp
Heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu og rekstur samgönguinnviða
Áætlað: nóvemberÍ Samráðsgátt:S-130/2022 (áform um lagasetningu, 11 umsagnir)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Í frumvarpinu er lagt til að heimild verði veitt til stofnunar opinbers hlutafélags um uppbyggingu og rekstur samgönguinnviða með það að markmiði að flýta þjóðfélagslega mikilvægum samgönguframkvæmdum. Hlutverk slíks félags verður skilgreint nánar ásamt þeim heimildum sem það hefur.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu og rekstur samgönguinnviða.
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á hafnalögum, nr. 61/2003 (gjaldtaka, rafræn vöktun o.fl.)
Áætlað: nóvember· EndurfluttÍ Samráðsgátt:S-227/2021 (áform um lagasetningu, 3 umsagnir)S-37/2023 (drög að frumvarpi til laga, 8 umsagnir)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér breytingar á ákvæðum er lúta að gjaldtöku vegna fiskeldis, skilgreiningu hafnarsvæða, kærum á gjaldskrárákvæðum hafna og hlutverki Samgöngustofu og Vegagerðarinnar á þessu sviði. Frumvarpið er að hluta til efnislega samhljóða frumvarpi sem ráðherra mælti fyrir á 151. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003 (gjaldtaka, rafræn vöktun o.fl.).
- Kom aldrei framFrumvarp
Almenningssamgöngur
Áætlað: febrúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér ný heildarlög um almenningssamgöngur í lofti, á láði og legi. Skapaður er rammi um samþætt kerfi almenningssamgangna og tengingar ólíkra ferðamáta innan kerfisins. Þá eru ákvæði annarra laga er varða réttindi farþega færð í lög um almenningssamgöngur. Markmið frumvarpsins er að stuðla að virkum, öruggum og hagkvæmum almenningssamgöngum og auka hlutdeild þeirra í samgöngum almennt.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um almenningssamgöngur.
- Kom aldrei framÞingsályktunartillaga
Samgönguáætlun
Áætlað: janúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Tillaga til endurskoðaðrar þingsályktunar um samgönguáætlun er lögð fram í samræmi við ákvæði laga. Í henni skal mörkuð stefna og markmið fyrir allar greinar samgangna til 15 ára og aðgerðaáætlun til fimm ára.
Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun.
- Kom aldrei framÞingsályktunartillaga
Húsnæðisstefnu
Áætlað: janúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Tillaga til þingsályktun um húsnæðisstefnu er lögð fram í samræmi við ákvæði laga um húsnæðismál. Í henni er mótuð opinber stefna í húsnæðismálum til fjögurra ára í senn. Stefnumótunin miðar við fimmtán ár og enn fremur er lögð fram aðgerðaáætlun til fimm ára.
Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um húsnæðisstefnu.
- Kom aldrei framÞingsályktunartillaga
Lands skipulagsstefnu
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Tillaga til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu er lögð fram á grundvelli skipulagslaga. Í henni er mótuð opinber stefna í skipulagsmálum, einkum landsskipulags. Stefnumótunin miðar við fimmtán ár og enn fremur er lögð fram aðgerðaráætlun til fimm ára.
Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um lands skipulagsstefnu.
Matvælaráðherra
10 af 12 komin fram
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á búvörulögum, nr. 99/1993 (samkeppni í framleiðslu og sölu búvöru)
Áætlað: febrúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á búvörulögum í því skyni að styrkja stöðu og samtakamátt frumframleiðenda búvara og ýta undir samvinnu og hagræðingu í vinnslu og markaðssetningu búvara.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á búvörulögum, nr. 99/1993 (samkeppni í framleiðslu og sölu búvöru).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á ýmsum lögum á sviði fiskveiðistjórnar (viðurlög og tengdir aðilar)
Áætlað: marsÍ Samráðsgátt:S-183/2022 (áform um lagasetningu, 3 umsagnir)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er brugðist við ábendingum í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá 2019. Lagt er til að komið verði á fót heildstæðu viðurlagakerfi vegna brota á helstu lögum á sviði fiskveiðistjórnar; á lögum nr. 57/1996, nr. 116/2006, nr. 79/1997, nr. 22/1998 og nr. 151/1996. Þá er lagt til að hugtakið raunveruleg yfirráð við framkvæmd reglna um hámarksaflahlutdeild og tengda aðila verði afmarkað nánar.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á sviði fiskveiðistjórnar (viðurlög og tengdir aðilar).
Menningar- og viðskiptaráðherra
10 af 21 komin fram
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um listamannalaun, nr. 57/2009 (endurskoðun)
Áætlað: októberHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér endurskoðun á tilteknum þáttum varðandi framkvæmd á reglum um starfslaun listamanna.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um listamannalaun, nr. 57/2009 (endurskoðun).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á kvikmyndalögum, nr. 137/2001 (skilyrtir styrkir til sjónvarpsþáttagerðar)
Áætlað: október· EndurfluttHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið byggist að meginhluta á kvikmyndastefnu til ársins 2030 sem var kynnt 6. október 2020 á vef Stjórnarráðsins. Þar er kallað eftir breyttu fyrirkomulagi í sjóðakerfi kvikmyndagerðar til að koma til móts við nýja tíma sem einkennast af hröðu þróunar- og fjármögnunarferli verkefna. Með frumvarpinu er einnig skerpt á atriðum er varða Kvikmyndasafn Íslands og Kvikmyndamiðstöð Íslands. Meginefni frumvarpsins er að kveða skýrt á um heimild Kvikmyndasjóðs til að veita skilyrta styrki til sjónvarpsþáttagerðar.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á kvikmyndalögum, nr. 137/2001 (skilyrtir styrkir til sjónvarpsþáttagerðar).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um hlutafélög, nr. 2/1995. (innleiðing EES-gerðar)
Áætlað: nóvember· EES-innleiðingHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er mælt fyrir um innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/828 frá 17. maí 2017 um breytingu á tilskipun 2007/36/EB að því er varðar hvatningu til þátttöku hluthafa til lengri tíma (SRD II). Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um hlutafélög sem varða að mestu félög þar sem hlutir hafa verið te knir til viðskipta á skipulegum markaði og lúta að deili á hluthöfum slíkra félaga, upplýsingagjöf o.fl.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hlutafélög, nr. 2/1995. (innleiðing EES-gerðar).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um fyrirtækjaskrá, nr. 17/2003 (innleiðing reglugerðar)
Áætlað: nóvember· EES-innleiðingÍ Samráðsgátt:S-76/2023 (drög að frumvarpi til laga, 0 umsagnir)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er mælt fyrir um innleiðingu á ákvæðum tilskipana og reglugerða (ESB) um samtengingakerfi skráa EES-ríkjanna samkvæmt 22. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1132 frá 14. júní 2017 um tiltekna þætti félagaréttar og samkvæmt 30. og 31. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849 frá 20. maí 2015 um ráðstafanir gegn því að fjármálakerfið sé notað til peningaþvættis eða til fjármögnunar hryðjuverka, um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins ESB nr. 648/2012, og um niðurfellingu á tilskipun Evrópuþingsins 2005/60/EB og tilskipun ráðsins og framkvæmdastjórnarinnar 2006/70/EB. Annars vegar er um að ræða upplýsingar í fyrirtækjaskrám EES-ríkjanna (BRIS – Business Registers Interconnection System) og hins vegar er um að ræða upplýsingar í skrám um raunverulega eigendur í EES-ríkjunum (BORIS – Beneficial Ownership Registers Interconnection System).
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fyrirtækjaskrá, nr. 17/2003 (innleiðing reglugerðar).
- Kom aldrei framFrumvarp
Bókhald
Áætlað: febrúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun á lögunum með áherslu á rafrænt bókhald og einföldun í þágu minni félaga.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um bókhald.
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006. (sektarákvæði, framkvæmd ársreikningaskrár, stærðarmörk félaga ogendurskoðunarmörk)
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér endurskoðun í ljósi reynslu varðandi sektarákvæði seinni skila ársreiknings til opinberrar birtingar samkvæmt lögum um ársreikninga. Einnig fer fram endurskoðun á stærðarmörkum félaga skv. 2. gr. laganna og endurskoðunarmörk félaga skv. 98. gr. laganna.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006. (sektarákvæði, framkvæmd ársreikningaskrár, stærðarmörk félaga ogendurskoðunarmörk).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög (arðgreiðslur, samruni o.fl.)
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér endurskoðun á ákvæðum laga um hlutafélög, laga um einkahlutafélög og laga um ársreikninga um annars vegar arðgreiðslur og hins vegar samruna.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög (arðgreiðslur, samruni o.fl.).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög (innleiðing)
Áætlað: mars· EES-innleiðingHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2121 frá 27. nóvember 2019 um breytingu á tilskipun (ESB) 2017/1132 að því er varðar breytingar, samruna og skiptingu í kjölfar flutninga yfir landamæri.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög (innleiðing).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög (innleiðing EES gerðar)
Áætlað: mars· EES-innleiðingHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2019/1151 frá 20. júní 2019 um breytingu á tilskipun (ESB) 2017/1132 að því er varðar notkun stafrænna tækja og ferla í félagarétti.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög (innleiðing EES gerðar).
- Kom aldrei framFrumvarp
Markaðssetningarlaga
Áætlað: mars· EES-innleiðingHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun á ákvæðum laga um lögbann og dómsmál til að vernda heildarhagsmuni neytenda, nr. 141/2001, laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, nr. 57/2005, laga um Neytendastofu, nr. 62/2005, og laga um samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd, nr. 20/2020. Markmið endurskoðunarinnar er að tryggja góða neytendavernd, tryggja bætt samræmi við EES-rétt, auka skýrleika og létta reglubyrði. Frumvarpið felur einnig í sér innleiðingu á hluta tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2161 frá 27. nóvember 2019 um breytingu á tilskipun ráðsins 93/13/EBE og tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 98/6/EB, 2005/29/EB og 2011/83/ESB að því er varðar betri framfylgd og nútímavæðingu reglna Sambandsins um neytendavernd (tilskipun um nútímavæðingu).
Heiti á skránni: Frumvarp til markaðssetningarlaga.
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um neytendakaup, nr. 48/2003, o.fl. (innleiðing)
Áætlað: mars· EES-innleiðingHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum um neytendakaup, nr. 48/2003, með síðari breytingum vegna innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/770 frá 20. maí 2019 um tiltekna þætti varðandi samninga um afhendingu á stafrænu efni og stafrænni þjónustu og vegna innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/771 frá 20. maí 2019 um tiltekna þætti varðandi samninga um sölu á vörum, um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/2394 og tilskipun 2009/22/EB og um niðurfellingu tilskipunar 1999/44/EB. Þá felur frumvarpið auk þess í sér innleiðingu á hluta tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2161 frá 27. nóvember 2019 um breytingu á tilskipun ráðsins 93/13/EBE og tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 98/6/EB, 2005/29/EB og 2011/83/ESB að því er varðar betri framfylgd og nútímavæðingu reglna Sambandsins um neytendavernd.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um neytendakaup, nr. 48/2003, o.fl. (innleiðing).
Mennta- og barnamálaráðherra
3 af 7 komin fram
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008 (vinnustaðanám, samningar við einkaskóla o.fl.)
Áætlað: októberÍ Samráðsgátt:S-157/2023 (áform um lagasetningu, 10 umsagnir)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér breytingu á gildandi lögum um framhaldsskóla sem miða m.a. að því að aðlaga tiltekin ákvæði laganna að þróun sem orðið hefur á málefnasviðinu og samræma hugtakanotkun. Með frumvarpinu eru m.a. lagðar til breytingar á ákvæðum laganna sem snúa að hlutverki starfsgreinaráðs, vinnustaðanámi, námsmati og samningum ráðherra við framhaldsskóla.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008 (vinnustaðanám, samningar við einkaskóla o.fl.).
- Kom aldrei framFrumvarp
Barnavernd
Áætlað: marsÍ Samráðsgátt:S-158/2023 (áform um lagasetningu, 0 umsagnir)S-155/2023 (áform um lagasetningu, 1 umsögn)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér síðari hluta heildarendurskoðunar barnaverndarlaga, nr. 80/2002.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um barnavernd.
- Kom aldrei framFrumvarp
Mælaborð um farsæld barna
Áætlað: marsÍ Samráðsgátt:S-13/2023 (áform um lagasetningu, 4 umsagnir)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er ætlunin að lögfesta heimildir stjórnvalda til að mæla og kanna líðan, velferð og farsæld barna og safna upplýsingunum í sérstakt mælaborð. Markmiðið með söfnun gagna um farsæld barna er að fá betri yfirsýn yfir stöðu barna á Íslandi sem unnt er að nýta við stefnumótun, forgangsröðun fjármuna og fleiri atriði.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um mælaborð um farsæld barna.
- Kom aldrei framÞingsályktunartillaga
Framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar 2023- 2026
Áætlað: marsÍ Samráðsgátt:S-85/2023 (annað, 4 umsagnir)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar er lögð fram skv. 5. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002. Í áætluninni verða settar fram tillögur um áherslur stjórnvalda í málaflokknum og lagðar til helstu aðgerðir og framkvæmdir á málefnasviðinu næstu ár.
Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar 2023- 2026.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
8 af 17 komin fram
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á ýmsum lögum vegna banns við leit, rannsóknum og vinnslu kolvetnis í efnahagslögsögunni (bann við olíuleit)
Áætlað: september· EndurfluttÍ Samráðsgátt:S-37/2022 (drög að frumvarpi til laga, 4 umsagnir)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að stefnu stjórnvalda verði fylgt eftir með lagasetningu þar sem lagt er bann við því að veita leyfi til leitar, rannsókna og vinnslu kolvetnis (olíu) í efnahagslögsögunni. Auk niðurfellingar viðkomandi löggjafar er í frumvarpinu að finna ýmsar breytingar á lögum þar sem er að finna vísun til leitar, rannsóknar og vinnslu kolvetnis í efnahagslögsögunni. Að meginstefnu til er um að ræða brottfall lagaákvæða sem að þessu lúta.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna banns við leit, rannsóknum og vinnslu kolvetnis í efnahagslögsögunni (bann við olíuleit).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á raforkulögum,nr. 65/2003 (kerfisframlag dreifiveitna)
Áætlað: októberÍ Samráðsgátt:S-165/2022 (drög að frumvarpi til laga, 5 umsagnir)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á raforkulögum til að tryggja að dreifiveitur geti rukkað kerfisframlag vegna nýrra tenginga eða styrkingar á dreifikerfinu. Með frumvarpinu er brugðist við úrskurði úrskurða rnefndar raforkumála í máli nr. 8/2021 þar sem úrskurðarnefndin taldi ekki lagaheimild fyrir gjaldtökunni.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum,nr. 65/2003 (kerfisframlag dreifiveitna).
- Kom aldrei framFrumvarp
Vernd, velferð og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum
Áætlað: febrúar· EndurfluttHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun gildandi laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Frumvarpið var lagt fram á 151. löggjafarþingi. með breytingum.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um vernd, velferð og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr
Áætlað: mars· EndurfluttHvað stendur í þingmálaskránni?
49/1997 (markmiðsákvæði, endurskoðun hættumats, sektir o.fl.). Í frumvarpinu eru að finna ákvæði um markmið með lögunum, aukið er á skýrleika tiltekinna ákvæða, lagðar til breytingar á ákvæðum um endurskoðun hættumats, eftirlit, um nýtingu húseigna og innheimtu gjalda og lögð til sektarákvæði. Frumvarpið var lagt fram á 151. löggjafarþingi. með breytingum.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr.
- Kom aldrei framFrumvarp
Vindorku
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Í frumvarpinu er tillögur um lagaramma í kringum nýtingu vindorku með það að markmiði að einfalda uppbyggingu vindorkuvera.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um vindorku.
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um loftslagsmál, nr. 70/2012 (breyting á stjórnsýslu loftslagsmála o.fl.)
Áætlað: marsÍ Samráðsgátt:S-234/2021 (áform um lagasetningu, 0 umsagnir)S-15/2022 (drög að frumvarpi til laga, 1 umsögn)S-255/2022 (áform um lagasetningu, 3 umsagnir)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstri hreyfingarinnargræns framboðs kemur fram að stjórnsýsla loftslagsmála verði styrkt og hlutverk Loftslagsráðs tekið til endurskoðunar með aukinni áherslu á ráðgefandi hlutverk og vísindastarf auk aðhalds- og eftirlitshlutverks gagnvart stjórnvöldum. Frumvarpið felur í sér e ndurskoðun á hlutverki Umhverfisstofnunar hvað snertir loftslagsstefnu ríkis og sveitarfélaga.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um loftslagsmál, nr. 70/2012 (breyting á stjórnsýslu loftslagsmála o.fl.).
- Kom aldrei framFrumvarp
Eldsneytisbirgði r
Áætlað: marsÍ Samráðsgátt:S-20/2023 (áform um lagasetningu, 2 umsagnir)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að mælt sé fyrir um lágmarksbirgðahald jarðefnaeldsneytis í samræmi við orkustefnu Íslands, skýrslu þjóðaröryggisráðs frá 2021 og aðgerðir sem átakshópur um úrbætur á innviðum skilgreindi í kjölfar óveðursins 2019.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um eldsneytisbirgði r.
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004 (EES-innleiðing, móttaka úrgangs í höfnum)
Áætlað: mars· EES-innleiðingÍ Samráðsgátt:S-249/2022 (áform um lagasetningu, 3 umsagnir)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/883 frá 17. apríl 2019 um móttöku úrgangs frá skipum, sem breytir tilskipun (ESB) 2010/65 og fellir úr gildi tilskipun (ESB) 2000/59. Tilskipunin kemur í stað eldri tilskipunar um sama efni sem hefur verið innleidd hér á landi. Gera þarf nokkrar breytingar á lögunum vegna innleiðingar á tilskipuninni.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004 (EES-innleiðing, móttaka úrgangs í höfnum).
- Kom aldrei framÞingsályktunartillaga
Aðgerðaáætlun um orkuskipti
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um orkuskipti var samþykkt á Alþingi í maí 2017 og miðar hún að því að dregið verði úr notkun jarðefnaeldsneytis og aukin hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa sem hafi í för með sér orkusparnað, aukið orkuöryggi, minni staðbundna mengun og losun gróðurhúsalofttegunda o.fl. Leiðarljósin eru tiltekin markmið um orkuskipti, hagrænar forsendur fyrir orkuskiptum og orkusparnaði, uppbygging innviða, orkusparnaður, samstarf og rannsóknir, þróun og nýsköpun og alþjóðasamstarf. Í tillögu að endurskoðaðri aðgerðaáætlun um orkuskipti verður byggt á greiningu á stöðu orkuskipta og tekið mið af loftslags- og orkumarkmiðum Íslands og sviðsmyndum þeim tengdum.
Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um orkuskipti.
Utanríkisráðherra
6 af 11 komin fram
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu, nr. 58/2010 (sérfræðimat, gjaldtaka, reglugerðarheimild o.fl.)
Áætlað: febrúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru gerðar breytingar á lögum um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008, til að samræma framkvæmd þeirra ákvæðum nýrra laga um frystingu fjármuna og skráningu aðila á lista yfir þvingunaraðgerðir í tengslum við fjármögnun hryðjuverka og útbreiðslu gereyðingarvopna, nr. 64/2019. Samhliða eru ákvæði laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða endurskoðuð í ljósi þeirrar reynslu sem komin er á þau, m.a. hvað varðar gildissvið þeirra með tilliti til breytinga á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka,nr. 140/2018.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu, nr. 58/2010 (sérfræðimat, gjaldtaka, reglugerðarheimild o.fl.).
- Kom aldrei framÞingsályktunartillaga
Staðfesting ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr
Áætlað: októberHvað stendur í þingmálaskránni?
396/2021 og nr. 398/2021 um breytingar á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn, nr. 49/2022 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn, nr. 77/2022, nr. 78/2022 og nr. 155/2022 um breytingar á X. viðauka (Almenn þjónusta) og XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn. 1) Ákvörðun nr. 396/2021: Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/956 frá 28. júní 2018 um vöktun og skýrslugjöf vegna koltvísýringslosunar og eldsneytisnotkunar nýrra þungra ökutækja og framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/888 frá 13. mars 2019 um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/956 að því er varðar gögn um ný þung ökutæki sem aðildarríki og framleiðendur eiga að vakta og gefa skýrslu um. 2) Ákvörðun nr. 398/2021 Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1242 frá 20. júní 2019 um að setja staðla um frammistöðu vegna losunar koltvísýrings fyrir ný, þung ökutæki og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 595/2009 og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/956 og tilskipun ráðsins 96/53/EB. 3) Ákvörðun nr. 49/2022: Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/858 frá 30. maí 2018 um viðurkenningu á og markaðseftirlit með vélknúnum ökutækjum og eftirvögnum þeirra og á kerfum, íhlutum og aðskildum tæknieiningum sem ætlaðar eru í slík ökutæki, um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 715/2007 og (EB) nr. 595/2009 og niðurfellingu tilskipunar 2007/46/EB. 4) Ákvörðun nr. 77/2022: Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1055 frá 15. júlí 2020 um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 1071/2009, (EB) nr. 1072/2009 og (ESB) nr. 1024/2012 að því er varðar að aðlaga þær að þróun sem orðið hefur á sviði flutninga á vegum. 5) Ákvörðun nr. 78/2022: Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1054 frá 15. júlí 2020 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 561/2006 að því er varðar lágmarkskröfur um daglegan og vikulegan hámarksaksturstíma, lágmarksvinnuhlé og daglegan og vikulegan hvíldartíma og reglugerð (ESB) nr. 165/2014 að því er varðar staðarákvörðun með aðstoð ökurita. 6) Ákvörðun nr. 155/2022: Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/645 frá 18. apríl 2018 um breytingu á tilskipun 2003/59/EB um grunnþjálfun og reglubundna þjálfun ökumanna tiltekinna ökutækja til vöru- eða farþegaflutninga og á tilsk ipun ráðsins 2006/126/EB um ökuskírteini.
Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr.
- Kom aldrei framÞingsályktunartillaga
Staðfesting ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 145/2022 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES -samninginn
Áætlað: febrúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/879 frá 20. maí 2019 um breytingu á tilskipun 2014/59/ESB að því er varðar getu lánastofnana og verðbréfafyrirtækja til að bera tap og til endurfjármögnunar og tilskipun 98/26/EB.
Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 145/2022 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES -samninginn.
- Kom aldrei framÞingsályktunartillaga
Staðfesting ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr
Áætlað: febrúarHvað stendur í þingmálaskránni?
191/2022 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/883 frá 17. apríl 2019 um móttökuaðstöðu í höfnum til afhendingar úrgangs frá skipum, um breytingu á tilskipun 2010/65/ESB og um niðurfellingu tilskipunar 2000/59/EB.
Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr.
- Kom aldrei framÞingsályktunartillaga
Staðfesting ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar sem ekki hefur enn verið tekin
Áætlað: febrúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 frá 12. desember 2017 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun, og um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB, 2009/138/EB og 2011/61/ESB og reglugerðum (EB) nr. 1060/2009 og (ESB) nr. 648/2012 og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/557 frá 31. mars 2021 um breytingar á reglugerð (ESB) 2017/2402 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun til að stuðla að endurbótum í kjölfar COVID- 19 hættuástandsins.
Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar sem ekki hefur enn verið tekin.
Hvernig er staðan fundin?
Ríkisstjórnin birtir þingmálaskrána á vef Stjórnarráðsins samkvæmt 47. grein þingskapa. Alviti les skrána og parar hvert atriði við þingmálið á Alþingi sem ráðherrann lagði fram, eftir ráðherra, tegund máls og heiti.
- Samþykkt: Alþingi samþykkti málið.
- Í vinnslu á Alþingi: Málið er komið fram og er til meðferðar á Alþingi.
- Seinkað: Áætlaður mánuður er liðinn en málið er ekki komið fram.
- Ekki komið fram: Málið er ekki komið fram, en áætlaður mánuður er ekki liðinn.
- Dagaði uppi eða fellt: Málið var lagt fram en dagaði uppi eða var fellt.
- Kom aldrei fram: Málið var aldrei lagt fram á þinginu.
„Seinkað“ þýðir aðeins að áætlaður mánuður er liðinn án þess að málið sé komið fram. Ástæðurnar koma ekki fram í gögnunum, og ríkisstjórnin endurskoðar áætlunina eftir jólahlé. Mál sem ríkisstjórnin leggur fram án þess að þau séu á skránni koma ekki fram hér.
Skráin var síðast lesin 24. október 2026. Staða hvers máls fylgir gögnum Alþingis.
Heimild: Stjórnarráð Íslands, þingmálaskrá ríkisstjórnar · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)